Katrín.is
30.
jún

( 2008 )
jeez
ég ætlaði að gera fiskabúrið mega flippað áður en sissi kemru heim, keypti nýja steina í botninn og nýtt veggfóður í bakgrunninn

var svo heví að mixa þetta áðan og var helv langt komin þegar ég braut búrið

ÉG BRAUT BÚRIÐ!!!!!! (sex upphrópunarmerki)

fiskarnir eru núna í skálum og fötu...


ég hresstist samt við þegar sissi sagði þetta væri ekkert mál og ég myndi bara kaupa nýtt búr á morgun... svo sagði ég halla THE BEST STORY EVER! í símann úff hún er um handbremsu og er svo fyndin að við vorum bæði með tárin lekandi og sveitt af hita og fyndi

og já sigurjón hún er EVEN BETTER en krem fressj sagan

kl. 23:15 | holla ( 11 )
28.
jún

( 2008 )
nennti ekki út í rokið og kuldann í laugardalnum en er að horfa á tónleikana með öðru auganu á netinu (tæknin maður)

ég sagði í fréttablaðinu um daginn að ég fílaði að svona frægt fólk berðist fyrir einhverju sem skiptir máli.. frábært að hafa tækifæri til að ná til svona margra með þau málefni sem skipta mann máli.

en sko.. gluggaði í draumalandið í vor.. mér fannst bókin bara svo hræðilega leiðinleg og pinku vitlaus/asnaleg og andri snær alltaf að rembast við að vera sniðugur.. varð fyrir heljarinnar vonbrigðum því það var svo mikið hype í kringum þessa bók þegar hún kom út... kannski er hún barn síns tíma??

eða kannski er hún eitthvað lituð af því sem fer mest í taugarnar á mér núna.. þegar fólki er skipt í tvo hópa.. soja latte hippa og bankamenn/fólk í jakkafötum

ég held td að bankamaðurinn minn sé búinn að ferðast meira innanlands en allir sojahippar til samans (nefnið mér td einn sojahippa sem hefur staðið uppá hraundranga, ok sojahippa sem er ekki vinur hans).. reyndar held ég bara að allir bankamenn sem ég þekki séu með náttúruvernd..

en mikið rosalega var þetta flott klippa úr myndinni

kl. 21:13 | holla ( 17 )
27.
jún

( 2008 )
ég fór í klippingu í vikunni og klipparinn klippti mig stutt
djö er ég að fílaða... ég er að fílaða svo mikið að ég er að spá í að púlla netkærastann og pósta mynd af mér með nýja hárið

kl. 21:21 | holla ( 13 )
25.
jún

( 2008 )

kl. 23:54 | holla ( 6 )
mm ég er búin að vera að gera margt svo skemmtilegt!

á laugardaginn fór ég í golf, ég man ekki í hvaða sæti mitt lið var en vá veðrið var svo gott, ég er með tvö mýbit en þau eru alveg totally worth it..





svo fór ég þaðan á þingvelli þar sem ég svaf í lautinni og borðaði grillmat matreiddan af sissa og hvar ég svaf svo meira... mjög mikið...


þaðan fórum við á sunnudaginn í valshamar þar sem sissi klifraði en ég tryggði.. ég nennti samt ekki að prufa sjálf..



þaðan fórum við í efra-nes að skoða folöldin, ó þau eru svo sæææææt,


sáum líka eldri hestastráka sem var verið að taka kúlurnar út, þeir voru í einu hólfinu að jafna sig.. greyin....


og fína graðfolann, i dig him, gafonum tvo mola!



svo er ég búin að vera í golfkennslu hjá röggu, hún sagði ég væri meðidda og þyrfti bara að æfa mig.. sko?? bíðið bara þar til í lok sumars!

og áðan fór ég á sex and the city, mér fannst hún skemmtileg.. fyndið ég er búin að vera að horfa á seríurnar núna og er hálfnuð með 4, carrie og miranda eru orðnar pinku gamlar í myndinni miðað við þá meðan charlotte og samantha halda sér mega vel.. samantha er ennþá uppáhalds

kl. 22:23 | holla ( 8 )
21.
jún

( 2008 )
sæææll hvað svanhildur er ekki að meika helgu brögu

TEAM HELGA BRAGA!

kl. 00:28 | holla ( 4 )
19.
jún

( 2008 )
hvaða pungur er að sjá um þessar myndafærslur á vísi?
dæmi um slíkar færslur

Britney bætir á sig eða barnshafandi - myndir
Mickey Rourke sækir strippstað - myndir
Kate Moss hneykslar í gegnsæjum kjól - myndir
Kate Beckinsale í sólbaði - myndir
Keanu Reeves og berbrjósta vinkona - myndir
Latexgallinn er þægilegur - myndir
Kærasta Hefners verslar léttklædd í matinn - myndir
Katherine Heigl sprangar um fáklædd - myndir
Naomi Campbell dauðadrukkin - myndir
Katherine Heigl síþreytt og sjúskuð - myndir
Heather Locklear í annarlegu ástandi - myndir
Playboystelpurnar styðja Lakers - myndir
Clooney vill ekki risa túttur - myndir fyrir og eftir brjóstastækkun
Pamela brjóstarhaldaralaus í Montreal - myndir
Ekkert mál að bera brjóstin - myndir
Lindsay Lohan sprangar um á bikiní - myndir
Pamela Anderson fær sér í aðra tánna - myndir
Christina Aguilera slettir allsvakalega úr klaufunum - myndir
Ásdís í Playboysetrinu - myndir


til lukku með daginn!

kl. 22:11 | holla ( 5 )
það var gaman í mílanó
það rigndi reyndar allan tímann en við keyptum bara fína regnhlíf

það var allt alveg agalega dýrt (mílanó kannski pinku 2007).. bæði af því búðirnar eru fínar og af því krónan er í ruglinu... við borðuðum rosalega mikið af góðum mat (borðuðum td á park hyatt og armani/nobu) og kíktum uppá duomo

radiohead tónleikarnir voru líka geggjaðir.. þó ég hafi bara þekkt helstu slagarana þá fannst mér samt gaman því sviðið var svo flott og tom er alveg rosalega góður söngvari

nokkrar myndir








æ svo var ég bara með einhverjar myndir af liði í gulum ponsjóum.. spurning um að reyna að fótósjoppa ponsjóin útaf áður en ég birti þær hérna??

kl. 21:57 | holla ( 9 )
14.
jún

( 2008 )
ok ok það var amk helmingurinn af listanum í afmæli bloggforsetans áðan, þeir eru allir seif! (og guð, ég gleymdi netkærastanum mínum á listanum, búin að bæta honum við núna, skammast mín ferlega)

og það var GAMAN í afmælinu! og ég fékk besta drykk sem ég hef fengið.. namm.. ananas... jarðaber.. þið náið myndinni, elska kokteila

en er núna að pakka fyrir mílanó á morgun og hmmm mér finnst eitthvað grunsamlegt við fötin sem ég er búin að finna til, ég er meira svona týpan sem pakkar niður 2 daga fyrir brottför, ekki rétt fyrir svefn

alveg held ég að það sé of margt af sumu og of fátt af öðru í staðinn.. fokkitt, þá bara kaupi ég mér nýtt! djók

kl. 02:42 | holla ( 1 )
13.
jún

( 2008 )
ÉG ER Í BLOGGUPPREISN!

ég er sko farin að skammast mín alltaf þegar fólk spyr hvort ég sé með blogg.. svara alltaf "jaaaaá.. eða sko ekki svona moggablogg..."


en ok í bloggtiltektinni minni þá ætla ég að setja föður bloggsins, björgvin inga, sem bloggstjóra

hann á að standa í bloggstjórahásætinu og velja út þá sem mega blogga

þeir sem ég legg til eru eftirfarandi: ég auðvitað (bloggprinsessan sjálf, enn í yfirlætisblogginu), eoe, gummijóh, árni hamstur, geirag, bre, unnur maría, már, arnarar, gunnare, bragur, froskur, muzak, skratti, potturinn, sigurjón, halli, maja (ekki endanlegur listi)

kl. 00:50 | holla ( 14 )
oh netið var svo miklu skemmtilegra áður en moggabloggararnir hálfvitarnir uppgötvuðu það

ég vildi óóóóska þess að netið væri eins og fyrir 5 árum... vildi að ég og hinir hipp og kúl óldskúl bloggararnir gætum búllíað pöpulinn í burtu

seriously.. það er bara ekki gott mál þegar svona margir fávitar fá að væla og ljúga og búllsjitta saman í kór

blogcentral/folk.is uppgötvunin var skárri því það voru bara úllíngar og svoleiðis að nota það.. moggabloggið er ógeð því það er stútfullt af slefandi hálfvitum sem eru nb fullorðnir.. fólk sem setur mál sitt ágætlega fram og gæti þannig mögulega verið að meika sens.. en bara veit ekki neitt og er bara að bulla.. og svo kemur hjörðin og er alveg "já þessi er svo klár, hann veit hvað hann er að segja".. oj ég æli smá uppí mig

búúúú á moggabloggið
áfram nagportal!!!

(þetta var yfirlætispistill mánaðarins)

kl. 00:31 | holla ( 3 )
11.
jún

( 2008 )
3 dagar í mílanó

sissi var eitthvað að tala um að mig vantaði fín föt og bauð mér til mílanó

djók, það er ekki þess vegna (en er ég ekki HEPPIN??).. hann er að fara á radiohead.. og ég með.. ok ég hefði reyndar valið frekar lil wayne eða nas.. eða kanye eða rihönnu.. eða bara usher..

en það sem ég legg ekki á mig fyrir gott veður, góðan mat, fínar búðir og frábæran félagsskap!

ég geeeeet ekki beeeeeeðið

kl. 15:37 | holla ( 6 )
10.
jún

( 2008 )
ohh ég er ennþá veik
hvaða fuckface verða veik á sumrin?
puuhhlease!
ég sem ætlaði í efra nes síðasta sunnudag að skoða folöldin.. tengdó eiga FIMM ný folöld
svo er mega veður þessa dagana, ég veit því ég heyri nágranana slá grasið sitt.. enginn fílíngur í að vera með hausverk og hor, ég er ekki að meika þetta, fokk mér líður eins og ég sé með ofnæmi dauðans, hausinn hundrað kíló, allt stíflað.. heyri ekki, finn ekki lykt og ekki bragð (guð aumingja ég!)

ég bakaði cupcakes.. og gat bara borðar oggulítið af þeim, ég er ekki svöng

og horfði á sex and the city
og how i met your mother
og arrested developement
og hard candy, hún er góð, ég elska ellen page, mig langar að eiga hana í vasanum mínum

sissi gaf mér fínt svona eye mask (hvað heitir það á icelensku?) í systrum, til að sofa með, af því það er svo bjart í cribbinu okkar

í þessari hálfri seríu 3 af satc sem ég horfði á, var carrie með 2 mismunandi þannig.. bæði svört.. annað með CB í glimmsteinum og hitt með DREAM í glimmsteinum... mér finnst mitt fínna

kl. 22:03 | holla ( 3 )
9.
jún

( 2008 )
úff ég er búin að hnerra meira en hans gerir í kaupmannahöfn á vorin

i shit you not!

ég horfði á i now pronounce you chuck and larry í gær
sú mynd ætti að vera sýnd sem kennsluefni um homma í grunnskólum
myndin fjallar á opinskáan og einlægan hátt um menn sem þykjast vera samkynhneigðir útaf lífeyrissjóðsdóti...

nú þekki ég nokkra homma og finnst mynd ná að captura ótrúlega vel veröld homma, öll hegðun þeirra og atferli og sérstaklega þegar þeir fara að versla hommalegt stöff til að geta verið með hommalegt rusl

sérstaklega gefandi líka að sjá hvernig vinnufélagar þeirra tóku þessu, vona virkilega að fullorðnir menn séu allir jafn auðmjúkir og skilningsríkir þegar vinnufélagar þeirra koma útúr skápnum

chuck og larry fá 5*

kl. 22:49 | holla ( 2 )
8.
jún

( 2008 )
jessss ég var að fatta svo frábært og verð að deila gleðinni
það er hægt að browsa vodið á netinu

netið?? netið er bara bóla!

ööönei

kl. 22:03 | holla ( 0 )
á föstudaginn fór ég í m16.. það er ekkert smá gaman mæli með því

ok myndin er ekki tekin við það tækifæri en er samt í sama fíling

í gær fór ég í brúðkaupsveislu í bláa lóninu.. glerið þar er þannig að það sést útum það en ekki inn
það var par gettin it on í lóninu fyrir utan

mig langaði að fara út og segja þeim að 200 manns sæju til þeirra, pirrandi að þau viti ekki af því


í dag er ég svo með hor og hita

kl. 16:05 | holla ( 6 )
5.
jún

( 2008 )
djö er gaman að vera þróttari í sumar
"Þróttarar gerðu sig frekar líklegri til að skora sigurmarkið og uppskáru það í blálok leiksins er Michael Jackson skoraði með skalla."


kl. 22:05 | holla ( 9 )
4.
jún

( 2008 )
hah ég veit hvar hún á heima

hún sendi litlar stelpur út með hundinn og ekki með neinn poka.. og ég böstaði þær að fara úr innkeyrslunni minni... nema ekki með skítinn með sér

greyið þær samt að lenda í þessu... hvaða hálfviti sendir krakkana út með hundinn og engan poka?

en hver er memmér í að hefna? he he he...

kl. 19:24 | holla ( 9 )
3.
jún

( 2008 )
ísbirnir eru sætustu dýr sem ég veit um og það eru bara til 20-25þúsund stykki af þeim

þarf í alvöru að sýna þessa hálfvita pósa með honum, mega stolltir eins og þeir hafi verið að vinna eitthvað ótrúlegt afrek?

þarf að sýna vídjó af því þegar hann var drepinn á mbl? og allar þessar myndir af lífvana birninum útötuðum í blóði






kl. 17:28 | holla ( 31 )
jájájá búin að vera að internetsjoppa í kvöld
búin að panta mér svefnpoka og bakpoka, svo ég sé nú klár fyrir sumarferðina
og svo óóótrúlega fínar hvítar burton bindingar með GULLI! af því ég er svo mega blinguð pía og hvítar gogglur, það er svo helv hagstætt að kaupa brettadót á sumrin

hlakka til þegar ég fæ dótið!!

kl. 00:23 | holla ( 4 )
1.
jún

( 2008 )
við gistum fyrir norðan hjá begga og pacasi sem eru að gera upp gistiheimili í hlíðarfjalli
namminamm það verður fínt þegar þeir eru búnir

svo löbbuðum við uppá kaldbak í gær í > 10 stiga hita og renndum okkur niður í fínu færi og mega fíling og nýja fína brettið mitt er svo ótrúlega fínt

í dag labbaði svo sissi uppá hlíðarfjall og renndi sér niður línu þar meðan ég sat á pallinum á einhverjum skíðaskála þarna og grillaðist

ég er pinku sólbrennd í framan

fínt hvernig er hægt að blanda saman sumri og snjóbretti heh!

það er líka gaman að keyra útá land á vorin, allt í lömbum og folöldum

kl. 23:09 | holla ( 9 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox