Katrín.is
29.
mar

( 2007 )
eigum við að ræða tvo af hlægilegustu gaurum sem ég veit um?

herra ísland sem vann ekki einu sinni keppnina, hann fékk bara titilinn eftir að óli geir þrolli þrollason missti titilinn.. hvernig hægt er að tapa fyrir lúser skil ég ekki (og fegurðarsamkeppnir skil ég ekki heldur en það er saga í annað og miklu lengra blogg)

mér finnst bara svo fyndið að sjá gaurinn fyrir mér útí kína, vonandi að dómnefndin segi hann vera miklu sætari en hina gaurana.. hann er eitthvað svo krúttlega.. hmm.. einfaldur.. að ég er alveg með sammara yfir að verað gera grín að honum hérna..

brynjar már í snooze finnst mér líka svo hrikalega hlægilegur gaur.. þarna er hann að hefja einhvern sólóferil sem bmv.. og ég held að (þótt ótrúlegt megi virðast) þá sé hann ekki að grínast! gaaaaad plís nennir einhver að segja mér hann sé úr keflavík, það virðast allir vonlausustu pungar landsins vera þaðan

kl. 17:39 | holla ( 18 )
28.
mar

( 2007 )
hehe nýr stjórnmálaflokkur í danmörku
reykingaflokkurinn

ojj ég sé fyrir mér fundina hjá þessum flokki.. fullt af fólki lokað inní einhverju herbergi að mökkreykja og hneykslast á fólki sem hefur ekki áhuga á að anda oní sig þessu ógeði sem þau spúa frá sér..

ojjjj reykingar og ojjjjjj sígarettufýla

kl. 14:26 | holla ( 26 )
ég og gsm eyðum of miklum tíma saman (sem er samt jákvætt því hann er svo skemmtilegur)

við fórum á sitthvorn kassann í 10/11 þar sem ómaði eitthvað lag með jónsa.. án þess að vita sögðum við bæði við (sinnhvorn) gaurinn sem var að afgreiða okkur
"er þetta uppáhalds lagið þitt eða með uppáhalds lögunum þínum?"

kl. 12:42 | holla ( 0 )
27.
mar

( 2007 )
ahaha mest týbískt danskt í heimi

sama liðið og fer ábyggilgea spes út til að skanna það hvort það sé einhver að hjóla á gangstétt eða sleppa því að setja svona plastdót á eftir sínum vörum á færibandinu í búðum

kl. 14:08 | holla ( 14 )
26.
mar

( 2007 )
vonandi verður þetta til þess að spaugstofan verði lögð niður

að rúv skuli vera búið að bjóða okkur uppá 300 þætti af þessari hörmung er til skammar

ókei ég hef ekki gert mikið af því að horfa á spaugstofuna en tek sem dæmi atriðið þar sem tveir rónar voru að ræða málin, annar þeirra girti niðrum sig og var þá með banana fyrir typpi og sagði "þetta eru gróðurhúsaáhrifin"

þetter ekki fyndið.. finnst einhverjum þetta fyndið?

svo má leggja niður kastljósið í leiðinni, mér finnst það leiðinlegt og asnalegt

kl. 13:26 | holla ( 6 )
ef þig vantar að leigja íbúð í NY í sumar þá er hann sigurjón minn með lausnina

hann ætlar nefnilega að vera á íslandi í sumar og langar ýkt mikið að leigja einhverjum cribbið sitt á manhattan á meðan

tzjekkit!

kl. 10:25 | holla ( 4 )
23.
mar

( 2007 )
klöppum fyrir konunni sem fann manninn sem coke zero auglýsingarnar eiga að höfða til.. má ég kynna: skúli steinn (hann skrifaði þetta sjálfur)

þessi tvö eru hælæts

"Ef þú segir eitthvað slæmt við mótorhjólið þitt þarftu ekki að byðjast afsökunnar áður en þú ferð á það aftur."

"Þú getur verið á mótorhjólinu þínu eins lengi og þú vilt og það verður ekki aumt"

af hverju kemur það mér ekki á óvart að hann sé úr keflavík?

kl. 13:16 | holla ( 19 )
ógeðslega töff gaur með zero kjeeellingahátt
kl. 10:12 | holla ( 4 )
22.
mar

( 2007 )
"Merki framboðsins er hringur með tígli"
skrítinn tígull..

ég skal kjósa þau en bara ef ómar ragnarsson verður vikulega með skemmtanir þar sem hann syngur vel valin lög úr slagarasafni sínu

slagara eins og "börnin hlæja ahahahaha, tröllin hlæja ohohohohoH" og "bróðir minn hann er lítill minnsti puttinn er á mér, og hann kann ekki að tala með engar tennur upp í sér"

svo gæti jakob frímann líka troðið reglulega upp með stuðmönnum, uppáhalds hljómsveitinni minni, með slagara eins og.. "manstekkeftir mér mikið líturu vel út beibí frábært hár"

frábært lag

uppfært: svei! mbl breytti textanum sínum um tígulinn, það hefur greinilega einhver snillingurinn þarna tekið stærðfræðikúrs með fjölmiðlafræðinni og lært sitthvað um formin

kl. 15:24 | holla ( 7 )
ég hef oft sagt ykkur hvað hann þrási minn er góður að syngja..
hérna getiði séð hann með hljómsveitinni sinni, royal fortune..

ég ætla á tónleikana í kvöld!

kl. 13:40 | holla ( 6 )
ahh hans sagði svo fyndið heather mills grín á laugardaginn að ég er enn að hlæja að því.. good times
kl. 11:26 | holla ( 1 )
mér finnst þessar samsettu myndir á vísi heví fyndnar
hér er nýjasta
hér er önnur góð

kl. 09:01 | holla ( 6 )
20.
mar

( 2007 )
ég fór í klippingu og eins og oftast leyfði ég daða að ráða.. þar sem ég er búnað vera ljóshærð allt mitt líf ákváðum við að prufa að vera dökkhærð..

i love it!



þessi er fyrir ylfu, því ég er í sokkunum sem hún gaf mér

kl. 18:24 | holla ( 22 )
gaddem hvað kók zero á að höfða til ógeðslega leiðinlegra týpa
dæmi:
-af hverju ekki geggjaður bíll sem eyðir zero bensíni
-af hverju ekki kynlíf með zero forplayi
-af hverju ekki hasarmyndir með zero rómantík
-af hverju ekki brjóstahaldarar með zero smellum
-af hverju ekki stöðumælaverðir með zero prik í rassgatinu

held þetta séu svona gaurar sem finnast á goldfinger eða á gay bashing ráðstefnum..

kl. 09:24 | holla ( 14 )
19.
mar

( 2007 )
ókei ókei ókei! sko dlisted er uppáhalds bloggarinn minn í heiminum, mér finnst hann meirað segja ogguskonsulítið betri en ég..

verra reyndar að vinnan mín blokkar hann búúú ég myndi frekar vilja missa mbl, visi og m5 heldur en hann

en í dag komast nylon stelpurnar í caption this contestið og komast þar með í hóp annarra frábærra mynda sem hafa verið í caption this keppninni, ooooov ég er svo stollt! dlisted nýi íslandsvinurinn!

kl. 23:15 | holla ( 7 )
eigum við að ræða það hvað firebug er fáránlega gott tól?
kl. 14:12 | holla ( 10 )
einu sinni sá ég..

...mann klára síðustu dropana úr kókdós sem hann fann í rusli á ingólfstorgi

...konu klára síðustu dropana úr jógúrtflösku sem hún fann í rusli við nørrebros runddel

...pönkara klára rennandi blautan hamborgara (sem var orðinn fjólublár af rauðkálinu sem var á honum) sem hann fann í rusli á hróarskeldu

kl. 13:17 | holla ( 2 )
þegar ég fíla ekki einhvern, þá reyni ég að sniðganga viðkomandi eins mikið og ég get.. þess vegna fer óheyyyyrilega í taugarnar á mér þegar einhver sem ég veit að er að tala skít á bakvið mig er að reynað vera næs við mig

bitch please, ég hélt að fólk hætti að láta svona í menntaskóla..

kl. 09:50 | holla ( 4 )
17.
mar

( 2007 )
pétur vinur minn var að spila á 11 í gær með hljómsveitinni sinni og ég kíkti (vantaði punch í þessa setningu). pétur er límið sem heldur hljómsveitinni saman og auk þess exfaktorinn sem gerir hana svona kúl.. fyrir utan það samt, þá er söngkonan mesta töffaragella sem ég hef séð á ævinni.. frábær söngvari og óóótrúlega gaman að horfa á
kl. 18:38 | holla ( 6 )
uuuugggghhhhh ég ætla ekki einu sinni að reynað tjá mig, ég er svo tapsár..

leiðinlegast við þetta alltsaman er samt að þurfað fara aftur í KRhúsið þar sem einhver nölli heldur að hann sé að stýra handboltaleik..

það er mikill misskilningur að körftuboltaáhangendur þurfi svona sögumann eins og í handbolta til að láta mann vita hver skoraði (sjá útskýringu hér)

kl. 18:18 | holla ( 1 )
16.
mar

( 2007 )
næs.. 1-0 fyrir mína menn.. sissi sem hefur verið KRingur allt sitt líf hélt auðvitað með ÍR í gær, loksins fær hann að upplifa hvernig er að halda með winners.. miiiiklu betra

steinar var mad heitur, þess vegna er hérna mynd af honum og bróður mínum


hlakka til á laugardaginn!

kl. 09:15 | holla ( 9 )
15.
mar

( 2007 )
ég og gsm erum að fara í bása á eftir.. ég hlakka mega til!

það er eins gott að æfa sig þar sem ég er, í fyrsta skipti, meðlimur í alvöru golfklúbb.. og svona fyrst ég var að því á annað borð þá var ég ekkert að skrá mig í neinn bónusgolfklúbb heldur fínasta klúbbinn

ég er fáránlega töff þegar ég golfa þó ég segi sjálf frá

kl. 16:22 | holla ( 10 )
bróðir minn og félagar í ÍR eru að farað vinna KR í vesturbænum í kvöld.. ég er mjög spennt fyrir þessum leik þar sem ég er tæknilega séð vesturbæingur núna (101 vesturbæingur)

ég myndi samt aaaaaaldrei halda með öðrum en ÍR því þeir eru með skemmtilegasta, sætasta, flottasta og besta liðið oooog langskemmtilegastir til að halda með

svo eiga þeir líka bikar!

kl. 12:07 | holla ( 4 )


kl. 11:46 | holla ( 6 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox