Katrín.is
31.
mar

( 2008 )
ég var á svo rosalegum körfuboltaleik, hvar ég gargaði ÍR þar til ég varð hás.. en þar sem þetta er jákvæða vikan þá ætla ég ekki að tala um hann.. og þó, ekki nema til að segja að stálið (fyrst hann er dyggur aðdáandi þessarar síðu) hefði átt að vera meira inná í restina og reynsluboltinn hann bróðir minn á að vera alltaf inná (finnst mér)

svo er ég í svo miklu vorskapi... tók hellings til í gær og bónaði bílinn áðan! eþs ég horfði á einhverja maskínu bóna bílinn minn... en ég ætla samt að handbóna hann sjálf í sumar... hann er orðinn næstum eins og nýr!

kl. 23:01 | holla ( 5 )
30.
mar

( 2008 )
vegna kreppunnar ætla ég að koma með eitt fjármála tips hérna, það er reyndar ekki frá mér komið heldur úr feng shui bók sem ég á

To enhance financial prosperty, always keep the toilet lid down when not in use. If the lid is up you risk flushing your profits down the drain. In addition, the bathroom door should always remain closed.

kreppan er samt on.. nóatúnsaðdáandi númer eitt (ég) fór í krónuna að versla.. ég varð reyndar strax fyrir smá sjokki þar sem það var ekki til spínat og ég vissi ekki hvar neitt var (fann td ekki heldur tómatpúrru) en þetta var fínt.. held hér með klósettsetunni niðri (ok þarf reyndar ekki að breyta neinu) og versla í krónunni eins og ég get... næsta skref verður kaaaaannski að dæla sjálf bensíni


kl. 23:11 | holla ( 16 )
28.
mar

( 2008 )
helv halli minntist á boney m
síðan þá er brown girl in the ring búið að óma í hausnum á mér

brown girl in the ring tra la la la la

reyndar varð boney m fyrir smá truflun áðan þegar ég fékk alltí einu júróvissjonlagið hans jónsa á heilann.. ég vissiggi einu sinni að ég kynni það!

kl. 17:59 | holla ( 9 )
27.
mar

( 2008 )
ég átti leið í laugar áðan og ég fékk menningarsjokk
ógeðslega stórt og viðbjóðsleg svitafýla í loftinu
og lætin maður!! ég varð alveg stressuð á að standa þarna í 5 mínútur í hávaðanum af 200 hlaupabrettum.. og í svitafýlunni... ojj

ég er núna ennþá ánægðari með splunkunýja fína gymmið mitt (sem ég ætla ekki að nefna hér af því ég er ekki á neinum sér díl þar)

kl. 21:32 | holla ( 10 )
tókuði eftir því að í dag náði ég í annað skipti að verða forsíðustúlka??
ég var nottla einu sinni framan á fókus og svo var ég framan á 24stundum í dag
- check it

kl. 18:08 | holla ( 8 )
26.
mar

( 2008 )
ég myndi vilja sjá vilhjálm bjarnason og egil helgason deita
ég held þeir myndu smellpassa saman

kl. 21:22 | holla ( 4 )
mig var búið að dreyma um að fara til danmerkur þegar færi að vora (danmörk er best á vorin.. þeas þegar ekki rignir)
draumurinn varð að veruleika

nema það eru tveir gallar á gjöf njarðar
1) þetta er í herning.. ekki köben
2) þetta er í apríl en ekki maí

en ég hlakka til, gaman að fá að spila við (hin) bestu liðin í evrópu

kl. 19:05 | holla ( 8 )
25.
mar

( 2008 )
hvað er að frétta með þessa ógeðslegu low life viðbjóðs hundaeigendur sem hirða ekki upp skítinn eftir rakkann sinn?

"jájá skíttu bara í garðinn hjá þessum eða innkeyrsluna hjá þessum.. það er fínt, svo löbbum við bara áfram"

ég hlakka til þegar ég bösta einhvern að láta hundinn sinn skíta í innkeyrsluna

þá mun ég gleyma því í eina mínútu hversu viðbjóðslega viðurstyggilegur hundaskítur er (samt bara huggulegur í samanburði við svona ógeðslega hundaeigendur) og takann og klína framan í fávitann..

i kid you not

miðbærinn er nógu ógeðslegur fyrir, það þarf ekki að bæta á það með hundaskít útum allt.. mér finnst það ætti að lóga hundaeigendum sem taka ekki upp skítinn ef þeir eru böstaðir... í alvöru, fólk sem sér ekki sóma sinn í að láta hundinn sinn skíta í þeirra eigin garð eða meikar ekki að taka upp skítinn getur ekki verið að sjá vel um hundinn

kl. 18:15 | holla ( 19 )
ég fór og gisti í tvær nætur í efra-nesi
eins og fram hefur komið áður þá elska ég efra-nes.. hlakka svo til að fara þangað þegar vorar og skella mér í pottinn og svona
tókum mega mega langan göngutúr á sunnudeginum

reyndar löbbuðum við sama hringinn og ég "hljóp" forðum
nema hringurinn var ENN lengri núna.. ég var að örmagnast úr þreytu nema þarna niðri við hvítá er allt í fokkíng þúfum og ekkert spes að leggja sig í grasinu


reyndar er þessi mynd töluvert sniðugri þegar hún snýr svona

þarna gæti ég verið sitjandi með með hausinn í kjósinni mhemhemhe

talandi um það.. hvers konar fólk á hjólhýsi og notar hauskúpu sem öskubakka? hauskúpu sem viðkomandi hélt að væri af dýri en næsti maður fattaði um leið að var af manni..?

aftur að efra-nesi..sumir voru reyndar ekki að meika hvað ég var lítið að meika að gönguskórnir mínir yrðu drullugir! hey drullugir skór eru no-no... gönguskór eða götuskór skiluru

ég afrekaði það að klára sálminn um blómið og byrja á draumalandinu... mér finnst hún ekki skemmtileg... andri snær er eitthvað svo mega að reyna að vera sniðugur.. ég ætla samt að lesa aðeins lengra, ég las hana aldrei fyrir 2 árum þegar hún varð einskonar bifflía hérna

ég vann líka í spili sem heitir eitthvað skt peterburg.. eða hvað.. ég man það ekki... en það snýst um að græða pening og eignast menn... sem ég myndi segja að væri minn heimavöllur.. þau áttu allllldrei sjens;)

sumir sáu uglu.. ég á það inni

og mannaveiðar eru spennandi.. þvílíkt stjörnulið leikara.. í hvaða þætti ætli hilmir snær sýni á sér typpið? "uu ég sé hérna tækifæri.. hérna í fínasta fundarherberginu á kirkjusandi, þá er viðeigandi hérna í þessu atriði að hérna.. ég fari úr að neðan.."

en það sást samt í rassaboru í fyrsta þætti, gat ekki annað verið í íslensku efni:)

svo skil ég ekki af hverju fólk tekur þátt í svona nafnlausum umræðuvefum á netinu... ég nota eitt svona spjallborð og kem þar bara undir nafni.. ég hef nefnilega 3x getað spottað hver er á bakvið nikk á svona vef og komist að meiru en viðkomandi vill að ég viti um sig.. í eitt skipti var mér reyndar sagt frá nokkrum notendanöfnum sem viðkomandi notar á spjallvef og í tvö skipti fattaði ég alveg sjálf

eða kannski er ég bara svona mikill spæjó?? og mannaveiðari??

mamma, pabbi og arnþór komu með kjól og 2 fín fín leggings handa mér frá berlín.. hlakka svo til þegar kemur meira sumar og ég get notað jeij


kl. 00:04 | holla ( 4 )
21.
mar

( 2008 )
mér finnst alltaf svo gaman að sjá fræga íslendinga hjá perez hilton

enn ein myndin af ingólfi guðbrands og ásdísi rán
(sorrí fífa, þetta hættir aldrei að vera fyndið)

kl. 23:27 | holla ( 3 )
mér finnst svo agalegt að fólk skuli láta krossfesta sig útí heimi á föstudeginum langa

man alveg eftir myndum úr fréttum af þessu síðan ég var krakki

haha meðan ég var að blogga þetta fékk ég á heilann "iiiiim cruuusifiiiiiied" í flutningi sigurjóns kjartanssonar sem jesú

kl. 23:09 | holla ( 4 )

ég er með hvítustu lappirnar í landsliðinu
spurning um að fara í tankennslu hjá gazman eða gillz?

kl. 18:50 | holla ( 6 )
20.
mar

( 2008 )
ég var öllu hressari í kvöld svo sissi tók mig út í bíltúr
einhver var búnað gefa hannesi banana:)

kl. 01:02 | holla ( 9 )
18.
mar

( 2008 )
arg ég er aftur farin að fá krampa í tá nr 2
kl. 23:57 | holla ( 5 )
þrollaheft


eitthvað rosalega fyndið


jazz hands


í hellaskoðun


kl. 17:35 | holla ( 9 )
það fer að verða frekar vandræðalegt fyrir aðra stráka hvað mínir eru alltaf góðir við mig...

...hans orri kom færandi hendi í hádeginu með lunch úr delí.. nammmmmm

svo var líka gaman að hittann því ég hitti aldrei nokkurn skapaðann mann lengur því ég er alltaf á æfingu

annars er ég búin að eyða deginum í að horfa á hina frægu mynd notebook.. ókei.. doooolítið langdregin

kl. 16:31 | holla ( 2 )
17.
mar

( 2008 )
margir héldu að dv hefði náð botninum í blaðamennsku hérna um árið en það var rangt

þetta er all time low

hvaða fólk er þetta líka?? myndin er tekin 10. og þegar viðtalið er 17. þá er ekki enn búið að þrífa slefið en bara teppi sett yfir

OJ!

kl. 23:27 | holla ( 14 )
ojjjj ég er lasin

ég hata ekkert meir en að vera lasin.. whyyyy meeee???? ég er búin að byrgja mig upp af allskyns engiferdóti og svo strepsils.. ég hef óbilandi trú á strepsils..

ég er búin að vera frekar lystarlaus í dag en áðan fékk ég mega kreivíng í grillaða samloku með kokteilsósu.. svona eins og pabbi gerir

sem er doldið fyndið því ég borða svoleiðis kannski svona 1x á ári.. minnti mig á mega veikindatímabilið mitt í danmörku (skarlatssótt) þar sem ég þráði ekkert heitara en remúlaði.. oj ég borða ekki einu sinni remúlaði..

en þar sem ég eyðilagði samlokugrillið okkar um daginn þá fór sissi fyrir mig á vegamót og sótti grillaða samloku með osti og sinnepssósu, næsti bær við!

kl. 23:18 | holla ( 5 )
16.
mar

( 2008 )
það var ánægjulegt™ að sjá lillu heggu hjá evu maríu áðan
þórbergur er alveg uppáhalds rithöfundurinn minn og ótrúlega gaman að heyra litlu manneskjuna sjálfa segja frá honum og þeirra samskiptum

líka gaman að sjá vídjóklippur og myndir:)

kl. 22:06 | holla ( 9 )
mér finnst búið að hlakka svoldið í mörgum yfir vandræðunum í fjármálaheiminum.. sá svo í fréttablaðinu í dag að ég er ekki ein um að finnast það

egill helgason er einn þeirra, hann þreytist ekki á að tala um að "bankabólan sé sprungin" og "litlu guttana" (það eru samt líka konur að vinna í bönkum) og svo er hann líka með sérlegan áhuga á að reka spár greiningadeildanna oní þær... ókei sorrí með mig en mér finnst orðið spá fela í sér að þetta sé ekki heilagur sannleikur og ég held að greiningadeildirnar geri sér alveg grein fyrir að þetta geti ekki verið alltaf rétt

bara á forsíðunni hjá honum núna má finna þetta og þetta..

svo eru nottla óteljandi dæmi meðal moggabloggara.. skil svosum alveg að fólk sem hefur lent í vanskilum og yfirdráttarveseni og svoleiðis sé eitthvað súrt útí bankana

en það svo er líka það að það er ekki eins og það séu bara auðmenn að tapa á lélegu gengi á hlutabréfamörkuðum.. hvað ætli það hafi verið mikið af venjulegu fólki sem keypti síðasta sumar?

mér finnst fólk líka pinku gleyma hvað þessi útrás bankanna er búin að skapa ótrúlega mikið af flottum störfum fyrir ungt fólk. get sem dæmi nefnt mig, að koma heim úr mastersnámi árið 2005 og geta valið úr fullt af gæjalegum störfum er alveg meiriháttar en ég get líka séð að það snerti ekki fólk sem hefur ekki haft sömu tækifæri (og ég td) til að mennta sig

EN bottom lænið og það sem ég vildi helst segja um þetta er að þessi hlökkun og rúnk er það sem mér finnst svo ótrúlega ömurlegt, vegna þess að kreppa og samdráttur bitnar fyrst og langmest á láglauna fólki

kl. 12:57 | holla ( 5 )
12.
mar

( 2008 )
ok arnar grant tók eitthvað kast og braut rúðu á bíl sem var lagt í stæðið hans, til að geta fært hann

ég verð að segja að ég get svoooooo vel skilið hann! það gerist stundum (of oft) að ég kem heim til mín og það er bíll í innkeyrslunni minni.. þá líður mér nákvæmlega eins og honum hefur liðið þarna

helst langar mig að hringja í vöku og láta draga bílinn í burtu en það tekur yfir klukkutíma að fá bíl þannig yfirleitt verð ég að láta mér nægja að REYNA að finna annað stæði í götunni (sem er aldrei hægt) og skilja eftir miða á rúðunni hjá viðkomandi

OJ þetta er í alvöru það sem fer mest í næst mest taugarnar á mér í lífinu
(á eftir staðreyndinni að reykingafólk lítur ekki á stubbana sem rusl)

kl. 20:15 | holla ( 7 )
ég var búnað hugsa hver það er sem ásdís rán minnir mig svo á og í dag rann það upp fyrir mér

hún er coco (konan hans ice t) nema nokkrum árum fyrr





þið sjáið allt í hvað þetta stefnir á næstu 10 árum

ef ég fyndi þá myndi ég pósta hérna mynd af ásdísi í brúðarkjólnum sínum sem var slutty... slutty brúðarkjóll er fyndnasta konsept sem ég veit um.. hann var svona með blúndum niður eftir allri hliðinni svo það sást að hún var nærbuxnalaus

kl. 18:05 | holla ( 5 )
11.
mar

( 2008 )
ég var ekki að skilja af hverju það er svona vont að kyngja
vísindavefurinn var með svarið


mikið óskaplega er ég fegin þá að vera ekki með hálskirtla núna.. það væri ábyggilega svipað vont að kyngja núna og það var rétt áður en þeir voru teknir, þegar ég vaknaði á næturnar í hvert skipti sem ég kyngdi - good times

kl. 19:19 | holla ( 2 )
ég get ekki sagt að reynir trausta sé í miklu uppáhaldi hjá mér
kannski er það bara pervertahatturinn, kannski æsifréttamennskan... en svo er hann líka bara svoldið steiktur
26. feb skrifar hann um gauk og ómar
"Dómur undirréttar yfir Gauki Úlfarssyni markar þau tímamót að loksins hefur verið tekið á netníðingum sem þykjast mega láta allt flakka á netsíðum. Gaukur er af þeirri gerð netníðinga sem blogga undir eigin nafni og telja sig vera hafna yfir meiðyrðalöggjöf og siðareglur hverskonar."


4. mars skrifar hann pistil titlaðan "ógeðfelld málsókn auðmanns" þar sem hann talar um hversu ógeðslegur jón sé að sækja hannes hólmstein til saka fyrir að skrifa á heimasíðuna sína að jón hafi lagt grunn að fjárhagsveldi sínu með sölu eiturlyfja



hann reynir (haha) í restina að útskýra muninn á þessum tveimur málsóknum en ég sé það ekki..

kl. 19:11 | holla ( 6 )
10.
mar

( 2008 )
ég er svo hörð samningapía

gerði samning við sissa þess eðlis að ég spilaði við hann eina skák og í staðinn fengi ég ilmvatn úr systrum

ég valdi mér bestu lykt í heimi, það var samt ekki hægt að gera upp á milli.. ég þorði ekki einu sinni að þefa af öllum, þá hefði ég dáið úr valkvíða..

ég er varla búin að gera annað en að þefa af sjálfri mér síðan ég fékk þetta áðan namm!

kl. 23:37 | holla ( 13 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox