Katrín.is
18.
feb

( 2009 )





katrin.is/afrika



verð þarna næstu vikurnar.. allir að vera duglegir að kommenta!

kl. 19:24 | holla ( 2 )
17.
feb

( 2009 )
mér finnst frábært að vg séu farnir að pæla í tillögunni minni

álfhildur ingadóttir sagði í silfrinu: "Hins vegar er þessi eilífa virðing fyrir eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar sem er bara eitthvað sem við verðum að fara að ræða hér."

kl. 20:07 | holla ( 2 )
ég tók prufupakk á sunnudaginn.

pokinn minn var 10,8kg en þá vantaði reyndar í hann myndavélina og svo eitt og annað.. geri samt ráð fyrir/vona að hann verði alls ekki meira en 2 kílóum þyngri þegar allt er komið í (sem mér finnst samt djöfulli vel af sér vikið)



ííííík ég hlakka svo til! næstum allt að vera tilbúið.. djöfuls þeytingur er samt á manni fyrir svona stórt ferðalag

ætti kannski aðeins að útlista þessa ferð hérna.. við byrjum á því að fljúga til london á fimmtudagsmorgun og svo þaðan alla leið til cape town

þannig við erum komnar á áfangastað á föstudagsmorgun,.. við tekur tjill í cape town fram á fimmtudaginn eftir það þegar overland ferðin okkar byrjar

þá munum við í 21 nótt gista í tjaldi í suður afríku, namibíu, botswana og sambíu.. eftir það er eiginlega allt opið en okkur langar í sólbað á zanzibar, górillu trek í rwanda og til kenýa

verðum svo auðvitað með ferðablogg

kl. 17:37 | holla ( 5 )
steini joð vill afnema verðtrygginguna.. en bara þegar búið er að ná verðbólgunni niður

sem kemur honum að kjarna málsins: vandamálið er ekki verðtryggingin heldur verðbólgan..

kl. 00:19 | holla ( 6 )
jakk, i feel violated.. finnst eins og ég hafi labbað inná svefnherbergisleik nornarinnar

reyndar sá ég þetta þegar ég gekk niður bankastrætið í dag og sýndist fyrst vera úllíngar að dimmitera.. en svo voru of margir fréttamenn til að það gæti verið

ég held það hafi verið einn fréttamaður/ljósmyndari á svona 3 mótmælendur.. enda er þetta líka alveg stórfrétt

næst þegar ég fer í sushi lunch ætla ég að hringja í fréttamenn "við erum hérna nokkur saman sem ætlum að hittast og borða sushi og mótmæla því að 2007 sé farið og krefjumst þess að ríkisstjórnin finni olíu NÚNA"

kl. 00:11 | holla ( 6 )
15.
feb

( 2009 )
djö var frábært hjá stjörnunni að vinna
ég elska þegar underdogs koma á óvart

fannar var frábær en ég hefði viljað sjá meira af óla bóner
til hamingju stjarnan!

kl. 18:49 | holla ( 4 )
14.
feb

( 2009 )
jeminn, ég var að horfa á eurovisionþáttinn í fyrsta skipti í vetur og var þetta í alvöru rjóminn af lögunum?

og hvernig náðu eva maría og ragnhildur að vera vandræðalegri en lögin? er í alvöru einhver sem í einlægni finnst þær sniðugar og skemmtilegar (og er ekki vinur þeirra)?

kl. 22:29 | holla ( 9 )
8 gíga ipod nano sem kostar 150USD í apple usa kostar 40þús ISK í apple hér...

16 gíga ipod nano sem kostar 200USD kostar 52þús ISK...

svoldið klikk?

kl. 15:45 | holla ( 11 )
þegar við sissi ferðuðumst um ísland í sumar reyndum við að stoppa hjá öllum bændum sem voru að gera eitthvaið sniðugt aukalega við búskapinn, hvort sem það var fjósakaffi, ísgerð eða fuglaskoðunartraktoraferðir.. það er ótrúlega gaman og okkur langaði að styðja við svona framtakssemi

keypti mér um daginn rabbarbarakarmellu sem er afrakstur samvinnu bænda og hönnunarnema í Lhí.. dílissj og í fínum umbúðum og svona.. i love it!

kl. 00:02 | holla ( 12 )
13.
feb

( 2009 )
finnst ykkur ég blogga nógu mikið í dag?
kl. 23:52 | holla ( 4 )
ég er svo fegin að í góðærinu keypti ég mér allt sem mig langaði í.. ég heimtaði td að eignast allt útivistardót sjálf þó svo að sissi eigi nokkur pör af öllu..svoleiðis dót er allt bara orðið svo djöfulli dýrt núna, mig vantar reyndar ennþá dýnu, er að bíða eftir þessari nýju fínu frá therm-a-rest

síðasta alvöru útivistar item sem ég keypti mér fyrir hrun var þessi eitraði bakpoki, ég ætlaði að nota hann í sumarferðinni okkar en hann barst mér ekki fyrr en núna um jólin

þess vegna hlakka ég svooooo til að nota hann í afríku!! en ég er samt búin að undirbúa mig vel andlega fyrir því að hann muni skítna út..

þegar ég pæli í því þá á ég eiginlega allt sem mig langar í.. og það er ekki af því ég er svo nægjusöm heh.. eina sem mig vantar núna og keypti ekki í góðærinu er betri myndavél, hæð í vesturbænum + bílskúr og hvítur audi a5

kl. 23:52 | holla ( 2 )
af hverju ég fann þetta í gúgli verður að liggja á milli hluta en ég verð að gefa viðskiptaráðherra prik fyrir mjög metnaðarfullt svar við frekar ómerkilegri spurningu (af því hún er vitlaus.. eða ég amk veit bara um þessa 5 brauða pakka sem gylfi talar um)
kl. 22:40 | holla ( 4 )
ég var að pæla í hvaða fyrirtækjum mig langaði að vinna hjá og datt voða lítið í hug nema þá helst ccp, össur og marel (svoldið fyndið að FVH er sammála mér)

ccp af augljósum ástæðum.. það er svo fáránlega eitursvalt fyrirtæki og pottþétt með ótrúlega gott væb, hef farið þarna í vísindaferðir (ok reyndar áður en þeir meikuðu það) og þá var allt svo fínt og skemmtilegt fólkið sem vann þar og eve svo töff pródökt..

össur finnst mér líka vera að gera svo ótrúlega frábæra hluti, ekki bara töff verkfræðileg undur heldur líka hluti sem hjálpa heiminum

ég hef reyndar lítið kynnt mér marel en held að það hafi slæðst þarna með á listann af því það er líka útrásarfyrirtæki

án útrásar er ísland fucked, það vill enginn vera í einhverjum sjálfsþurftarbúskap hérna.. eða amk ekki ég...

áfram þekking, áfram tækni, áfram útrás og áfram ísland

viðbót: mér datt reyndar líka í hug gogoyoko af því það virkar á mig eins og þessi .com fyrirtæki sem leit út fyrir að vera svo skemmtilegt að vinna hjá þegar ég var að byrja í tölvunarfræði

þarf kannski ekki að taka það fram en mér finnst nikita flottasta íslenska fyrirtækið.. þvílíkt success á íslenskri hönnun (og hugviti)! ég reyni að klæða mig bara í nikita!

kl. 20:32 | holla ( 7 )
ég er eiginlega alveg hætt að skoða eyjuna því mér líður eiginlega alltaf verr eftir að hafa dottið þar inn

þarna er hópur af fólki sem hlýtur að vera refsiglaðasta og reiðasta fólk íslands, það skiptir þau líka engu hvort rétt sé farið með staðreyndir

svo ég nefni dæmi þá eru athugasemdirnar við þessa frétt (sem maður hefði haldið að væri góð frétt) svo ótrúlega ótrúlegar að ég á ekki til orð

æ, ég er bara leið eftir að hafa lesið þetta.. ætla að leyfa þessu að dæma sig sjálft og horfa á þátt af grey´s

mikið hlakka ég til að fara til afríku, þetta óvinveitta umhverfi og stemning hérna er ekki að gera góða hluti fyrir mig

kl. 19:16 | holla ( 7 )
af því ég veit það eru margir out there í atvinnuleit þessa dagana þá verð ég að benda á barney stinson video resume, eitthvað sem þið gætuð kannski velt fyrir ykkur að gera


kl. 16:06 | holla ( 5 )
ég fór með sissa síðustu helgi að heimsækja vini mína! mér finnstðeir svoo sætir, gaf þeim mola og svona




mér finnst þessi hvíti á bakvið svo fyndinn, hann er svo þreyttur


og þessi er svo sætur í bangsabúning


ég skil samt ekkert í því af hverju það vill enginn selja mér myndavélina sína... eins og það fer mér vel að vera með eina slíka í smettinu!

kl. 14:46 | holla ( 0 )
12.
feb

( 2009 )
ég er mjög hrifin af markmiðasetningu og finnst það ótrúlega effektív leið til að bæta sjálfa mig

flest markmiðin eru auðvitað bara fyrir mig sjálfa en ég er alveg til í að deila þessum helstu fyrir haustið hérna..

mig langar að verða betri ljósmyndari
mig langar að verða betri í golfi
og mig langar að lesa fleiri bækur

reyndar var ég með markmiðið fyrir þennan vetur að verða góð á snjóbretti, það gengur ágætlega en það köttast helv mikið á það markmið útaf afríkuferðinni

en með afríkuferðinni fæ ég svoldið mikið í staðinn, eða ég geri amk ráð fyrir því að það muni ég ná að breikka sjóndeildarhringinn minn helv mikið

golfið verður að bíða þar til ég kem heim aftur en myndavélin og einhverjar bækur fara með!

kl. 15:24 | holla ( 12 )
ég er svoldið búin að vera að nýta mér kreppuráð þorsteins, 999 og 996 eru uppáhalds so far
kl. 12:15 | holla ( 2 )
í dag er akkúrat vika í afríku!
þetta gerðist allt svo hratt að ég hef ekki haft tíma til að vera óþolinmóð!

kl. 11:42 | holla ( 0 )
11.
feb

( 2009 )
vill einhver selja mér canon eos 40d eða 50d?
sendið mér tilboð á katrin@katrin.is

kl. 18:24 | holla ( 6 )
10.
feb

( 2009 )
besta vídjó ever!


ég ætla ALDREI að sjá þessa mynd!

kl. 18:06 | holla ( 16 )
9.
feb

( 2009 )
eru ekki örugglega allir búnir að sjá þetta?

ferlegt hvernig kreppan fór með nýjasta frambjóðana frjálslyndra, hann þurfti að eyða 100x minna í jólin núna en síðast þegar hann bauð allri fjölskyldunni til flórída í 5 vikur.. hvers á greyið kallinn að gjalda?

kl. 18:56 | holla ( 13 )
ok þetta lið er búið að vera í ríkisstjórn í nokkra daga og jóhanna er búin að eyða öllum tímanum í að eltast við davíð, steingrímur í að rífast um eitthvað hvalveiðibann en eina sem er búin að gera eitthvað af viti er katrín sem er búin að bola út gunnari birgissyni og félögum úr stjórn LÍN..

niðurstaðan: katrínur eru bestar

kl. 18:50 | holla ( 4 )
af hverju er framkvæmdastjóri E.P. vélaleigu orðinn sérlegur sérfræðingur um stöðu þjóðarbúsins?

sorrí með mig, en ég opnaði pdfið hans og afskrifaði hann á fyrstu síðunni..

tvö spurningamerki, gæsalappir, bakgrunnurinn, comic sans, ísland...

er ríkissjónvarpið að gera grín að okkur?

kl. 00:39 | holla ( 8 )
7.
feb

( 2009 )
ég hlakka svo til að sjá ljón í sínu eðlilega umhverfi en er á sama tíma að drulla í mig úr hræðslu bara við tilhugsunina um að horfast í augu við svona kvikindi

(ég eyði örugglega hálfum deginum í að ímynda mér hvernig allt verður í afríku)

kl. 14:30 | holla ( 8 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox