
30.
sep
( 2008 )
ég veit ekki hver ég myndi minnst vilja vera, ein af danspíunum í singing bee, jón sigurðsson eða nýi löggustjórinn á suðurnesjum
kl. 20:05 | holla ( 4 )
ok ok stroffið er kannski pinku mis en það gefur honum bara karakter

mér finnst þetta helvíti góð fyrsta tilraun þó ég segi sjálf frá.. haaa hvern hefði grunað að það blundaði lítil handavinnustelpa í mér?
kl. 18:04 | holla ( 19 )
29.
sep
( 2008 )
ó mér finnst svo gott að fara á kollabúðir
sko merkilegt.. langa-lang-afi minn ólst þar upp
tilviljun? mér finnst það pinku of ótrúlegt til að vera tilviljun...
við sáum ekki örninn, mig langar svooo að sjá hann! ég mæti þarna reglulega þar til ég sé hann, ég las samt að hann sé hressastur á vorin þegar hann er í tilhugalífinu.. ætla að finna hann næsta vor
veiddum engar gæsir og enga fiska, djöfull var vont veður en ég lærði að prjóna í staðinn og veistu hvað?? ég prjónaði vettling!
kl. 23:12 | holla ( 6 )
23.
sep
( 2008 )
djö vildi ég að þessi þáttur um tvo skrítna menn að ræða saman væri í hverri viku
besti íslenski þáttur since dagvaktin
kl. 23:07 | holla ( 10 )
22.
sep
( 2008 )
ohhhh
mér fannst bloggið hér á undan eitt það fyndnasta sem ég hef skrifað síðustu mánuði
myndbirtingin með og tengingin við stebba frey og þessi grein sem gæinn skrifaði...
og EKKERT komment
djö er ég búin að missaða.. has been
kl. 22:50 | holla ( 6 )
21.
sep
( 2008 )
djöfull er þessi ari arnórsson erfiður gæi, girti eitthvað drasl á geysissvæðinu af og gekk svo um og jafnaði vörður við jörðu
ég er ekkert hrikalega spennt fyrir einhverjum sjálfskipuðum náttúrustjóra sem ákveður hvað skal girða og hverju skal henda
haldiði það verði ekki fínt þegar hann verður búinn að girða af gullfoss og mývatn og þingvelli?

einhver þarf að stoppa þennan gæja, fá hann til að gera eitthvað annað... eins og td skrifa bók, hann slær meirað segja stebbafr sjálfan út með ritsnilld sinni, flottur strákur
kl. 23:20 | holla ( 6 )
20.
sep
( 2008 )
ég var að lesa viðtal við einhvern kall sem er að halda fyrirlestra um orð sem fólk skilur eftir sig á netinu, blogg og facebook og þannig
ok hann talaði um að hann vissi dæmi um það að fólk bara hefði verið rekið útaf facebook og dæmin sem hann tók voru annars vegar bankamaður í NY sem sagðist þurfa frí í vinnunni útaf einhverju alvarlegu sem kom upp í fjölskyldunni
hann var rekinn vegna þess yfirmaður hans vissi að hann væri að ljúga því hann sá partýmyndir af honumá facebook
ok mér finnst vandamálið ekki vera facebook heldur að maðurinn laug að yfirmanni sínum, sem svo komst að því..
hitt dæmið var lögga sem var með myndir af sér í annarlegum athöfnum á hommabar í löggubúning
aftur finnst mér facebook ekki vera vandamálið heldur það að maðurinn var að djamma í vinnuátfittinu sínu sem er svo ekki í boði þegar þú ert lögga
nú er ég þannig að það er hægt að finna djöfulli mikið af upplýsingum um mig á netinu, enda er ég líka orðin vel dannaðri í seinni tíð. úff það er svo margt sem ég hef bloggað áður sem ég aldrei setja á þessa síðu í dag
engu að síður vil ég láta það standa, þannig er þetta blogg orðið pinku þroskasaga mín.
ég er samt með þrjár megin reglur
- ekki kjafta frá leyndarmálum annarra
- ekki tala um vinnuna
- ekki blogga eitthvað sem ég meika ekki að standa við (pinku sorglegt þegar fullorðið fólk er að blogga eitthvað og tekur það svo út um leið og fólk er ekki sammála)
virkar ágætlega fyrir mig!
kl. 15:31 | holla ( 7 )
19.
sep
( 2008 )
besti stóri bróðir í heimi á afmæli á þessum annars frábæra degi

big bro sem lil sis lítur alltaf mest upp til. oft þegar fólk er að rifja upp einhverjar horror sögur um sig og systkini sín þá detta mér bara í hug einhverjar hetjusögur af stóra bróður mínum
hann að halda mér grátandi upp stigann í furugrund, hann að kaffæra einhvern gaur sem henti í mig snjóbolta, hann að gefa mér hvíta bangsann, hann að coacha mig á íslandsmóti..
það eru mega forréttindi að eiga góðan stóra bróður
kl. 19:24 | holla ( 5 )
17.
sep
( 2008 )
ég er einhverra hluta vegna búin að vera að rifja upp í dag helvíti gott móment úr garðinum hjá hannesi þar sem ylfa fann upp auglýsinguna með deyjandi konunni sem sagði "peehhhhhffffsíííí ég vil fá djeeedæææ peehhhhfffsssí"
good times
kl. 22:14 | holla ( 2 )
bitch stole my eyes

en sem betur fer ekki varalitnum mínum
kl. 00:03 | holla ( 8 )
16.
sep
( 2008 )
ég fór aftur á íkea-ferðir
ahhh það er svo GAMAN! skellið ykkur
í alvöru!
kl. 22:00 | holla ( 0 )
15.
sep
( 2008 )
fjármálaheimurinn hefði ekki alveg þurft að vera með svona tryllt viðbrögð við afmælinu mínu... ég er nú bara 28...
ég er búin að fá hellings af fínum pökkum, bjóða fullt af fólki uppá köku og fá kveðjur frá uþb öllum sem ég þekki í heiminum
TAKK!
en hvað ætlaru að gera í kvöld katrín?
nú, ég er að fara á æfingu
kl. 17:51 | holla ( 4 )
14.
sep
( 2008 )
síðasti sjens að vera 27!
bara 2 og hálfur tími í viðbót og svo er ég bara 28.. (þvílík breyting!)
kl. 21:25 | holla ( 10 )
þetta fór líka fáránlega í taugarnar á mér
hvað rugl er þetta???
nú er ég búin að mæta djöfulli oft í kirkju í sumar og verð meira afhuga kristni í hvert skipti sem ég kem.. (ég fæ samt alveg samviskubit að segja þetta, prestsfrúin hún amma mín heitir snýr sér ábyggilega við í gröfinni)
kl. 21:24 | holla ( 2 )
ég mæli svo ýkt með íkea-ferðum, þetta er skemmtilegasta leiksýning sem ég hef farið á síðan 8 konur og mikil læti sweeny todd
stendur reyndar þarna að síðasta ferð sé á þriðjudaginn en ég veit það verða aukasýningar, allir að redda sér miða
kl. 19:09 | holla ( 2 )
hvað ætli sé langt í að ég geti keypt mér iCar?
úff hvða ég væri til í svoleiðis
kl. 14:43 | holla ( 0 )
mig langar svo í google chrome fyrir mac
hverslu lengi þarf ég að bíða???
kl. 14:43 | holla ( 7 )
jesssss
ég lagaði flickr böggið
það þurfti að setja a fyrir framan img tagið
kl. 14:22 | holla ( 0 )
ég var í brúðkaupi í gær þar sem var kynntur "einn ástsælasti fjölmiðlamaður landsins"
ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar það var ekki vinur minn egill helgason
kl. 14:14 | holla ( 0 )
13.
sep
( 2008 )
katrín á leiðinni í brúðkaup

greinilega ennþá með smá áhyggjur af spaminu
kl. 16:08 | holla ( 3 )
hver hefur ekki velt því fyrir sér hvernig ég lít út þegar ég blogga?
tja akkúrat þegar ég skrifa þetta lít ég svona út

pinku alvarleg.. en það er bara útaf spamminu maður
kl. 13:08 | holla ( 9 )
akkúrat þegar ég þarf að blogga mikið, þá er ég andlaus...
...það var gaman í gær, ég fór í óvissuferð!
kl. 12:11 | holla ( 0 )
jeeeeez pirrandi spam
eina ráðið við því er að pósta bara nokkrum færslum!
kl. 12:05 | holla ( 0 )
12.
sep
( 2008 )
verst það eru réttir, annars hefði verið hægt að senda bara bændur í að taka á móti í staðinn fyrir ljósmæðurnar
kl. 00:18 | holla ( 6 )
mBlog
Safnið
2010 september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2009 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2008 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2007 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2006 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2005 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2004 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2003 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2002 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2001 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní