Katrín.is
29.
feb

( 2008 )
það er svo gefandi að lesa moggabloggið... rétt í þessu lærði ég tvö ný orð:
* græðgisvæðing
* ofurjeppar

ofurjeppar er samt í meira uppáhaldi þar sem viðkomandi tókst að blanda saman tveimur af uppáhalds umræðuefnum pistlahöfunda (og moggabloggara) sem eru ofurlaun og range rover

ofurjeppar... i like

ég fór í klippingu í dag, klipparinn minn gerir mig alltaf svo sæta, það er no joke! ég held ég verði sætasta stelpan undir sextugu á grillinu á sunnudaginn (og jafnvel sú eina?)

kl. 23:27 | holla ( 1 )
ég horfi næstum aldrei á sjónvarp en einar örn benti mér á að horfa á bloggaraumræðurnar í kastljósi

ókei ég horfði á þetta með öðru auganu, meikaði bara ómögulega spandera báðum í þetta

salvör moggabloggari er bloggari vikunnar

þa best a sei ekki meir..maður getur bara verið kærður..

en samt.. þegar hún fór að sýna vídjófærslurnar sínar minnti það mig ótrúlega mikið á fóstbræðraskettsjana með gæjunum sem eru í vídjóskóla "halló mammog pabbi, nú er ég í framtíðinni... en samt er ég hér.."

þeir eru ss búnir að tala við jens guð, sem er moggabloggari og þal örugglega leiðinlegur og salvöru

þá vantar bara að tala við þeirra eigin simma og þarna jón val jensson.. þá er búið að stikla á stóru í lista leiðinlegustu bloggara landsins

kl. 00:28 | holla ( 10 )
27.
feb

( 2008 )
æ æ æ friðrik ómar búinn að hlakka til að fara á júróvissjon síðan hann fæddist og nú er honum ráðið frá því að fara

ég held við verðum að senda dr. spock í staðinn

(oj ég moggabloggaði... oj moggabloggið er búið að eyðileggja allt fyrir mér, ég get ekki lengur bloggað um neitt á mbl án þess að fyllast viðbjóð og skömm..)
jess fréttin kom líka á vísi, gat tengt inná þá frétt frekar

kl. 22:12 | holla ( 2 )
umboðsmaður sólarinnar að selja bílinn sinn?

kl. 22:03 | holla ( 7 )
26.
feb

( 2008 )
þetta komment er bara svo mikil snilld að það verður að skjalfesta

"Á google.is er einhver sem setur allar níðgreinar um mig inn. Hver nennir þessu ?"
- jónína ben, 26. febrúar 2008

kl. 19:05 | holla ( 11 )
24.
feb

( 2008 )
þetta stunt ásdísar minnir óneitanlega á það þegar chloe ætlaði að taka þátt í einhverju raunveruleika sjónarpi sem átt að vera tækifæri lífs hennar...

...en endaði bara á júllunum í einhverju vídjóið að tala um að "sulla í kakókinu... eða stir in the cocoa"

kl. 15:39 | holla ( 8 )
23.
feb

( 2008 )
ég hélt með bróður hennar apamömmu og félögum í merzedes club

næstmest hélt ég með friðriki ómari og regínu, þrátt fyrir að vera mega ósátt við að hann hefði dömpað guðrúnu gunnars

en það er tvennt sem þarf að kunna þegar tekið er þátt í keppni... í fyrsta lagi þarf að kunna að tapa, sem er eitthvað sem friðrik ómar kann ekki (tók því ekkert spes þegar hann tapaði í fyrra) en svo er annað sem heitir að kunna að vinna... sem friðrik ómar kann ekki heldur

að koma með svona ódýrt skot á andstæðinga sína um leið og tekið er við verðlaunum finnst mér ótrúleg vanvirðing við keppnina og eitthvað sem silvía nótt myndi gera...nema hvað friðrik ómar er ekki að grína..


oj hvað hann og þetta lag fer í taugarnar á mér núna

kl. 23:37 | holla ( 10 )
slökkviliðið var í gymminu áðan og ég varð fyrir engum smá vonbrigðum

ég bjóst við þessu

kl. 18:48 | holla ( 2 )
ég var að lesa einhvern pistil eða bankþanka eftir einhverja píu í fréttablaðinu þar sem hún tjáði öllum að hún hefði sko sagt manninum sínum að hún myndi hætta með honum ef hann gæfi henni blóm á konudaginn

pistillinn fjallaði ss um það að það væri ömurlegt að hafa einhvern ákveðinn dag til að vera rómantískur á og hún vildi frekar það væri spontant BLABLA

ókei.. mér fannst þetta svo tíbísk umræða um konudag/bóndadag/valentínusardag þar sem fólk sem fílar ekki þessa daga talar þá eins og fólk sem vill halda þá "hátíðlega" geti ekki verið rómantískt aðra daga líka..

eins og þetta skiptist í tvennt
þeir sem eru rómantískir ægilega oft, allan ársins hring (nema kannski þessa daga til að vera ekki jafn hallærislegur og pöpullinn)
þeir sem eru rómantískir þessa ákveðnu daga og alls ekki aðra daga

skil ekki af hverju má ekki bara gera bæði?

kl. 12:30 | holla ( 8 )
22.
feb

( 2008 )
strákarnir eru allir búnir að fá sér twitter
ég er ekki að ná what the fuzz is about þannig ég varð nottla að prófa

fíla samt það sé hægt að customæsa

kl. 21:29 | holla ( 2 )
uppáhalds rexið mitt og besta vinkona í heimi á afmæli í dag

í landsliðsbúningunum (mynd arnaldur)


í hollandi í síðustu viku


og svo eina sem var tekin fyrir ca 5 árum


í tilefni dagsins gerði hún sér lítið fyrir og komst í undanúrslit á austurríska mótinu.. ég er svo montin af henni!!

kl. 16:57 | holla ( 3 )
maja er svoooo góð!
ég held hún hafi vorkennt mér svo mikið í einmanaleikanum að eina sem henni datt í hug að gæti glatt mig, væri að hitta fyndnustu menn í heimi

þeir eru fyndnari en í klovn!!!

kl. 00:05 | holla ( 8 )
20.
feb

( 2008 )
punktablogg

* nýju hlaupaskórnir mínir eru svo fínir að ég tími ekki að fara út í þeim... labba bara í þeim heima..
* mér finnst ógeeeeeðslega leiðinlegt að vera ein heima
* og það er ekki eins og hann sé á næsta bæ
* sem betur fer erum við með kerfi, ég er að drepast úr myrkfælni
* búin að taka til í svefnherberginu (það var stöff hérna síðan ég kláraði að flytja af ránargötu)
* búin að skipta um vatn hjá fiskunum... og ryksuga...
* grand hótel er orðið ótrúlega flott
* reykjavík á 570 íslandsmeistara 2007
* ég verð í GO í sumar, hver vill spila við mig?

kl. 22:50 | holla ( 7 )
19.
feb

( 2008 )
það er fólk át ðer að rukka lunga og lifur fyrir að krakka iphone fyrir almúgann
mér finnst það nokkuð spes þar sem annað fólk er búið að eyða heeeellings klukkutímum í að búa til helv krakkið og hendir því svo bara á netið ókeypis.. fyrir alla
mér finnst þetta í raun pinku eins og að selja einhverjum open source hugbúnað..

ég hef reyndar sjaldað orðið eins hneyksluð og þegar ég heyrði að fólk er að rukka fyrir þetta.... ég á vin sem hefur krakkað ca 20 iphona ókeypis, þar með talið fyrir vini vina og vini vini vina og frænkur samstarfsfólks og allskonar..

þess vegna kem ég réttlætinu til bjargar!! (sækjast sér um líkir skiluru)
hér er ný plug n crack aðferð sem allir, líka pinku tölvuheftir, geta púllað sjálfir

spread the joy.. sjáum til þess að rukkarrnir þurfi að fjármagna pizzur og kók sjálfir, ekki með hagnaði af annarra manna ókeypis stöffi

og fyrst við erum komin útí open source pælinguna, þá langar mig að benda á gimpshop... fínasta myndvinnsluforrit fyrir þá sem eru að sjóræningjast með photoshop

kl. 17:53 | holla ( 10 )

kl. 01:18 | holla ( 3 )
18.
feb

( 2008 )
ég skammast mín pinku fyrir að viðurkenna það.. en ég var ekki búin að mæta á ÍR leik í allan vetur.. aðallega samt af því eitthvað fokkfeis raðaði næstum öllum leikjunum á sama tíma og æfingar hjá mér...

en ég valdi heldur betur leikinn til að (skrópa á æfingu og) koma með "kombakk"... horfði á ÍR vinna KR áðan.. ég var búin að gleyma hvað það er ógeeeðslega gaman að horfa á ÍR vinna.. og svo er eiginlega næstskemmtilegast að vinna KR (á eftir keflavík auðvitað) þó ég haldi næstmest með KR

spurning hvort ég spari ekki bara nærveru mína þar til í úrslitakeppninni??

kl. 23:23 | holla ( 5 )
í gær var ég að fara á óliver... og rétt áður en ég var beðin um að taka af mér húfuna (ég hefði nottla ekki fattað sjálf að taka af mér húfuna þegar ég kom inn) þá var einhverjum dela hent út af dyravörðum og beint á tána á mér!!!!

svo stal einhver kápu af vinkonu minni!! hverskonar óþjóðalýður er þarna??

viss um að baddi rugl stendur fyrir þessu öllusaman...

kl. 00:05 | holla ( 8 )
17.
feb

( 2008 )
ég held pistlahöfundar í fréttablaðinu minnist á range rover amk annan hvern dag

kl. 15:02 | holla ( 4 )
16.
feb

( 2008 )
transport eftir 20 mín
jeij!

okkur gekk samt nokkuð vel.. tókum ítalíu 3-2 sem var helvíti flott.. og svo wales 5-0... og töpuðum svo fyrir þýsku pjullunum 5-0.. úff þær eru hrikalega góðar

hefði verið gaman að vera með einhverjum aðeins slakari í riðli... samt flott að vera í 8-14 sæti í evrópumóti

hlakka ó svo til að fara heim! er reyndar ein heima.. það er hræðilegt! en ætla að kíkja í cribbið hans hansa á eftir, ótrúlega spennandi að sjá hvað það er orðið fínt!!!

við rex erum búnar að horfa á heila seríu af californication og nánast búnar með my so called life.. vel gert?

kl. 09:17 | holla ( 10 )
9.
feb

( 2008 )
djö er ég viðbjóðslega heppin
honum sissa fannst ekki hægt að ég væri að fara út að keppa með gamla týpu af nanó. þessi nýi er það fínasta sem ég veit! ég er búnað setja hellings af skemmtilegu inná hann, líka vídjó


sjáiði líka hvað landsliðið er fínt í nýju búningunum? vantar samt tryggva á myndina

kl. 14:28 | holla ( 13 )
8.
feb

( 2008 )
ujjj

glitnir á verðlaunaseríu í world press photo

vel gert!

kl. 22:34 | holla ( 1 )
7.
feb

( 2008 )
ég sá sweeny todd
sko... ég elska söguna... sá leikritið 2x þegar stúdentaleikhúsið setti það upp.. þá lék ylfa mín mrs. lovett... og hannes.. tja við getum orðað það þannig að johnny depp er enginn hannes...

þetta er enn þann dag í dag, skemmtilegasta leikhúslífsreynsla mín.. shit hvað ég hló mikið.. þegar beini fór yfirum og þegar friðgeir tók danssporið he he

bíómyndin var æææææði!! johnny depp er uppáhalds leikarinn minn, hann leikur bara í góðum myndum.. og tim burton er bara eitthvað útúr þessum heimi

allt var svo fínt.. og splatterið var allt gert pinku óraunverulegt og fyndið þannig það var ekkert ógeð..



hvernig nær johnny líka að vera ennþá svona heitur? gæinn er 45 ára..


svo fór ég á 3 frakka.. það er semi.. reyndar ótrúlega ólíkt mat sem maður fær á veitingahúsum.. það var alveg soðið blómkál og soðnar gulrætur.. fiskurinn var ágætur en sósan alltof þung.. og mikil... svo fannst mér maturinn eiginlega of dýr miðað við matinn sem maður fær á hinum stöðunum.. var bara örlítið ódýrari en þar..

þessi staður er örugglega fínn fyrir eldra fólk... sem fílar soðið grænmeti og mikla sósu

kl. 22:44 | holla ( 10 )
6.
feb

( 2008 )
mér finnst fínt að taka úr uppþvottavélinni.. alltílæ að setja í þvottavél og ganga frá þvotti.. sleppur alveg að ryksuga... það er reyndar leiðinlegt að hengja upp þvott og að moppa...

ég er samt búin að komast að því hvert mér finnst leiðinlegasta húsverkið.. eða það er kannski ekki húsverk, meira svona liður í því að halda heimili

mér finnst ógeeeeðslega leiðinlegt að taka bensín.. og leiðinlegasti hlutinn við það er að maður getur ekki sent gæjann sem dælir inn með kortið..

kl. 18:10 | holla ( 19 )
5.
feb

( 2008 )
þetta lag, í þessari útgáfu er búið að óma í hausnum á mér í allan dag



svo er mér farið að finnast svo leiðinlegt að blogga.. ég fæ meirað segja pinku sting í magann og langar til að segja nei þegar fólk spyr hvort ég sé ekki með "svona blogg"

fólk heldur að ég sé ein af þessum... þeas fullorðið fólk sem talar útúr rassgatinu á sér og tuðar yfir öllu

meirað segja yfir því að settar verði reglur um að opinberir starfsmenn megi ekki kaupa sér kynlífsþjónustu í opinberum ferðum.. og orðbragðið!

..vá hvað ég hélt það væri eitthvað sem myndi bara fljúga í gegn... í alvöru er það issjú? ef þeir vilja eeeeendilega vera að kaupa sér hóru, geta þeir ekki bara gert það í fríinu sínu?

kl. 22:57 | holla ( 9 )
4.
feb

( 2008 )
ég gleymdi að monta mig yfir því að á laugardaginn átti ég fyrirsögn í dagblaði.. og það í fréttablaðinu sem er ábyggilega mest lesna blaðið

get strikað út eitt af "gera fyrir þrítugt" listanum...
...djók

þeas ég er ekki með svona lista

kl. 21:17 | holla ( 0 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox