bara sýna ykkur hvað ccp starfsmenn eru búnir að vera að gera fínt síðustu mánuði, mér finnst þetta sko svo flott að ég er búin að horfa á aftur og aftur og aftur
treilerinn fyrir dominion, næsta expansion (kemur út 1. des)
(miklu skemmtilegra ef maður horfir á í fullscreen og með hljóðið hátt stillt)
kl. 18:48 | holla ( 2 )
21. nóv ( 2009 )
mér finnst pínu kómískar þessar sögur af því hvað bankarnir eru hræðilegir að vilja ekki lána heiðarlegu fólki pening af því það stenst ekki greiðslumat.. fólk verður alveg æpandi vitlaust og hótar með látum að færa sko sín viðskipti annað þar sem það mun fá lán og nafnlausi herinn froðufellir af reiði útí nýju bankana
er þetta ekki nákvæmlega það sem fólk gerði þegar það fékk ekki erlent lán 2007?
kl. 13:20 | holla ( 5 )
10. nóv ( 2009 )
ég fór að sjá desember í bíó því ég hélt þetta væri einhver ástarmynd.. hún fittaði ekki alveg inní jákvæðnibubbluna mína.. því miður!
plúsar
- jólalög
- jólaljós
- abs
- tómas
mínusar
- dáið fólk
- veikt fólk
- fátækt fólk
- fjölskylduharmleikur
kl. 22:34 | holla ( 9 )
9. nóv ( 2009 )
ég heyrði viðtal við einhvern mann á rás 2 í fyrradag.. náði reyndar ekki hvaða mannvitsbrekka þetta var en hann sagði vanta vinstrisinnaðan fréttamiðil hérna.. útvarpsmanneskjan tjáði manninum að það væri nú smugan en þá svaraði hann "hún er svo lítið lesin"
kl. 20:56 | holla ( 4 )
8. nóv ( 2009 )
jákvæðabubblan mín er orðið nýja thingið mitt.. þá er allt miklu betra! svona í framhaldinu af dæminu um bókina hans ármanns, hvar ég sleppti því að lesa hrunskaflana.. þá var ég að horfa á gorillas in the mist og rifja upp þegar ég hitti górillurnar með ástu og margréti (og datt pínu inní að lesa meira af afríkublogginu, því það er svo ógeðslega skemmtilegt
alla vega.. þessi saga sem sagt snérist um það að ég var að horfa á gorillas in the mist og gat svo ekki horft meir þegar mennirnir slátruðu 5 górillum til að ná litlu górilunni *sniff* ég ætla aldrei að horfa á restina af þessari mynd
fíni górillupabbinn sem ég hitti (smell fyrir stærri) kl. 23:45 | holla ( 8 )