er líka búin að lesa bókina hans á íslensku og fannst hún æðislega skemmtileg, allt nema síðustu tvo kaflana, mig langar ekki að partýið hætti!
ég á hana líka á ensku þannig kannski ég lesi hana bara fyrst á ensku líka, fram að hrunsköflunum
kl. 16:04 | holla ( 3 )
mér verður stundum hugsað til orða sem hörður torfa lét falla á einum af borgarafundunum síðasta vetur
hann sagði eitthvað "blablabla þessir menn sem eru búnir að eyðileggja líf okkar!!!"
þessir menn verandi útrásarvíkingar.
mér fannst þá, og finnst ennþá (sem er tilefnið til þess að ég hugsa stundum til þessara orða) ótrúlega sorglegt að honum, og eflaust einhverjum fleirum, finnist ókunnugir menn vera búnir að eyðileggja líf sitt..
það er kannski ekkert skrítið að fólk sé ennþá svona ægilega biturt og reitt þegar æðstistrumpur tekur svona stórt til orða en ég ætla sko aldrei að leyfa hannesi smárasyni og jóni ásgeiri að stýra hamingju minni
kl. 11:56 | holla ( 7 )
25. okt ( 2009 )
ég held að hannes hólmsteinn sé troll.. og damn gott troll
það er nottla fátt skemmtilegra en að fara í taugarnar á fólki á internetinu og að fylgja davíð er klárlega besta leiðin.. þú færð alveg egil og allan nafnlausa herinn á móti þér
bloggið hans er algjört uppáhald, alltaf bara mynd af manni og svo romsan um hvað hann er vitlaus og útaf hverju (skal samt viðurkenna að ég er oft sammála því sem hann segir, fólk er bara svo blindað af því að það er hannes sem segir það að það tekur ekki mark á honum)
(ég vildi í alvöru að bloggið mitt væri svona skemmtilegt og umdeilt, ég er algjörlega búin að lús it)
kl. 16:47 | holla ( 10 )
19. okt ( 2009 )
sjúskuð og sjoppuleg ellý ármanns sæl þrátt fyrir skvap (vekur óhug) - mynd kl. 23:02 | holla ( 2 )
18. okt ( 2009 )
krumpur á maga ellýar vekja óhug - mynd kl. 12:24 | holla ( 7 )
17. okt ( 2009 )
ég hef oft velt því fyrir mér hvað kom eiginlega fyrir ellý ármanns sem varð til þess að hún hatar konur..
lisbeth salander ætti eiginlega að ná í skottið á henni!
kl. 20:06 | holla ( 6 )
16. okt ( 2009 )
katrín: "hvað helduru að margir séu fæddir sama dag og ég?"
Sissi: "ummm....873"
katrín: "nei.. 871 what! hvernig reiknaðiru þetta?"
(maðurinn minn tilvonandi er mastersnemi í fjármálahagfræði)
kl. 22:36 | holla ( 14 )
15. okt ( 2009 )
sigurjón tók fína mynd af okkur sissa heima.. i lovez it (smell fyrir stærri) kl. 17:29 | holla ( 6 )
12. okt ( 2009 )
ég skil ekkert í þessu.. litli bróðir minn sem var 5 ára í gær er alltíeinu orðinn 16 ára.. fer bráðum að læra á bíl og er byrjaður í menntaskóla.. ég hitti hann meira að segja óvænt niðrí í bæ um daginn!
hann er algjör snilli og ég elska hann meira en (langlang) flesta í þessum heimi
djö vildi ég þessi þáttur væri bara um ásdísi og garðar og kæmi allur á youtube.. fokkitt ég myndi meirað segja kaupa þetta á dvd
kl. 18:20 | holla ( 8 )
7. okt ( 2009 )
ég er í svo mikilli hrunsafneitun að í hvert skipti sem bjallan hringir hugsa ég (ennþá) "jess pósturinn að koma með eitthvað sem ég keypti mér á netinu"
kl. 21:02 | holla ( 3 )
5. okt ( 2009 )
ég er ekki búin að mynda mér skoðun á því hvort ég vilji að ísland gangi í esb af því mér finnst ég ekki hafa forsendur til að meta það.. maður heyrir bara annað hvort að esb taki auðlindirnar okkar eða að allt batni með inngöngu í esb (alveg veðrið og allt líka)
eina sem ég er búin að mynda mér skoðun á, er að ég vil ekki ganga í esb til að leysa þessi vandamál sem við feisum núna.. heldur myndum við gera það ef við sjáum esb sem góða lausn fyrir okkur til framtíðar.. eníveis..
þess vegna greip ég þetta blað frá ESB jugend ungum jafnaðarmönnum
ég hefði svosum getað sagt mér það sjálf að þetta rit myndi ekki hjálpa mér neitt við að mynda skoðun.. en mér finnst alveg ótrúlegt að þeim finnist mikilvægast við esb að það megi í alvöru vera bognir bananar.. og gúrkur.. og að það megi mæla pizzur í tommum (og sorrí með mig en mér finnst ótrúlega ósmekklegt að nota börn í pólitískum tilgangi)
kl. 19:29 | holla ( 21 )
ég var að skoða Veru síðan 2003. Þar var risa umfjöllun um blogg, og þá helst kvennablogg.. let´s face it en 2003 var mitt blogg klárlega eitt af stærstu bloggunum hérna, og hvað þá stelpubloggunum.. þess vegna fannst mér pínu fyndið og skrítið að sjá útdrátt úr fullt fullt af stelpubloggum en eeeekkert minnst á mig... nema svo rakst ég á þetta
og ákvað að þetta ætti við mig!
kl. 18:11 | holla ( 2 )