Katrín.is
31.
ágú

( 2008 )
það er opinbert, það er kominn vetur hjá mér
badmintonið byrjar á morgun, vetrarboði!

ég elska samt september, ég á afmæli í september! ahhh ég elska að eiga afmæli! ég er samt búin að reyna að hugsa eitthvað til að fá í afmælisgjöf en dettur ekkert í hug, ferlegt, ég er búin að kaupa mér allt sem mig langar í..

í sumar er fyrsta skipti síðan ég bara hmm man eftir mér, sem ég hef ekki verið að æfa badminton á sumrin, það er nú bara vegna þess að ég hætti í landsliðinu og ætla ekki að keppa í vetur (nema ég nenni).. en ég verð að spila 2x í viku með ótrúlega skemmtilegum hóp, hlakka mjög mikið til

ahh ég hlakka til vetrarins! mér finnst gaman á veturnar líka, kósí í myrkrinu og svo ætla ég líka að æfa mig massívt á fína fína snjóbrettinu mínu.

svo finnst mér líka gaman að klæða mig í layers!

kl. 22:50 | holla ( 0 )
30.
ágú

( 2008 )
ég haaaata þessar viðgerðir á hallgrímskirkju
þeir voru byrjaði þegar ég vaknaði kl 8:40 í morgun

svo hata ég líka fullt fólk sem gengur götuna mína gargandi eða syngjandi eða rífastandi um miðjar nætur, go back to grafarvogur og gargið þar

pirr dagsins

kl. 10:39 | holla ( 14 )
29.
ágú

( 2008 )
ég fór í blóðbankann um daginn með gunnari steini
það var fínt, góðar veitingar og maður nær að láta gott af sér leiða og svo fékk ég að hanga smá með gsm

ég væri samt til í að þetta væri eins og í venjulegum banka þar sem maður gæti loggað sig inn og séð í hvert innlögnin manns væri notuð

"notað til að bjarga ungabarni..."
"notað sem neyðarblóð í sjúkrabíl..."

eitthvað svona

ég er nefnilega heví sátt með blóðið mitt sem er ofurblóð, ég ætla að gefa aftur um leið og ég má

kl. 13:42 | holla ( 13 )
28.
ágú

( 2008 )
ég fékk tannrótarbólgu og þurfti þess vegna að fara í rótfyllingu á þriðijudaginn.. sko ég reyndi að gúgla þetta en fann eiginlega engar reynslusögur þannig skilaboð til þeirra sem koma hingað af gúgli
EKKI GERA ÞAÐ!

heh.. þegar deyfingin fór úr þá verkjaði mig svo mikið að ég var viss um að það var verra en.. sko.. ég þekki strák sem fór nærbuxnalaus í gallabuxum á hestbak og fékk brunasár inná báðar kinnarnar sem svo gréru saman um nóttina, sko þetta var amk verra en þegar hann þurfti að losa þær í sundur

svo fékk ég sýkingu

og svo ældi ég öllu innvolsinu mínu af sýklalyfjunum

núna er ég samt komin með ný sýklalyf, virka betur og er ekki búin að taka verkjalyf síðan í morgun húrra..

ég er búin að glápa fullt á önnu pihl, ég elskana... svo heyrist mér allir sem tala fyrir utan húsið mitt tala dönsku.. veit ekki hvort það er bara satt eða hvort það er allt kódeinið eða glápið á önnu...

puhlííííís get ég samt klárað að hressast á morgun

kl. 23:02 | holla ( 17 )
27.
ágú

( 2008 )
var logi geirs að koma úr eyjum?
kl. 19:02 | holla ( 10 )
hvaða rugl er í gangi? af hverju var sturla ekki fenginn til að stýra vörubílnum??
kl. 18:19 | holla ( 3 )
26.
ágú

( 2008 )
kona elskar manninn sinn

sorrí með mig en mér finnst þessi "frétt" eiga betur heima á vísi en mbl.. hvað er að FRÉTTA mbl???

kl. 14:51 | holla ( 8 )
24.
ágú

( 2008 )
ég var svo glöð að sjá strákana okkar brosa á pallinum þegar þeir fengu verðlaunin.. ég lá í sófanum og svaf yfir leiknum, ekki að gera sig svona snemma... eflaust hefði heppnast betur að halda mér vakandi ef við værum að vinna

en mikið er ég ótrúlega montin af þeim
áfram ísland!

kl. 13:46 | holla ( 7 )
23.
ágú

( 2008 )
mér finnst ungliðapólitík alltaf eins og stúdentapólitík...


(ég meika hvorugt)

kl. 00:00 | holla ( 5 )
22.
ágú

( 2008 )
það var viðtal við stelpu í blaði í dag sem var með splunkunýja hugmynd

þetta hefur ALDREI VERIÐ GERT ÁÐUR!

hún bjó til vefsíðu sem er svona vefsamfélag, fólk býr til prófíla og setur þar myndir af sér og tengir sig við annað fólk og getur skrifað skilaboð hjá þeim og þannig!

skiliggi hvernig henni datt þetta í hug
- rate.is

ég er með fleiri hugmyndir handa henni
- svona síða þar sem maður slær inn eitthvað sem maður vill finna á netinu og fær svo lista yfir niðurstöður...

- kerfi þar sem fólk getur skrifað inn fréttir af sjálfu sér og sett myndir með

- einskonar samskiptakerfi, sem er samt ekki vefbased, heldur client, þar sem þú getur addað vinum þínum og spjallað við þá


endalaust til...

kl. 23:23 | holla ( 12 )
ó þetta var svo fínt hjá strákunum í hádeginu, ég er svo ánægð með þá! ég get ekki beðið eftir sunnudagsmorgninum!

en hver vill mæla með einhverju að sjá á morgun? ég gafst upp á menningarnott.is skrímslinu.. það er ekki nokkur leið að skoða þetta!

mig langar að sjá rottweiler á organ og fluveldasýninguna.. ég veit ekki um meir...

kl. 23:03 | holla ( 1 )
21.
ágú

( 2008 )
smá PLÍS TAKIÐI BÍLINN MINN, LOSIÐ MIG VIÐETTA LÁN fílíngur...

kl. 23:18 | holla ( 3 )
19.
ágú

( 2008 )
thailensku lottódúllurnar eru mestu dúllur sem ég veit um og mér finnst svo frábært að þau hafi unnið
en guuuuuð minn góður hvað mig langar að segja þeim að treysta engum

alveg búið að sýna í sjónvarpinu hvar þau búa og allt

en að öðru... við hans sultuðum eins og vindurinn úr berjunum sem við tíndum í þorskafirði

fiskarnir þarna eru algjörir moðerfokkerar, laxarnir stukku fram og til baka með fokkmerki á uggunum.. ojj ég hata þá, samt gaman að veiða! mig langar í stöng.

sem betur fer var stappað af berjum.. ég held við höfum eytt ca hálftíma hvort í að pikka upp 5kg af aðalbláberjum, ég hef aldrei séð annað eins... við gerðum 3 tegundir af sultu.. venjulega, með vanillubragði og með kanil- og negulbragði


úff hvað ég hlakka til ð borða þetta með ostum

(bannað að gera grín að myndunum úr símanum mínum!)

kl. 23:48 | holla ( 10 )
einu sinni var fólk oft að linka á mig og tjá sig á blogginu sínum um það sem ég var að segja

núna er ég orðin svo mikið has been að ég nenni ekki að fylgjast með teljaranum mínum nema í mesta lagi einu sinni í mánuði... samt eiginlega nær einu sinni á ársfjórðungi...

ég rakst samt á þetta og var að vonast eftir einhverju djúsí um mig eða mín skrif, en þá var þetta bara annarra manna rifrildi sem ég var pinku dregin inní

samt mega sátt með að vera enn titluð bloggdrottningin heh..

kl. 20:06 | holla ( 10 )
ahh við eyddum 2 vikum on the road og borðuðum aldrei sveittan vegaborgara
það er fullt af fólki farið að koma með fína staði hingað og þangað um landið.. og við elduðum okkur bara frekar eitthvað en að borða ógeð

á sunnudaginn fann ég besta staðinn til að stoppa á
hann er (ótrúlegt en satt) í búðardal!

leifsbúð var með svo ógila góðan mat að ég vildi óska þess að staðurinn væri í reykjavík svo ég gæti borðað oftar þar

ég kann að meta svona

það er samt eiginlega ekki til neinn góður staður á leiðinni á akureyri, þess vegna finnst mér að netkærastinn minn ætti að opna serrano á nýju N1 stöðinni sem leysir brú og staðarskála af, svo fólk geti borðað hollan og góðan mat á leiðinni norður

kl. 17:57 | holla ( 6 )
15.
ágú

( 2008 )
ég elska líka bent og þetta lag


farin á kollabúðir ahhh besti staður í heimi



kl. 16:40 | holla ( 9 )
14.
ágú

( 2008 )
opee, uppáhalds rapparinn minn var að koma með nýjan banger
ég ELSKA opee og ég ELSKA þetta lag!

kl. 17:07 | holla ( 4 )
12.
ágú

( 2008 )
10.
ágú

( 2008 )
við sissi erum að setja eitthvað brúðkaupsmet
okkur er boðið í 6 brúðkaup í sumar. eitt eftir, það er í sept.
mættum í 4. í gær (við komumst ekki í eitt af þessum 6)

í þessum 4 athöfnum sem við höfum mætt í hefur lagið ást verið sungið, við erum að spá í að fá óttar proppe til að syngja það í kirkjunni þegar við giftum okkur. djók

ég myndi frekar fá palla til að syngja eitthvað af síðustu plötunni sinni (ekki það að ég sé að plana að gifta mig í kirkju á næstunni)

það var ótrúlega gaman, brúðurin var svo sæt og maturinn var góður og veislustjórinn var fyndinn og félagsskapurinn var frábær og ég var glöð eftir gay prædið

vagninn hans palla var svoooo fínn! og það var svooooo mikið af fólki og við vorum með gott spott og ég á skemmtilega og góða vini

kl. 23:13 | holla ( 3 )
7.
ágú

( 2008 )
nú hefst leikurinn "HVAR ER KATRÍN???"

til að gera þetta pinku erfiðara eru myndirnar ekki í réttri röð og ég passaði mig að setja ekki týbískustu sjónarhornin..

þeir sem voru með í ferðinni eða eiga staðina mega ekki svara:)

1 Bolungavík á Ströndum - Kristín



2 Látrabjarg - Jón B



3 Krossnes - Helgi G


4 Djúpavík - Jón B


5 Surtarbrandsnáman í Stálvík - Gunnare


6 Húsavík - Hanna Mjöll




7 Ásbyrgi - Hanna Mjöll


8 Dettifoss - Jón B


9 Fjallsárlón - Helga



10 Akureyri - Kolbrún




11 Ingólfshöfði - Jón B


12 Sænautasel - Gísli


13 Námnaskarð (Hverir) - Hanna Mjöll


14 Dimmuborgir - Hanna Mjöll


15 Barðaströnd, Skor - Kolbrún



16 Af fjallinu Ernir, horft yfir Furufjörð og yfir á Drangajökul


17 Reykjafjörður á Ströndum - Kristín


18 Svartifoss í Skaftafelli - Jón B


19 Seljalandsfoss - Jón B


20 Kröflusvæðið (Leirhnjúkur) - Jón B


21 Gljúfrabúi (leynifossinn rétt hjá seljalandsfossi) - Sólin


22 Þaralátursfjörður

kl. 23:55 | holla ( 32 )
og sorrí með mig en mér finnst þessi gæi eitt mesta fífl sem hefur komist í fréttirnar.. þvílíkt bíræfinn náungi. oj

svo fara þessar nærridauðareynslu fréttir hans bubba í taugarnar á mér

kl. 22:03 | holla ( 0 )
ég hef ekki horft á sjónvarp síðan ég man ekki hvenær en datt inná kastljósið áðan

þar var rætt við fólk sem hefur átt í erfiðleikum útaf kreppunni og frosti á fasteignamarkaði blablabla

ok það var rætt við konu sem stækkaði við sig og bjóst við að selja hina íbúðina sína strax en svo seldist hún ekki og konan situr uppi með tvær íbúðir
hún gaf auðvitað ástæðuna að fasteignasalinn hefði sagt henni hún gæti strax selt hana (hvað átti hann að segja? þetta selst aaaaldrei)

æi mér fannst þetta pinku sjálfskaparvíti og finnst það hefði frekar átt að ræða við fólk í alvöru vandræðum..

kl. 21:20 | holla ( 6 )
4.
ágú

( 2008 )
ég er komin heim og enn á lífi
það munaði samt mjóu þegar við löbbuðum eitthvað djöfuls einstigi í snarbrattri hlíð stálfjalls á barðaströnd. ég hélt að þar gengi ég mín síðustu skref og myndi enda dauð í skriðu 200metrum neðar.
sá samt í staðinn inn í surtarbrandsnámur svo það var þess virði

við gerðum svo ótrúlega margt skemmtilegt og veðrið hefði ekki getað ferið betra! það var logn næstum allan tímann, alveg ótrúlegt logn, uppi á fjöllum og allstaðar.. sléttur sjór... og heitt, stundum of heitt og ég er tönuð.. var brunnin

ætlað setja inn vel valdar myndir við tækifæri, nú tekur við raunveruleikinn
byrjuðum á að setjast inn á mál og menningu, drekkandi kaffi... svo skoðuðum við í búðarglugga, ég ætla að fá mér kjól og nýja skó! djö á ég skilið fínt eftir öll afrek frísins

kl. 23:33 | holla ( 5 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox