við ragna unnum íslandsmótið í 5. skipti saman í dag. mikið var það nú skemmtilegt! þetta er alltaf jafnsvít og extra gaman því verið erum svo góðar vinkonur. hún vann líka einliðaleikinn en ég var nokkuð sátt með sjálfa mig í einliða líka (tapaði fyrir henni í undanúrslitum). kl. 23:10 | holla ( 2 )
22. mar ( 2010 )
ég er svo ógeðslega spennt yfir þessari jónínu ben og gunnar í krossinum frétt að ég veit ekki hvar þetta endar.. ég er alveg búin að vera að spara það að horfa á ísland í dag þáttinn með þeim.. en ætla að koma mér vel fyrir (helst með popp og kók) og horfa á þetta núna
kannski best ég vitni í báru vinnuvinkonu mína
"ég held ég hafi aldrei séð Katrínu jafn ákafa og þegar hún sagði mér þessar stórkostlegu fréttir"
kl. 23:24 | holla ( 5 )
ég hef oft séð stelpur á internetinu tæma handtöskuna sína. mér finnst það svoldið skemmtilegur leikur. hér er mín taska og innihald (þessi myndataka varð samt til þess að ég færði allt draslið yfir í aðra tösku)
- kanínufóðraðir hanskar úr tösku og hanskabúðinni
- sólgleraugu
- bíllykill
- minniskubbur
- lyklar að húsinu, bílskúrnum, vinnunni og skápnum í TBR
- lykill að fjársjóð
- nokkur mac gloss
- veski (mig vantar samt nýtt fínt)
- flip mino HD
- nexus one
- ipod nano
- ipod shuffle
kl. 21:11 | holla ( 18 )
18. mar ( 2010 )
hér er smá teaser fyrir næsta EVE expansion, Tyrannis
fólk er alltaf að spyrja mig að því á hvaða fjall ég ætla næst.. verð að viðurkenna að sigra fjöll er ekkert passion hjá mér þannig ég er ekki með neitt annað á planinu.. (mér finnst samt rosalega gaman að fjöllum sko)
en eftir kili fórum við í safari í Arusha National Park.. það er pinku anti climax fyrir einhvern sem hefur skoðað svo mikið af fínum þjóðgörðum í afríku (til dæmis Serengeti og Ngorogoro crater) en við fundum þessa fínu buffalo hauskúpu
en hún þykir minna pínu á þessa mynd
"that´s me taking the bull by the horns. It´s a metaphor, that actually happened though."
kl. 21:53 | holla ( 5 )
15. mar ( 2010 )
því miður er mogginn er ekkert mikið til í að maður sé að copya textann þeirra og svona en mér finnst staktsteikar síðasta laugardags bara svo ótrúlega mikil snilld að ég er að drepast mig langar svo til að birta þá hérna
þetta er skemmtilegasti texti sem ég hef lesið lengi og ég vildi óska þess að ég hefði skrifað þetta!..
ég má samt til með að birta eina línu hérna í von um að verða ekki skömmuð af moggamönnum (en þá helst agnesi eða davíð) og svo finnið þið bara laugardagsmoggann og tjekkið á þessu
"Á meðan aðrir landsmenn hafa stigið léttan dans á rósabeði síðustu missera, hefur Steingrímur mátt púla í sveita síns andlitis við að bjarga þjóðarskútunni."
kl. 22:51 | holla ( 5 )
11. mar ( 2010 )
mig er alltaf búið að langa í iphone (helst hvítan) en hef aldrei viljað kaupa mér því mér finnst pínu blóðugt að kaupa rándýran síma sem þarf svo að cracka eitthvað til að geta notað..
..í fyrsta skipti sem mig langaði ekki lengur í iphone heldur annan síma var þegar ég sá nexus one. það var ást við fyrstu sýn! ég varð að eignast hann!
hann er á topp 5 yfir það fínasta sem ég á.. ég skil ekki hvernig ég gat lifað áður en ég eignaðist hann, hann er svo fínn og svo sniðugur og það er hægt að gera allt í honum OG hann er með nafnið mitt grafið í hann
19. febrúar 2009 fór ég til afríku með ástu og margréti ágústu vinnuvinkonum mínum eftir að okkur var sagt upp
21. febrúar 2010 fór ég til afríku, líka með tveimur vinnufélögum, reyndar af hinu kyninu og við erum ennþá með vinnu.. og í þetta skiptið kom sissi líka með
ferðin í ár var heldur styttri þar sem stefnan var bara tekin á kilimanjaro og aftur heim..
þetta var ótrúlega gaman, við fórum Lemosho leiðina, sem er lengsta leiðin á fjallinu og með hæsta success rate-ið, enda munar um auka dag eða tvo í hæðaraðlögun
gangan gekk rosa vel og var frábær, við vorum ótrúlega heppin með guide en það var bruce, skuggalega harður guide, búinn að taka allskonar sömu fjallanámskeið og sissi og allt, sem leiddi okkur á toppinn ásamt Faraja
ég mæli með leiðinni og mæli með Bruce fyrir þá sem eru að pæla í að fara þarna
þetta var eiginlega eins og 6 dagar af frekar auðveldu trekki (sérstaklega fyrir þá sem kunna að koma sér vel fyrir í tjaldi), svipað og hæk á íslandi nema þarna er tjaldað og eldað fyrir þig.. og þú þarft bara að bera vatnið þitt, snacks og regnföt yfir daginn
toppadagurinn er svo heldur ekkert voða erfiður fyrir utan þunna loftið, það er reyndar mikil hækkun en það er farið svo voðalega hægt yfir.. ætli ég geti ekki sagt að öll ferðin hafi verið ótrúlega pleasant nema svona síðasti 1-1 og hálfur tíminn á toppinn