Katrín.is
31.
okt

( 2008 )
ég las á netinu að það eru til 8 zik zak tískuhús búðir
hvar? af hverju? ég veit það er ein í grafarvogi (hehe) en restin? og af hverju vill einhver versla í kvenfatabúð sem notar mann í konufötum í auglýsingunum???

þetta er með því óskiljanlegra.. sama á við um að mogginn hafi sett frétt um að ásdís rán sé á forsíðunni á búlgörsku klámblaði á baksíðuna hjá sér

held mogginn hafi vaknað upp við þann vonda draum að áskrifendur væru á þeim aldri að þeir deyi innan tíu ára og ákveðið að reyna að verða eins og fréttablaðið..

kl. 17:08 | holla ( 18 )
29.
okt

( 2008 )
ef ég væri ekki svona yfirveguð og slök þá myndi ég púlla eitthvað svona á allt þetta vanhæfa fólk í ríkisstjórn (og pólitíska seðlabankastjórann)

kl. 23:35 | holla ( 11 )
28.
okt

( 2008 )
ég hef komið með þá kenningu áður að moggabloggsfólk viti ekki af bloggi utan moggabloggsins.. þetta sé bara einhver lokaður heimur hjá þeim

ég held meirað segja þegar fólk er að tala um blogg (eða blögg eða plogg) þá sé það að tala um moggabloggið (en ekki frábært og skemmtilegt og vitsmunalegt blogg eins og mitt)

mér finnst það reyndar gott, því ég vil bara hafa skemmtilega (og gáfaða) fólkið sem les mitt blogg og kommentar

en sko, ég er komin með svoldið sem styrkir þessa kenningu mína.. ég held, þeas ef ég man rétt, að þessi (oj ég þori varla að nefna) jens guð.. hafi verið keyptur yfir á dv bloggið um daginn..

hann er núna LÍKA með moggablogg, með náááákvæmlega sömu færslum, þar sem hann fær alltaf milljón knús og kvitt og faðm og broskalla, en ekki EITT komment á dv bloggið

- moggablogg
- dvblogg

kl. 22:40 | holla ( 17 )
ég er með svona límmiða á póstlúgunni frá póstinum um að ég vilji ekki fá ruslpóst fjölpóst

þeir sem telja sig yfir svoleiðis miða hafna eru til dæmis:
trúfélög
fréttablaðið
hverfasamtök (æi svona crap verndum miðbæinn blibli)
og pósturinn sjálfur



hversu ógeðslega leiðinlegar og ófyndnar auglýsingar er hægt að gera? ég er ekki að ná því hvernig þessar hugmyndir um póstauglýsingarnar voru ekki slegnar af borðinu áður en þær komust í upptöku

kl. 18:30 | holla ( 7 )
25.
okt

( 2008 )
gott kvöld með ragnhildi og singing bee eru hands down, vandræðalegustu þættir í íslensku sjónvarpi
kl. 20:42 | holla ( 20 )
reykjavíkurborg bauð uppá abba skate-along í laugardalnum í dag

það er fyndnasta hugmynd sem ég veit um!

kl. 19:19 | holla ( 0 )
22.
okt

( 2008 )
guðrún þóra hjaltadóttir, kennari... KENNARI! hún kennir í grunnskóla!
"Ég hef aldrei farið leynt með það, að vera Rasisti."

meira hér


oj manni verður óglatt af kommentunum... þetta moggablogg er mig lifandi að drepa, ég er að missa trúna á mannkynið!

kl. 18:51 | holla ( 32 )
21.
okt

( 2008 )
þetta er fyndnasta mynd sem ég hef á ævi minni séð


allir alveg eins og þrollaheftir.. nema stálið auðvitað, lookin like a model

kl. 21:47 | holla ( 3 )
20.
okt

( 2008 )
skil ekki hvað er í gangi þarna á dv.is
hvernig getur rassinn á töru reid vakið óhug?

ef maður leitar á dv.is að öðru sem vekur óhug þá eru þar td hópnauðganir, ungbarnamorð og fritzl málið allt

seriously, rassinn á töru reid kemst ekki nálægt þessu


annað sem fór í taugarnar á mér í dag var einhver frétt um viðtal við nýja bankastjórann hjá glitni þar sem fjallað var um að hún ætti bleikan síma og hringitónninn væri popplag en hún kynni ekki að breyta honum

allt til þess gert að gera lítið úr þessari konu og rýra trúverðugleika hennar.. í alvöru, það væri ALDREI fjallað á þennan máta um td sigurjón eða hreiðar má

kl. 19:08 | holla ( 10 )
...og þá kom vetur
kl. 18:23 | holla ( 0 )
17.
okt

( 2008 )
ég fór á útgáfutónleikana hennar lay low í gær
það var ææææði!

ég hlakka ekkert smá til að eignast plötuna, í fýsísku formi, mig langar nebla ekki að versla við tónlist.is (oj)

(líka af því bobby breiðholt gerði fínt)

kl. 22:02 | holla ( 1 )
15.
okt

( 2008 )
haha ég er búin að vera mjög pirruð í kvöld eins og sést á færslunni á undan og einhverjum kommentum sem ég hef látið frá mér

dr. house (ok hann sagði það kannski ekki fyrstur) segir að maður gangi í gegnum fimm skref sorgar (sorgin mín verandi ástandið í dag)

denial
anger

svo eitthvað þrennt.. ég held ég sé mitt á milli denial og anger heh..

kl. 23:56 | holla ( 3 )
ég gubbaði smá uppí mig

ég á sko katrin.blog.is af því ég vil ekki að einhver moðhausinn sé að tjá sig með MÍNU nafni á moggablogginu þannig ég fæ pósta frá þeim

þeir eru með nýja fídus (af því það er ekki nóg að kommenta hjarta eða knús á þig og dúllidúll)

"Bloggvinir geta nú sent hverjum öðrum faðmlag til að styrkja vináttu sín á milli. Þetta er gert á þann veg að notandi skráir sig inn og fer í framhaldi á bloggsíðu þess vinar sem senda á faðmlag. Í framhaldi er smellt á svæðið þar sem sjá má lista yfir bloggvini og þar er valin aðgerðin að senda faðmlag.

Bloggvinurinn fær í framhaldi tölvupóst með skilaboðum um að hann hafi fengið faðmlag. Ef óskað er eftir að senda faðmlag til baka er hægt að framkvæma það í þessum sama tölvupósti. Í stjórnborðinu er svo hægt að sjá alla þá sem sent hafa faðmlag og senda til baka.
"

kl. 22:03 | holla ( 12 )
12.
okt

( 2008 )
ég og hans förum árlega á mjög rómó deit
einu sinni fórum við í vitann í gróttu, annað skiptið fórum við í road trip á þingvelli.. svo höfum við líka farið og skoðað gullfoss í klakaböndum og geysissvæðið

í dag fórum við í road trip á þingvelli en það var ekkert voðalega rómo.. þannig við fórum í ferð útí viðey að skoða friðarsúluna

veðrið ótrúlega fallegt og mér finnst alltaf gaman að koma í viðey af því katrín frænka mín bjó þar, ég smellti mér því í miðkvistinn og horfði útum gluggann, ég veit nefnilega að herbergið hennar var þar sem miðkvisturinn var





ég held það séu svona ferðir út vikuna, ótrúlega gaman og ókeypis!

kl. 23:21 | holla ( 1 )
bloggheimar hafa aldrei verið skrítnari en nú.. nýjasta trendið er að básúna hvernig bloggari hefur hagað fjármálum sínum. mjög spes, nei alveg ÓTRÚLEGA skrítið

annars er ég markvisst búin að kötta úr readernum mínum dót sem ég nenni ekki að lesa.. skiliggi hvað fólk er til í að tjá sig mikið um eitthvað sem það les á moggablogginu veit lítið um og hefur takmarkaðan skilning á

þegar yfir lýkur sit ég öruggleg bara uppi með cuteoverload og einn moggabloggara

enda þetta á gleði af cuteoverload heh

kl. 19:18 | holla ( 5 )
besti og uppáhalds litli bróðir minn á afmæli í dag
hann er einn sá fyndnasti og skemmtilegasti sem ég þekki



kl. 11:05 | holla ( 7 )
11.
okt

( 2008 )
djöfull á þetta vel við,
ÉG ER HEMMI GUNN!

segið það bara hátt!

kl. 01:39 | holla ( 3 )
7.
okt

( 2008 )
mér finnst hari sem tekur myndir fyrir viðskiptablaðið taka flottustu blaðamyndirnar í dag

bæði fréttamyndirnar og uppstilltu myndirnar eru ótrúlega flottar

stundum fletti ég blaðinu bara til að skoða myndirnar hans...

kl. 18:46 | holla ( 15 )
5.
okt

( 2008 )
ég skil þennan svo vel.. ég held við gætum verið sálufélagar! ég veðja það eru einhverjar óþolandi framkvæmdir í hverfinu hans, þrýstiþvottur á kirkju eða einhver fáviti með loftpressu

kl. 22:59 | holla ( 0 )
katrín í svörtum englum á kærasta sem heitir sveinn!
ALVEG EINS OG ÉG!

kl. 18:18 | holla ( 4 )
3.
okt

( 2008 )
úff tyra banks er svo mikill snillingur
hún er ótrúleg!
í nýja þættinum eiga stelpurnar að túlka náttúrúhamfarir
m.a. traffic jam og blackout

"halló viðlagatryggingar, ég er föst í umferðasultu, getiði hjálpað mér?"

kl. 19:56 | holla ( 2 )
2.
okt

( 2008 )
helvíti var ég séð að vera (ennþá) með vetrardekk
kl. 21:46 | holla ( 2 )
viðskiptaráðherra er með ba í sögu og heimspeki
fjármálaráðherra er dýralæknir
seðlabankastjórinn er lögfræðingur
dr. gunni, hallgrímur helgason og bubbi morthens eru alltíeinu orðnir aðalsérfræðingar í krónu/efnahagsmálum í fjölmiðlum

kl. 19:24 | holla ( 11 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox