Katrín.is
29.
maí

( 2009 )
þessi krumpaða kona er bushman frá namibíu



kl. 15:43 | holla ( 18 )
hitti þessa gutta á heimili fyrir street kids.. man ekki hvort það var í tanzaníu eða kenýa (ég ætti að skammast mín, þetta rennur allt saman í eitt)




kl. 14:57 | holla ( 3 )
ég hef stundum verslað við hafþór og einu sinni fékk ég bestu línu í heimi:
"ekkert að borga, bara brosa!"

kl. 01:01 | holla ( 0 )
26.
maí

( 2009 )
ég hef eiginlega aldrei séð neitt jafn ógeðslegt og selanýlenduna í Cape Cross í Namibíu..

það búa 80 til 100 þúsund selir þarna og lyktin eftir því.. nei sko lyktin er óóógeeeeð, það er eiginlega ekki hægt að vera þarna.. þeir eru útum allt þarna, bæði í fjörunni og sjónum og hljóðin ótrúlega óhugnaleg.. eiginlega eins og einhver harmakvein fullorðinna manna

þegar við vorum þarna var mega þoka og fáránlega rakt þannig mér leið eins og þessi viðbjóðsfýla myndi festast í fötunum mínum







kl. 19:54 | holla ( 7 )
25.
maí

( 2009 )
búin að ná einu markmiði sumarsins.. við unnum 700ogeitthvað í lottóinu á laugardaginn! 2 to go
kl. 17:27 | holla ( 2 )
21.
maí

( 2009 )
geðveikt töff hjá nikita

verð reyndar að viðurkenna að ég lagði mitt af mörkum til að koma þeim í milljarðamæringahópinn og ætla að gera það áfram.. fokkitt, eftir að ég sá sumarlínuna (selekzion er geeeeðbilað í sumar) er ég meira að segja að spá í að ganga aldrei aftur í öðru en nikita!



ég elska þessa liti

kl. 17:59 | holla ( 8 )
ég er aðeins byrjuð að skoða myndirnar frá afríku... það var eitthvað svo yfirþyrmandi verkefni, þær eru svo geðveikt margar! ég er samt bara ööööörlítið byrjuð.. ég veit samt ekki alveg hvað ég á að gera við þær.. mig langar eiginlega að hafa þær á sér síðu, ekki í albúmi eins og hér.. er einhver með hugmyndir?








kl. 13:23 | holla ( 7 )
20.
maí

( 2009 )
rosa fínt hjá nýju ríkisstjórninni að vera með á planinu að hjálpa heimilunum í landinu.. þess vegna fær maður pinku á tilfinninguna að það sé verið að refsa bankamönnum með þessum lögum um að borga þeim ekki launin sín á uppsagnarfresti.. eins og það sé ekki nóg sjokk fyrir fólk að missa vinnuna (margir hverjir eiga líka atvinnulausa maka)

og áður en fólk fer að missa sig í refsigleðinni og því að bankamenn þurfi nú bara ekkert á þessu að halda þá bendi ég á að 80% starfsmanna banka eru með laun á bilinu 200-500þús...

húrra fyrir sósjalistunum, ríkisstjórn "fólksins"

kl. 16:38 | holla ( 7 )
ég var að catch up á blogginu hans bobby og sá hann ætlar aldrei að sjá amelie.. það minnti mig á að ég á enn eftir að sjá hana.. reyndar búin að gera tilraunir áður en aldrei komist í gegnum myndina..

eftir 3 tilraunir í viðbót hef ég komist að því að ég er (greinilega) eina manneskjan í heiminum sem finnst þetta drepleiðinleg mynd.. ég bara get ekki horft á meira en 5 mínútur af henni án þess að sofna

ég er því komin í hóp með bobby að ætla aaaaldrei að sjá þessa mynd

kl. 10:12 | holla ( 2 )
19.
maí

( 2009 )
markmiðasetning sumarsins:
sjá örninn á kollabúðum
veiða lax
vinna í lottó

kl. 23:23 | holla ( 3 )
18.
maí

( 2009 )
ég borgaði næstum jafnmikið fyrir flug með iceland express til london og aftur heim frá köben eins og ég borgaði fyrir 12 tíma flug til cape town frá london, og aftur til baka í 8 tíma frá nairobi.. með BA í miklu stærri og flottari vél..

skil ekki hvað réttlætir þetta ótrúlega háa verð hjá express..

kl. 21:58 | holla ( 2 )
við sissi gengum á hengil í dag
það var frábært því veðrið var æðislegt og skyggnið magnað, við sáum öll fjöll í ég veit ekki hversu margra kílómetra radíus

þess vegna var pinku viðeigandi að fara út að borða á panorama.. sem var mjög fínt, við vorum líka bara tvö þar! á leiðinni þangað sáum við þennan frábæra miða í glugganum á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu


Hrynghurð er læst. Notið bakkurð eða tekkhurð.

kl. 21:19 | holla ( 3 )
16.
maí

( 2009 )
fólkið fyrir ofan okkur er með hund (án okkar samþykkis).. og hann er búinn að væla og grenja í allan morgun og ég vorkenni honum svoooo mikið!

myndi þetta lið líka skilja barnið sitt aleitt eftir grenjandi í marga klukkutíma?
hvað getur maður gert? er ekki til eitthvað sambærilegt við barnavernd fyrir hunda?

kl. 11:39 | holla ( 5 )
ég skellti mér í musteri aaltosins í gær, uppáhalds húsið mitt á íslandi, norrænahúsið

ég ætla sko að kaupa það þegar ég verð roooosalega rík, læt ekki plata mig í að byggja einhverja smekkleysu á 2 samsíða lóðum eftir að ég hef rifið húsin þar

maturinn á dill er æði! ég var ekkert smá hrifin af þessu norræna þema líka, þeas þeir leita bara í hráefni næst okkur, það sem ekki fæst hér, er fengið frá frændum okkar

var ég búin að segja hvað það var fyndið að fatta að ég fílaði svíana og danann best í ferðinni okkar?

við fengum meira að segja hvönn úr tjörninni... svo vorum við með þetta æðislega útsýni yfir tjörnina og þingholtið.. ahh reykvíski miðbærinn er svo fallegur (þegar maður sér ekki hundaskítinn og tyggjóklessurnar)

alla vega, maturinn var alveg ótrúlega góður og réttirnir skemmtilegir (birkiís td) og maður fær að borða allt af iittala stelli, ég bara þoli ekki að borða mat af öðru en iittala heh

kl. 10:07 | holla ( 3 )
15.
maí

( 2009 )
ég er sko komin heim.. var með illt í maganum í nairobi og langaði bara heim til sissa míns og breytti fluginu og kom honum pínu á óvart

hann reyndar toppaði mig því hann var búinn að mála skúrinn og gera hann geðveikt fínan að innan (ég er pinku að telja þetta upp hér fyrir future reference), setja listana sem vantaði inná baði, setja parket á svefnherbergið, mála loftið í svefnherberginu, kaupa rúmgafl, kaupa ný aðeins of fín rúmföt, kaupa nýjan (annan) fataskáp handa mér og inní honum hékk (ég vil samt ekki vera að monta mig) vivienne westwood kjóll til að fara í í brúðkaup systur hans seinna í sumar og ný nærföt úr systrum.. jebb ég er smá heppin með mann, ég ætla líka að eiga hann alltaf..

samt svoldið fyndið að kaupa nýjan skáp núna, ég er sko miiiikið búin að kvarta undan litlu skápaplássi, mig VANTAR fataherbergi heh.. af því við getum bæði pakkað niður vinnufötunum okkar í kassa og merkt hann 2007, sett hann svo einhverstaðar innst inní geymsluna.. bara svona til að eiga seinna og sýna barnabörnunum.. "sjáiði krakkar, svona fötum voru allir í 2007, þetta er bindi!"

kl. 10:32 | holla ( 3 )
13.
maí

( 2009 )
hver er þessi robyn og af hverju er hún að copya stílinn minn!

kl. 21:08 | holla ( 7 )
fuck my life!

kl. 18:38 | holla ( 4 )
12.
maí

( 2009 )
í gær fékk ég í fyrsta skipti atvinnuleysisblús.. fór nefnilega í bæinn að dóla mér meðan maja var í vinnunni... hringdi í sissa með tárin í augnum "ég er atvinnulaus OG dkkisk er 23, ég mun ALDREI AFTUR eignast neitt fínt"

hann var mjög skilningsríkur og sagði "katrín farðu útúr marc jacobs búðinni og blúsinn lagast strax"

sem hann gerði.. ég fór og fékk mér smoothie fyrir >800kr í joe and the juice í magasin sem var alveg þess virði því það vinna bara sætir strákar þar sem hlusta á hiphop!

ég átti samt alvöru apamömmu dag í gær.. labbaði yfir á nörrebro, í gegnum kirkjugarðinn og fann uppáhalds tréið mitt sem var heldur betur í blóma, það er sko risastórt, eins og regnhlíf, og þakið bleikum blómum.. það var annar maður sem stóð undir trénu og spurði mig "finnst þér þetta ekki ótrúlegt, að maður standi bara undir einhverju svona fallegu, maður kemst í vímu"

ég játti því og fór og skoðaði fyensgade.. jonna kokholm býr enn á fyrstu hæðinni en thomas jensen (som sover) er fluttur.. einhver strákur og einhver stelpa búa í íbúðinni okkar ylfu..

tærnar mínar eru bálreiðar yfir að vera lokaðar inní skóm eftir 3 mánaða frelsi.. sérstaklega ein þeirra, þessi litla og hún grét rauðum tárum.. ég verð þá væntanlega eina fíflið í flipfloppum í köben í dag. (það er ekkert vooooða heitt hérna)

kl. 08:43 | holla ( 6 )
dem ég er svo ánægð með að fóstbræður séu með comeback
kl. 00:30 | holla ( 4 )
10.
maí

( 2009 )
ahh ég var búin að gleyma hvað danmörk er dásamleg
rúllaði með geir og vinum hans í gær sem var fáránlega gaman, spiluðum kubb (heitir spilið ekki það?) og mitt lið tapaði.. það var samt ekki mér að kenna og fórum uppí bíl hjá geðsjúkasta leigubílstjóra sögunnar, hann var meira skerí en leigubílstjórinn á mombasa sem tuggði amfetamínsjittið í gríð og erg


(og ef þið eruð að pæla hvort ég náði einhverju tani úti, þá er þessi mynd tekin viku áður en ég fór út)

kl. 09:15 | holla ( 5 )
9.
maí

( 2009 )
komin frá afríku eftir 77 daga þar.. er núna í fáránlega góðu yfirlæti hjá maju minni og jesper og ætla að hitta geir á eftir

ég var svo heví sátt að anda að mér svölu evrópulofti í london.. var kannski ekki eins sátt í morgun að anda að mér enn svalara evrópulofti i köben af því ég er ekki með jakka!

"heima" er best

kl. 12:01 | holla ( 3 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox