af því ég veit að allir eru að drepast úr spenningi yfir því hvernig helgin mín endaði þá...
ég labbaði á esjuna.. það er fín æfing.. ekkert svo erfið líkamlega (er ekki með neinar harðsperrur eða þannig) en gott þollega.. svoldið eins og svona interval hlaup.. er til í að gera þetta oftar í sumar uppá æfinguna.. (já eða bara fara ennþá hraðar og fá sperrur).. og hætta að stressa mig á að renna og meiða mig svona fyrst það er mánuður og 10 dagar í HM.. og kannski hætta að hafa áhyggjur af því að gönguskórnir mínir skítist út he he.. ég bara þooooooli ekki skítuga skó!
svoooo fór ég að sjá blades of glory.. ég elska will (vissuðiða?) og mér fannst hún ýkt skemmtileg.. haha það var svo mikið af fyndnum punktum í henni.. í einhverju blaði er alltaf verið að spyrja fólk einhverra spurninga og ein þeirra er "hver myndiru vilja að leikti þig í bíómynd?" og ég myndi ekki hika við að fá will til að leika mig
ég fór á smá laugardagsrúnt í góða veðrinu á laugardaginn.. fór til þingvalla.. það er svo ótrúlega næs alltaf að koma þangað.. veðrið var osomm og það var bunki af útlendingum tjillandi í almannagjá og við peningagjá..
um kvöldið fór ég svo í grill til fífu og aðalbjargar.. hversu gaman og sumarlegt er að grilla með vinum sínum???
úff ég fór í enn meiri sumarfíling við það og á enn meiri bömmer yfir að eiga ekkert sumardót he he.. en get huggað mig við að það eru bara 2 vikur þar til ég fer til köben! (mig langar að syngja af gleði)
kl. 10:18 | holla ( 0 )
ég sá leg á föstudaginn.. það var mjög skemmtilegt..
sko mér finnst edda björg alveg vandræðalega fyndin.. ég sá hana á laugaveginum og bara glápti og var alveg að farað hlæja, mér finnst hún svo fyndin
hmn já.. þetta var leikhúsgagnrýni dagsins.. mjög skemmtilegt og lítur dáldið út fyrir að steed lord hafi verið búningahönnuðir..
hey af hverju sagði enginn mér að sýning stúdentaleikhússins væri eitthvað algjörlega fyrir mig fyrr en síðasta sýning var í gangi??
kl. 09:27 | holla ( 0 )
27. apr ( 2007 )
hhhmmnnn.. ég er búin að vera að velta því fyrir mér hvað ég á að kjósa og finnst einhvern vegin allir bara vera að spá í :
- ung
- vel menntuð
- vel stæð
- búin að kaupa mína fyrstu íbúð
- barnlaus
- heilsuhraust
- reykvíkingur
hvað á maður þá að kjósa eiginlega?
kl. 15:48 | holla ( 28 )
það er svo fyndið þegar maður safnar óvart einhverju..
heima hjá okkur hansa eru td til svona 8 tegundir af ís.. 3 flöskur af alveg eins karmellusósu, 4 box af amerikanske pandekager mixi og 3 pakkar af ritzkexi
um daginn þegar sissi lét alþrífa bílinn minn birtust alltí einu 5 sköfur í framsætinu..
(svo er annað mál með svona dót sem maður safnar meðvitað eins og mac kinnalitir og skór..)
kl. 10:41 | holla ( 4 )
sko.. bara LOKSINS!.. virum búnar að nota þetta nikkneim í rúm 3 ár og aldrei verið búið til neitt handa okkur hingað til.. samt er ég mjög fræg og pabbennar ylfu mjööög frægur og ylfa verður verulega fræg um leið og hún flytur heim
ég er að safna utanlandsferðum.. núna er ég komin með
15.05 - 21.05 Kaupmannahöfn
25.05 - 28.05 Berlín
10.06 - 17.06 Glasgow
03.07 - 24.07 London og Thailand
ég veit ekki með ykkur en mér líst bara ótrúlega vel á þetta plan..
(smell fyrir stærri mynd) kl. 13:22 | holla ( 24 )
af því sumarið er komið, þá gekk ég frá öllum kuldaskónum mínum í gær og dró fram nokkur pör af sumarskóm í staðinn..
ég komst að því að mig vantar ótrúlega mikið nýja sumarskó.. kannski ég geymi það að kaupa þá þangað til í köben hmm..
mmm elska sumar þó það sé bara rok og rigning.. bara tilhugsunin um að það sé sumar er osomm
kl. 10:10 | holla ( 3 )
24. apr ( 2007 )
eiginmaður minn er stokkinn á tempur bandvagninn.. mér fannst eiginlega dáldið vandræðalegt að hafa rúm á heimilinu sem er ekki tempur, þannig núna er allt orðið fullkomið
ég elska rúmið mitt.. á næstum hverju kvöldi þegar ég leggst í rúmið enduruppgötva ég hversu gott er að leggjast í það.. það er rugl!
ég var líka svo ógila heppin að kæró minn var svo mikið að reyna við mig áður en ég bugaðist, að hann leyfði mér að velja hvernig rúm hann keypti sér, gegnum sms (ég man þetta, ég var í NY að labba frá apple á 5th í áttina að empire state)..
þannig ég sagðonum að kaupa tempur, það er alveg eins og mitt nema stærra..
það gladdi mig að sjá í fréttablaðinu að maðurinn í leðurbúðinni kos á laugavegi muni sjá um að hanna leðurbúning á eika.. en þessi búð er einmitt uppáhalds búðin hans hans orra!! kl. 09:21 | holla ( 6 )
davíð og bjarni eru annars óóótrúlega sniðugir.. sko alveg ótrúlega! og eru að gera magnaða hluti í dammörku.. sjáiði bara hér, ég er montin af því að þekkja svona sniðuga stráka
kl. 16:23 | holla ( 4 )
22. apr ( 2007 )
það er ekki nóg fyrir íslandshreyfinguna að vera með stuðmann og ómar ragnarsson.. þá vantar alvöru skemmtikraft.. einhvern sem er búinn að vera lengur í bransanum en ómar og er vinsælli en stuðmenn... hver annar er betri í það en
KETILL LARSEN!
hann gæti komið fram í þessum debötum í staðinn fyrir ómar, í tóta trúðs búningnum.. sprautað vatni á hina frambjóðendurnar úr sprautuflöskunni góðu..
þetter eitthvað sem allir hefðu gaman að og myndi garantera mikið fylgi..
sjii ég er ógeðslega góð í top model.. eiginlega hefði ég átt að sjá um bikini módel íslands í staðinn fyrir ásdísi rán...
í síðustu seríu þá vann pían sem ég hélt með frá fyrsta þætti.. og í seríunni sem er í gangi núna úti, þá völdum við hans okkur sitthvorar tvær til að halda með.. eina svarta og eina hvíta.. núna eru 5 píur eftir og mínar 2 ennþá með! grenjuskjóðan hans hansa datt út í síðasta þætti mjehehe..
kl. 15:57 | holla ( 8 )
20. apr ( 2007 )
jeij þaru komnir stöðumælar í götuna mína!
það er fátt meira pirrandi en að það sé ekkert laust stæði þar.. sérstaklega af því vesturgata, ránargata, bárugata og öldugata stefna allar í sömu áttina þannig maður þarf að taka mega stóran hring ef það er ekki laust..
núna getur pöpullinn sem ekki tímir að borga í stöðumæli bara skilið bílinn sinn eftir heima hjá sér í úthverfinu og tekið strætó í vinnuna!
kl. 13:22 | holla ( 5 )
ég fæ alveg kitl í magann þegar ég hugsa til sumarsins
sumur eru svo ótrúlega skemmtileg! fyrra var reyndar doldið slappt því það var svo mikil rigning.. en samt var svo margt gaman.. það var svo gaman að fara á hestbak með inam og hansa og týna ber og fara í roadtrip á þingvelli
þetta sumar verður frábært.. ylfa og davíð eru að flytja heim.. hlakka ótrúlega mikið til að sólbaðast á svölunum heima (þær eru algjör pottur.. og þegar sólin er ekki lengur á öðrum svölununum þá færir maður sig bara yfir á hinar ha ha) og grilla og hangsa og hafa gaman með vinum mínum í góða veðrinu..
er líka að fara mikið til útlanda.. köben og berlín í maí og vonandi eitthvað í júní og svo til thailands í júlí..
núna er einhver gaur með risastóra svona kló eins og maður notar til að vinna bangsa að rífa allt húsið í sundur.. eini munurnin er að hann má prufa oft og nær einhverju í klóna í hvert skipti
kl. 17:18 | holla ( 8 )
ohh allt að brenna.. ég er mjög miður mín yfir þessu.. rölti á segafredo áðan, gat ekki farið í 10/11 og það er allt í fokki!
þetta hefur pravda uppúr því að vera með þessar ógeðslegu súperman keppnir sínar og klámkvöldin hennar elísabetar thorlacious..
ég vil samt ekki þetta fari í hressó.. ég ellllska nefnilega super nachosið þar!
kl. 15:08 | holla ( 7 )
sumarið byrjar á morgun
mig langar í sumarskó, bæði fína og sníkers.. svo langar mig í sumarbuxur og sumarpils og sumarjakka og sumarbol og sumarpeysu..
og jamm, rúmið hans halla er fáránlega þægilegt.. ég veit það af því ég á alveg eins! væri þess virði fyrir fólk sem á ekki svona rúm að fara bara út til að sofa í hans
kl. 11:33 | holla ( 5 )
það var mega gaman á aldrei fór ég suður
ég, hans og fífa flugum til ísó á fimmtudeginum og keyrðum svo heim á mánudeginum með sissa og helga..
við fórum í sund, bæði á bolungarvík og á suðureyri.. það var magnað í sundlauginni á suðureyri.. þar fær maður kaffi og meððí útí pott og bjarni og gunnar þór slátruðu sænska skrýmslinu í lauginni.. það var osomm!
ég og hans heimsóttum líka þráinn á þingeyri.. það var skemmtilegt að sjá hvernig þráinn bjó þar hjá pabba sínum í einhvern tíma og svo sáum við líka sel á leiðinni.. að var mjög skemmtilegt
tónleikarnir voru líka frábærir.. það sem við sáum á föstudeginum hefur ekki verið sérlega skemmtilegt því ég man ekki eftir neinu.. en á laugardeginum voru vonbrigði ársins þegar ég missti af Dóra DNA og Danna Deluxe , ég fór næstum að gráta því þeir voru það eina sem mig langaði að sjá fyrirfram.. og til að bæta gráu oná svart þá duttum við beint í eitthvað búkerlingarokk sem var not so hot..
eftir það kom samt sprengjuhöllin og vaaaaaaaaaaaá hvað það var gaman.. svo er líka georg búnað lofa að bjóða mér og hans heim í kaffi að horfa á vídjó með tónleikum á menningarnótt.. ég hlakka mikið til þess.. mjög mikið
æla voru líka fáránlega skemmtilegir.. ég hef ákveðið að leyfa þeim að sleppa þegar ég loka og læsi alla keflvíkinga (nema líka skúla og valgerði) inni á froðuballinu sem óli geir ætlar að halda á yellow..
reykjavík! voru líka geggjaðir.. ótrúlega skemmtileg stemningin hjá þeim þegar þeir eru að spila sem smitast ýkt mikið til manns.. love them!
dr.spock vinna þetta samt eiginlega því þeir gáfu okkur uppþvottahanska.. sjii þegar við hans áttuðum okkur á að við værum með par, þá pissaði ég næstum í mig úr hlátri.. nú er aldrei leiðinlegt að vaska upp þegar maður getur vaskað upp með hönskum sem dr. spock gaf manni
FM Belfast voru líka skemmtó.. mér finnst stelpan svo fyndin.. ég sá hana í kastljósinu ræðandi einhverjar fígúrur sem hún gerir sem eru með risatennur.. nema hugmyndina fékk hún þegar hún fann gervitennur útá götu.. það er heví fyndið að taka upp gervitennur sem maður finnur.. jakk ég myndi aldrei vilja snerta þær!
mér finnst aaaalltaf gaman að horfa á benny crespos gang .. bassi, trommarinn er flottasti trommari í heimi.. gaurinn er magnaður! hann snúið kjuðunum í hringi milli þess sem hann trommar og æi.. þið verðið eiginlega bara að sjá hann til að upplifa þetta..
verð reyndar að viðurkenna að ég myndi takmarkað nenna að hlusta á þessar hljómsveitir utan tónleika þar sem þær falla ekki alveg að mínum tónlistarsmekk.. en það var meeeega gaman að sjá þær allar fyrir vestan
á sunnudeginum var hans búnað fela páskaeggið mitt.. (páskaeggið mitt hefur alltaf verið falið, nema í fyrra), ég var samt pinku fljót að finna það (af því ég er svo gáfuð).. við tókum svo nettan göngutúr sem varð frekar boring því það byrjaði að snjóa svo mikið og maður sá ekki neitt he he
við versluðum páskamatinn í bjarnabúð.. það er ýkt sniðug búð.. alltaf opið og allt í heiminum til.. við elduðum þessvegna dýrindis páskalæri með sveppasósu og karpeddlum og ís með marssósu í eftirrétt.. very nice!
ég setti myndir úr ferðinni í albúm.. þar læddust reyndar með nokkrar myndir úr afmælinu hans atla fannars..