Katrín.is
6.
jún

( 2010 )
ragna, jón sigurðsson og katrín 2007


katrín, jón sigurðsson og ragna 2010

kl. 23:33 | holla ( 1 )
2.
jún

( 2010 )
við sissi erum að fara að gifta okkur í ágúst. er frekar lítið stressuð yfir því..
komin með prest og venue og veislustjóra og kjól og skó.. það var reyndar fáránlega lítið mál.. ég keypti mér giftingarpartýskjól á 10 mínútum.. hef heyrt hryllingssögur af konum sem hafa þurft að leita og leita og leita og verið í vandræðum með þetta

mér finnst minn sko svo fínn að ég máta hann reglulega og hef stundum skápinn pínu opinn til að geta glápt á hann áður en ég fer að sofa

(hann er ekki brúðarkjóll sko. heldur bara fínn vivienne westwood kjóll)

en alla vega.. ég var að gamni að gúgla brúðkaups hitt og þetta, aðallega af því næsta skref er að senda út boðskort (væri samt minna vesen að gera bara facebook event sko..) og vá hvað maður rekst á mikið slæmt.. td einhver veisluþjónusta sem býður uppá svona vef fyrir brúðhjónin, ég myndi ekki setja nafnið mitt á svona vef þó ég væri dauð

kl. 20:29 | holla ( 4 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox