Katrín.is
31.
ágú

( 2009 )
ég man ekki hvort ég var búin að segja það hérna en við sissi ætlum að gifta okkur á næsta ári... erum voða lítið að pæla í þessu en maður fær pínu stress þegar maður sér blogg hjá öðru fólki sem er að farað gifta sig og það er bara í einhverjum maaaaassívum skipulagninum... sjii hversu flókið getur verið að skipuleggja eina góða grillveislu? vona þetta eigi ekki eftir að bíta mig í rassinn næsta sumar!

við erum samt búin að ákveða að afþakka gjafir en óska í staðinn eftir frjálsum framlögum í brúðkaupsferðarsjóð (okkur langar í snjóbrettabrúðkaupsferð) og þar með er eitt stressið farið, bæði yfir því að þurfa annað hvort að velja sér shitloads af drasli á einhvern helv gjafalista.. nú eða yfir því að fá ljótar gjafir! (grín..)

kl. 23:41 | holla ( 7 )
það eru eflaust einhverjir sem lesa þetta blogg sem eru fokk spenntir fyrir dust 514 (i know i am!).. verð þá bara að plögga fanfestinu þar sem verður gefið upp meira um dust og svo auðvitað almennur hressleiki (og ég)


kl. 17:51 | holla ( 0 )
30.
ágú

( 2009 )
27.
ágú

( 2009 )
fokk hvað þetta er góð síða



væri ekki gaman ef einhver gerði svona í rúmfatalagernum (eða keflavík))

kl. 22:41 | holla ( 3 )
26.
ágú

( 2009 )
sigurjón spyr hvað er að eyðileggja bloggið... ég er pínu búin að vera að velta því fyrir mér.. bæði er þessi ógeðslega neikvæðni og almennu leiðindi í bloggheimum að skemma fyrir mér og facebook.. ég er miklu frekar farin að setja eitthvað bara í status í facebook sem ég hefði annars sett í blogg (og haft þá lengra..)

ég prufaði líka twitter en hann er ekki alveg að gera sig fyrir mig..

ég fann samt tilefni til bloggs.. eða ég var búin að skrifa status á facebook og svara sjálfri mér tvisvar og fannst þar með þetta vera orðið nægilegt efni í blogg

ég var að spila eve online í gær.. það er mögulega besti leikur í heimi! ég var alla vega búin að spila í 6 klst samfleytt þegar það kemur blossi úr spennubreytinum mínum, við stykkið sem fer í tölvuna.. og svo dó hann!

ég kíkti á apple.is og sá að nýr spennubreytir kostar 16þús, sem mér finnst alveg pínu of mikið en lagðist í smá research (eða nei, sissi gerði það.. ég var í panikki yfir að tölvan mín myndi verða batteríslaus í miðju missjoni) og komst að því að apple bætir bilaða spennubreyta hvort sem þeir eru í ábyrgð eða ekki

jeij! ég fór í dag og fékk þetta staðfest en það var því miður ekki til spennubreytir fyrir mig en þeir koma vonandi í næstu viku! (þangað til er ég samt með batteríslausa macbook en get browsað á eeeeldgömlum macmini)

kl. 21:09 | holla ( 10 )
22.
ágú

( 2009 )
af hverju fékk einhver 12 ára frænda sinn til að hanna marathon.is í frontpage?.. ég hef sjaldan séð aðra eins skelfingu

og af hverju er enginn title á síðunni og af hverju eru urlin á undirsíðurnar svona fáránlega löng!!!??? halló, aldrei heyrt um td marathon.is/marathon eða marathon.is/laugavegur(inn)

(glitnir eru bestir í þessari linka pælingu.. maður getur slegið inn glitnir.is/*hvaðsemmannidetturíhug* (gengi, gjaldmidlar, einkabanki, markadir..) og maður dettur alltaf inná rétta síðu)

kl. 01:03 | holla ( 12 )
18.
ágú

( 2009 )
þegar mér er svona rosalega kalt á puttunum eins og mér er búið að vera í næstum allan dag (ég fékk mér heitt kaffi í vinnunni bara til að hlýja mér á bollanum) þá er gott að hugsa til hitans á zanzibar.. og hvað mér fannst aaaalltof heitt þar.. en það er ótrúlega fallegt!


svo finnst mér þessi mynd frá namibíu svo lýsandi fyrir hvað namibía er mögnuð.. ahh ég elska namibíu!


og fyrst ég er byrjuð á þessu, þá er ekki úr vegi að setja inn hérna eina af geyspandi fjallagórillu í rwanda


ég á enn eftir að gera eitthvað sniðugt við afríkumyndirnar.. leiðist að setja þær bara á facebook...

kl. 20:42 | holla ( 4 )
17.
ágú

( 2009 )
þessi síða uppfærir sig ekki sjálf...
...ég skil ekkert í því!

kl. 17:40 | holla ( 1 )
11.
ágú

( 2009 )
1 to go, sá örninn um helgina

svoldið áhugaverð tilraun í markmiðasetningu að setja sér bara markmið sem byggjast á heppni

ég gerði samt heiðarlega tilraun til að veiða lax. heppnaðist samt ekki en náði tveimur fínustu bleikjum og það verður ekki tekið af mér að ég er skuggalega bransaleg



svo verð ég að viðurkenna að ég er búin að horfa á þetta vídjó amk 1x á dag alla síðustu viku.. mér finnst þetta svo fínt og töff og osomm (mæli samt með að fólk horfi á þetta inná youtube, svo lítið hérna)


kl. 17:48 | holla ( 6 )
7.
ágú

( 2009 )
miðað við hvað ég er mikill bloggari og net seleb þá er ég samt voða prævat með allskonar

það fer td ótrúlega í taugarnar á mér að pöpullinn sé að heimta að bankaleynd verði afnumin (held að 98% af þessu fólki fatti ekki bankaleynd) og af ótta við að þessi ríkisstjórn muni í popúlisma sínum láta það eftir pottaberjandi fólkinu (á eyjunni og moggablogginu) þá er ég farin að nota nánast bara reiðufé..

og tengt þessu þá finnast mér þessi tekjublöð ótrúlega hallærisleg.. eða sko öllu heldur finnst mér fáránlegt að þessar upplýsingar liggi fyrir allra augum og fyrst þær eru það á annað borð, af hverju er það bara í 2 vikur? skil þetta ekki...

en asnalegast af öllu finnst mér að tekjublöðin séu ekki sett upp svona "jón jónsson borgaði 600þús á mánuði til ríkisins árið 2008, flott hjá honum!"

kl. 21:52 | holla ( 18 )
6.
ágú

( 2009 )
opee er uppáhalds rapparinn minn og ég elska o.n.e.

þetta lag er frábært og vídjóið ótrúlega flott


hægt að kaupa plötuna á gogoyoko

kl. 22:55 | holla ( 1 )
5.
ágú

( 2009 )
ég er ótrúlega forvitin um hvort kerlingafjöll séu mesta okurbúlla landsins..

við gistum eina nótt þar í tjaldi fyrir gönguna.. nóttin þar á mann, í tjaldi.. kostar 1400kr! þannig fyrir að planta einu ogguskonsulitlu göngutjaldi þarna fyrir mig og sissa kostaði 2800.. það voru tvö útiklósett, ljósin voru slökkt á þeim þannig þar var niðamyrkur og það var ekki hægt að sturta niður á öðru þeirra

við gistum í þórsmörk nokkrum dögum fyrr, þar kostaði gistingin 600kr á hvort okkar..

hefur einhver komið á dýrara tjaldstæði?

í fyrra fórum við í 3 vikna ródtripp og þá var dýrasta tjaldstæðið í breiðavík (sem kostar núnar 1200kr, kannski minna í fyrra) en þar er hægt að elda inni og borða inni og svona..

svo þegar við komum til baka úr göngunni fengum við okkur kjötsúpu.. hún var með voooða lítið af kjöti í en kostaði 2900kr!

kl. 18:31 | holla ( 10 )
4.
ágú

( 2009 )
ég var að koma úr svo skemmtilegri ferð sem endaði á þriggja daga hæki um kerlingafjöll.. ca 60km.. nánari lýsing seinna

kl. 00:53 | holla ( 2 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox