Katrín.is
31.
ágú

( 2007 )
hann sér alla vega alltaf sóma sinn í að hringja og biðjast afsökunar

dv-10.janúar 2006
fréttablaðið-31.ágúst 2007

(bannað að setja inn komment sem verða til þess að ég verði lamin)

kl. 08:18 | holla ( 3 )
30.
ágú

( 2007 )
ég fór með sissa á nýliðakynninguna hjá ársæli í gær..
ég er sko ekki að fara í nýliðaprógramið, var bara til að skoða.. rosa gaman að sjá allt dótið þeirra

oooog ég tek mig fáránlega vel út sem kapteinn á björgunarbát


kl. 09:36 | holla ( 0 )
28.
ágú

( 2007 )
hans orri says (14:53):
ég er alltaf stoltur þegar fólk heldur að þú sért kærastan mín

ótrúlegt en satt þá heldur fólk það oft.. we lovez it!

kl. 15:02 | holla ( 4 )
27.
ágú

( 2007 )
annars líst mér vel á þessa hugmynd að færa hluta af djamminu í úthverfin.. síðasta helgi var td góð með bolina bæði á pöpunum á players og á stuðmönnum á nesinu..

vantar bara að færa t.d. gaukinn, amsterdam, glaumbar, sólon, hverfisbarinn og celtic eitthvert úr miðbænum og þá getum við egill helgason tjillað í góðum fíling í heimabyggðinni okkar

kl. 18:06 | holla ( 4 )
fólk hefur verið að segja að ég tali ekki um annað en kærastann á þessu bloggi..

bara svona til að fyrirbyggja misskilninginn um að ég sé týpan sem þarf að básúna ágæti hins helmingsins all day everyday í almannaeyru til að sannfæra aðra (og sjálfa mig í leiðinni) um að hann sé sá rétti fyrir mig.. þá er það bara þannig að ég geri fátt þessa dagana án þess að hann sé með.. og svo var nottla superman stuntið hans um helgina eitthvað sem ég gat ekki sleppt að nefna af því það var svo totally awesome..

helginni eyddi ég samt án hans að mestu leiti en í staðinn með hinum manninum í lífi mínu.. við hansel fórum á astrópíu á föstudaginn.. við bjuggumst við að sjá eitthvað voða pínlegt en sáum frábæra mynd.. fáránlega mikið af fyndnum smáatriðum og þannig, ég hló allan tímann..svo er ragnhildur steinunn the hotness og stendur sig ótrúlega vel og nörda gæinn ógila kjút!



á laugardaginn tók hansor mig með í útreiðatúr. ég er með klassísku hestaharðsperrurnar í dag og myndi labba eins og kúreki ef ég væri ekki svona hörð af mér.. og um kvöldið kíkti ég í þrítugsafmælið hennar viggu þar sem halldóra sagði fyndið "þetta er samt næstum eins og að mæta á æfingu.." ææææi had to be there og had to æfa badminton

í gær fórum við í sund á selfossi og þar sá ég eitt það mest spes sem ég hef séð.. þar var miðaldra maður í bikinibuxum sem hefðu verið dónalegar á konu.. þær voru með neon strengjum á hliðunum og svo skræpóttum neonpjötlum að framan og aftan..

í afgreiðslunni heyrðum við líka fyndið.. einhver kúnni benti á grapewine og spurði afgreiðslumanninn hvaða blað þetta væri.. og hann svaraði "æi eitthvað hommablað"

classic

eftir það fórum við við fjöruborðið, sem var algjört madness, ferðin heim var líka skemmtileg því það var dalalæða og smá norðurljós sem gerði þetta allt mjög draugalegt, svona aðstæður þar sem dauðir myndu lifna við..


kl. 17:43 | holla ( 36 )
eitt af því sem ég gerði um helgina var að horfa á touching the void (ógeðslega viðeigandi miðað við það sem var að gerast um helgina..)

þegar joe var alveg við það að deyja fékk hann brown girl in the ring með boney m á heilann.. og ég er búin að vera með þetta helvítis lag á heilanum síðan..

ég mæli mega með þessari mynd og vona ég að ég nái að líma lagið á heilann á einhverjum öðrum í leiðinni

Brown girl in the ring
Tra la la la la
Theres a brown girl in the ring
Tra la la la la la
Brown girl in the ring
Tra la la la la
She looks like a sugar in a plum
Plum plum

ps. sissi minn er kallaður geðveikur á bls 4 í mogganum he he

kl. 13:19 | holla ( 8 )
24.
ágú

( 2007 )
margir hata kanye en ég elskann.. ég meina hvernig er hægt að hata gæja sem lúkkar svona?



ég hlakka til þegar platan hans kemur út,. enn einn hluturinn til að hlakka til í september!

kl. 15:58 | holla ( 16 )
jeeee fóstbræður á dvd!!

sko undirskriftarlistinn sem fór af stað fyrir löngu er hér..

trúi ekki að þetta sé loksins að gerast, ég pissa í mig af tilhlökkun!

mér finnst góð hugmynd hjá þessum að veita mér riddarakrossinn fyrir þetta en bara for the record þá eiga gsm og ylfa líka heiðurinn að þessum undirskriftarlista

kl. 08:52 | holla ( 13 )
23.
ágú

( 2007 )
ég hlakka svo til september!

í fyrsta lagi á ég afmæli 15. og það er fáránlega gaman að eiga afmæli..
í öðru lagi byrjar jóganámskeiðið sem við hansor skráðum okkur á í kramhúsinu 11. sept
í þriðja lagi byrjar ljósmyndanámskeiðið sem við gsm skráðum okkur á 10.
í fjórða lagi eru tónleikar sprengjuhallarinnar 1. september og ég ætla að mæta

þannig burt með þennan ágúst!

kl. 09:05 | holla ( 7 )
22.
ágú

( 2007 )
sissi minn er hálfgerður superman..
vinnur í venjulegu djobbi á daginn og er svo ofurhetja þegar fólk er í neyð

alltaf ofurhetja í mínum augum
djók ógeðslega væmin

kl. 12:18 | holla ( 2 )
21.
ágú

( 2007 )
ég gúglaði hversu oft eru til heimildir um mig í maraþoninu.. hér eftir má bara fólk sem hefur hlaupið oftar en ég skamma mig fyrir að nenna ekki að taka þátt he he:
88
89
90
91
92
96

kl. 16:50 | holla ( 8 )
20.
ágú

( 2007 )
úff anna pihl er rosaleg! ég hlakka til þegar serja 2 byrjar

ég sé svo sjálfa mig í henni.. hún á líka menningafagga og kæró í sama bransa.. minn faggi er einmitt líka að fara á hokkíleik með teppasleikjara sem hann vonast til að muni bera barn hans undir belti..

kl. 23:42 | holla ( 10 )
ég komst að því á laugardaginn að það eru engin takmörk fyrir því hvað fólk getur verið í lélegu formi.. ég nennti ekki sjálf að hlaupa í maraþoninu (bæði af því að mér finnst gaman að hjóla og skoða hina sem eru að hlaupa og líka af því ég bara nennti því ekki he he).. það er alveg fólk sem lítur sæmilega fitt út að fara 10km á tæpum 2 klst.. eða sko.. ég hef nottla verið að æfa alla ævi og ég held ég búi rosalega vel að því.. þó ég hlaupi ekki í marga mánuði þá myndi ég alltaf hafa 10km af innan klukkutíma..

ég hjólaði svo 30km af því veðrið var svo gott og elliðár og fossvogsdalurinn svo fallegir..

í gær var samt best.. þá fór ég með sissa í borgarfjörðinn þar sem hann var að farað aðstoða pabba sinn við að mála... það var blankalogn þar þannig ég ákvað að taka joggið

"það er rosa fínn hringur hérna.. hleypur meðfram veginum þar til þú kemur að hliði hægra megin.. ferð þar í gegnum og þá liggur vegur yfir klettana og niður að hvítá.. svo ferðu meðfram henni þar til vegurinn liggur aftur til baka yfir klettana og útá veg og í gegnum annað hlið.."

ég svona ókei.. það er ekki svo langt að klettunum, getur ekki verið svo langur hringur..

þegar yfir klettana var komið var massalangt að hvítá en ég ákvað að halda bara áfram.. þegar ég nálgaðist kom hestastóð hlaupandi á móti mér.. ég sem er enn skíthrædd við hesta (bæði að vera tröðkuð niður af svona stóði eða nauðgað af stóðhest.. hans segir samt það geti ekki gerst) panikkaði nottla og púlsinn fór langt yfir það sem hann átti að vera...

ég losnaði við hrossin og hljóp áfram... og ég hljóp og ég hljóp... og var farin að pæla "ókei sissi fær þá alla vega bestu björgunarsveitagaurana í að finna mig ef ég skila mér ekki"... og ég hætti að hlaupa því ég var löngu búin að hlaupa þessar 35mín á pressupúls sem ég ætlaði að hlaupa og við það að vera sprungt.. svo ég gekk og hljóp til skiptis..

þar til ég kom að öðru stóði.. þegar ég nálgaðist hættu öll hrossin að borða og störðu bara á mig.. ég panikkaði en gerði ekki þau mistök aftur að fara of nálægt, heldur tók riiiiiiisasveig í gegnum einhvern móa með fullt af þúfum..

looooksins beygði vegurinn aftur til baka að klettunum og skiptist þá í tvennt.. ég byrjaði á vitlausri leið og þurfti að fara til baka..

...þegar ég kom aftur heim á hlað eftir 100mínútur, hölt, alveg að drepast í mjöðminni sagði ég "þetta var dáldið langt.."

"já dáldið.. þetta er nú samt ekki meira en 5km"

he he eiiiiinmitt!

ég hef aldrei prufað áður að hlaupa í sveit, það er best! ýkt góð lykt og hreint loft og kyrrt og rólegt og fuglahljóð og mjúkt undirlag (dáldið erfiðara samt en að hlaupa á malbiki) og svo getur maður bara lagst á árbakkann og svalað þorstanum. i loves it (ekki að hlaupa, heldur sveitina)!

endaði svo í pottinum.. hlakka til að fara í þennan pott í vetur og horfa á stjörnurnar!

kl. 18:08 | holla ( 9 )
15.
ágú

( 2007 )
ég kveikti á sjónvarpinu og fór að skoða uppskriftir þegar ég kom heim áðan.. er venjulega ekki heima á þessum tíma þannig ég hef aldrei "séð" vörutorgið áður

ókei, gaurinn sem sér um þetta hlýtur að skammast sín fyrir að vera svona asnalegur "já! hver kannast ekki við..." er endurtekið og endurtekið og endurtekið

þetter næstum eins og að lesa stebba frey sem endurtekur sama hlutinn í allt að 4 setningum

dæmi úr nýjustu fréttinni hans:
Þar gilda reglur og þar er standard yfir.
[...]
Þetta er ekki bloggkerfi án reglna og skilmála.

Það er auðvitað svo með opin bloggkerfi að þar safnast saman ólíkt fólk, með ólíkar aðferðir til að tjá sig.
[...]
Það má vel vera að flestir bloggarar hér hafi ólíkar skoðanir og aðferðir við að tjá sig.


i wuv him!

kl. 17:28 | holla ( 11 )





kl. 12:10 | holla ( 14 )
í gær sagði ég
"vá en gott veður.. svo kemur bara haustið!"

ég hafði einum of rétt fyrir mér

brrrrrr

kl. 12:08 | holla ( 0 )
14.
ágú

( 2007 )
ekki veit ég hvaða þrolli þrollason ákvað að það væri góð hugmynd að gera eitthvað flashmonster fyrir heimasíðu menningarnætur..

..núna veit ég ekki kl hvað tónleikarnir á miklatúni byrja og það er no joke að finna þá þarna.. það er nefnilega ekki hægt að leita og ég nenni ómögulega að browsa í gegnum allt undir flokknum tónlist til að komast að þessu..

ég endaði með því að finna þetta frekar hér því það tók mig hálfa sekúndu (og gat sloppið við að installa flash í ie til að skoða)..

það er amk nokkuð ljóst að sá sem bjó þetta til hefur ekki nokkru sinni notað netið til að afla sér upplýsinga.. öruddlega bara til að skoða ekkva "fínt" flash hjá öðrum hönnuðum *æl*

kl. 13:29 | holla ( 10 )
þetta gladdi mig grunsamlega mikið!
kl. 10:27 | holla ( 2 )
13.
ágú

( 2007 )
ég er svo ánægð að ég lét loksins undan gæjanum sem var búinn að eltast við mig í 5 ár eða svo

hann er búinn að draga mig í að gera svo margt skemmtilegt! síðasta helgi var ein sú skemmtilegasta sem ég hef upplifað

næsta sumar langar mig ekki til útlanda í sumarfrí heldur bara gera skemmtilegt stöff á íslandi, heppin ég líka að hann getur dregið mig á ansi marga staði án þess ég þurfi að sofa í tjaldi (he he)

jamm, held það sé planið.. ferðast innanlands á sumrin og láta hann svo kenna mér á snjóbretti í útlöndum á veturna!

kl. 15:03 | holla ( 5 )
12.
ágú

( 2007 )
það var ógjeeeeeeðslega gaman um helgina..

byrjaði reyndar frekar vel, ég hef sko aldrei veitt áður (nema á sjóstöng um daginn) þannig sissi byrjaði á því að kenna mér að kasta flugu..

í fimmta kasti setti ég í 4 punda lax.. (sem ég náði ekki einu sinni að halda á sjálf hann var svo mad sleipur mar, en ég leit fáránlega pro út þannig það var í lagi)


og beit uggann af helvítinu



ég var reyndar full áköf í að bíta af honum uggann og reyndi að taka hálft bakið á honum með.. það virkar ss ekki en maður festir fullt af roði í tönnunum og svona.. very nice..

eftir þetta veiddi ég 10 bleikjur.. það er voða gaman að veiða he he..

kl. 21:18 | holla ( 21 )
9.
ágú

( 2007 )
vinna - check
lyfta - check
æfa - check

núna liggur leiðin bara á kollabúðir!

ógila gaman að ég og sissi og hans og gsm erum að fara núna og á morgun koma apamamma og devíð og vinir sissa

mm strákarnir fóru í búð áðan meðan ég var á æfingu, ég er ýkt spennt að sjá hvaða gómsæti þeir keyptu

og svo á morgun ætla ég að týna hellings aðalbláber og borða með rjóma.. og veiða fisk og borða sashimi..

mmmmmmmmmm

góða helgi!

kl. 19:28 | holla ( 4 )
ég var að fatta að ég tek alltaf gífurlegu ástfóstri við merki ef mér líkar við þau..

á nottla endalaust mikið af apple dóti og langar núna í nýja lyklaborðið.. mér finnst gamla svo lélegt.. svo eru líka bara íslensku stafirnir klístraðir á það.. ömó..

svo í fyrra datt ég inní mac búð í NY og bað um allt sem mig vantaði.. og þá er ég að tala um allt..

síðan þá er ég búin að eignast helling í viðbót, m.a. á ég 17 mac augnskugga.. frekar sick þegar maður pælir í því að ég nota ekki svo oft augnskugga.. eina ástæða samt fyrir að ég á ekki fleiri að ég finn ekki 4 í viðbót sem mig langar í til að setja á palettu..

ég á óteljandi item af american apparel, þetta er besta jogging í heimi.. ég gæti klæðst aa frá toppi til táar í svona 2 vikur án þess að þurfa að þvo (þá reyndar gæti ég samt ekki mætt í vinnuna útaf dresskódinu he he..)

ég elska camper skó, ég man ekki hvað ég á mörg pör en ég á alla vega 3 pör af camper kuldaskóm.. ég deili reyndar þessari camper ást með sambýlismanni mínum sem er löngu búinn að átsjæna mig í campersafninu

ég er líka komin með töluvert gott safn af tiger of sweden fötum, sérstaklega þar sem það fæst voða lítið af þeim á íslandi..

hef ekki tölu á hversu mikið af nikita dóti ég á en i looooovez it og held áfram að safna..

svo er það nottla tupperware..
djóóóóóók, ég er ekki dottin í tupperware

kl. 13:02 | holla ( 3 )
8.
ágú

( 2007 )
ég og hans fórum í berjamó í gær fyrra og vorum massa sátt með árangurinn en allir aðrir gerðu bara grín að okkur



eftir þessa helgi sjáum við hver hlær síðast!

mm ég ætla að fá mér aðalbláber með sykri og rjóma

kl. 15:48 | holla ( 2 )
ég er að fara á kollabúðir í veiði og tjill á fimmtudaginn eftir vinnu
en ég sit ekki auðum höndum þar til, ó nei!
maður er alltaf á æfingu og restin af kvöldinu fer svo í það að undirbúa flóterinn hans hans orra míns á gay pride!

hann kemur reyndar með á kollabúðir en brunar í bæinn á laugardaginn til að massa atriðið sitt.. atriðið í ár er jafnvel flottara en atriðið í fyrra þannig þeir sem misstu af því ættu sko ekki að missa af atriðinu í ár..

we´re talkin glitz og glimmer og fluveldar og gjööööðveikir búningar og madnezz!

kl. 15:08 | holla ( 13 )
7.
ágú

( 2007 )
í svona 97% tilfella þegar ég segi eitthvað, þá er ég að djóka. mér finnst oft gaman að grilla í ókunnugu liði þó það sé ekki nema til að skemmta sjálfri mér.. flestir fatta samt í flestum tilfellum að ég sé að grína en aðrir greinilega ekki..

ég myndi sjaldnast fara að svívirða fólk eitthvað in their face sko..

er nefnilega búin að vera að reka mig á að ég hafi verið að móðga eitthvað fólk (og þá er ég ekki að tala um fólk á netinu eins og td á ónefndum spjallvef) án þess að hafa nokkuð verið að meina það þannig og ekki einu sinni tekið eftir því sjálf..

ÞANNIG að! núna er ég búin að vera massa meðvituð um að segja alltaf að ég sé að grínast (sem er samt ógeðslega leimó því það eyðileggur brandarann og fólk sem fattaði það er nottla alveg "uh ég veit..")

var td að grilla í einhverjum nóatúnsstrák á sunnudaginn og fékk svo sammara og þegar hann var að labba í burtu kallaði ég á eftir honum: "ÉG VAR AÐ GRÍNAST SKO GRÍÍÍÍÍN!"

kl. 16:45 | holla ( 12 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox