
28.
feb
( 2007 )
ég og hans fórum í sitthvoru lagi í búð og keyptum fullan poka af (bráðnauðsynlegum) matvörum.. venjulegast verslum við aldrei svona mikið
viljum ekki farað kaupa eitthvað útsöludrasl sem verður selt frá og með morgundeginum
kl. 22:43 | holla ( 5 )
ég er búnað verað glugga í bókina sem barbapabbi sagði mér að kaupa (kemur sér vel að eiga ferðalaganölla heimsins fyrir vin.. hann kenndi mér að röffgæd er mikl sniðugari en lonely planet oooog fann fyrir mig ódýrasta flugið)..
það er spennó.. ég er enn pinku stressuð fyrir bangkok þar sem hans sagðist hafa fengið nett menningarsjokk þar útaf skít og drullu.. *gúlp* ég er svo mikil pempía..
mega stressuð yfir mat líka.. ég er ekkert sérstaklega lítið matvönd.. var reyndar að skoða svona tradissjonal eftirmata og það var allt eitthvað með kókos í.. ég ellllllllska kókos!
og er byrjuð að undirbúa mig fyrir köfun , bæði hansi og fífa sögðu það væri ómögulegt að sleppa því að prufa það.. en þar sem eitthvað sem hefur með það að gera að stinga hausnum í kaf er ekki það mest spennandi sem ég get ímyndað mér, þá er ég farin að hugsa um þetta daglega.. verð ábyggilega búin að yfirstíga óttann eftir 4 mánuði he he.. (fífa sagði líka það væri í lagi að vera smá hræddur)
æ ég ætlaði að setja einhverjar skemmtilegar myndir hérna inn en það voru svo margar til.. vil samt taka það fram að ég er ekkert mega hrifin af þessum hdr myndum..
kl. 13:44 | holla ( 8 )
af því ég er svo fræg og mikið biggsjott þá er ég á bls 15 í blaðinu í dag..
kærastinn minn var líka að flytja í gær sem er svo frábært af því þá er jafnlangt að labba heim hvort sem maður fer að djamma á pravda eða vegas
kl. 09:33 | holla ( 18 )
26.
feb
( 2007 )
vá þetter eins og talað úr mínum munni
"I don’t know what’s worse. Being hit by James Blunt or having to listen to that stupid “You’re Beautiful” song over and over again. I’d rather be hit by a car."
dlisted er my man
kl. 22:11 | holla ( 12 )
BFFs

hans gerir bara svo mikið fyrir heildarlúkkið að ég verð alltaf að rúlla með honum.. (svo er hann svo góður og skemmtilegur líka..)
kl. 18:54 | holla ( 1 )
setti (loksins) inn myndir frá helvetia cup..
hrund tók fínu myndirnar.. myndaröðin er pinku í fokki útaf þetter úr tveimur vélum.. og hennar eru líka öðruvisi í laginu en mínar sem setur albúmið smá úr skorðum.. en idsolguuudd!
kl. 18:36 | holla ( 2 )
svei!
þegar ég gekk inn í stigaganginn heima þá mætti mér þessi ógeðslegasti fnykur sem ég hef fundið.. mér datt strax í hug að ég væri að lenda í svona keisi þar sem einhver væri búinn að vera dáinn í lengri tíma í íbúðinni sinni og enginn fattað neitt fyrr en nágrannarnir færu að kvarta vegna óþefsins..
fattaði svo að það væri frekar ólíklegt þar sem 2 íbúðir eru tómar.. og fólkið úr hinum 3 er ég búin að rekast á á síðustu dögum..
þá fór ég að velta því fyrir mér hvort ég ætti að anda með nefinu og mögulega gubba.. eða anda með munninum og þá ekki finna lyktina.. en fá hana í staðinn uppí mig
dilemma
kl. 18:11 | holla ( 3 )
ég elska everybody hates chris.. ég veit eiginlega ekki um neinn annan sem horfir á þetta (fólk kann ekki gott að meta)... það er svo erfitt að útskíra hvað er gaman við þetta.. td geðveikt löngu innskotin sem eru upptalningar (hér þegar pabbinn telur upp i allow you) og þegar mamman verður svo reið að hún gerir eitthvað ýkt fyndið (slær hann í annað þjóðerni) og mega fordómarnir í kennaranum hans.. svo er líka strákurinn sem leikur chris svo ýkt fyndinn og sniðugur

kl. 16:58 | holla ( 3 )
mig vantar butler.. hann á að þrífa, elda mat, velja hvað á að vera í matinn (bara hollt), versla í matinn, vaska upp, þurrka allt draslið, þvo þvott, hengja upp og brjóta saman þegar er þornað, dánlóda vídjói, skutla mér á æfingu og sækja mig aftur, þvo bílinn, fyllann af bensíni, skipta um á rúminu annan hvern dag, láta renna í bubblubað þegar mig langar, þurrka á mér hárið og vera hot
kl. 16:15 | holla ( 2 )
ég komst að því á q-bar að lellur eru ekkert hiphop.. ég var amk sú eina sem öskraði "HAMMERTIME!" þegar mc hammer sagði "STOP!"
kl. 10:26 | holla ( 31 )
25.
feb
( 2007 )
það eru:
79 dagar þar til ég heimsæki ylfu
106 dagar þar til ylfa flytur heim
130 dagar þar til ég fer til thailands
ég notaði sql server til að reikna þetta út (haha)
kl. 16:45 | holla ( 2 )
elska sunnudaga

hans bakaði pönnukökur.. ég pressaði safa...
kl. 15:19 | holla ( 3 )
partýkatrín fór út í gær.. vúhú.. fyrsta skipti á árinu.. ég man ekki einu sinni hvenær ég fór síðast út.. en það var meeeega gaman!
fífa B.A. var að útskrifast og var með veislu.. það var ýkt gaman, svo fórum við hansel er að hitta inam á q-bar.. ég var með sólglevuru á leiðinni útaf svotlu sem ég nenni ekki að útskíra en ég held að almennt þyki fólki ekki töff að rúlla með sólgleraugu á kvöldin því svona 5 ókunnugir minntust á það á leiðinni..
q-bar var mega skemmtilegur! ég náði að segja felixi að mér þætti ógeðslega leiðinlegt að 6til7 væri hætt.. ég held hann hafi verið glaður yfir að mér þyki það skemmtilegasti þáttur sem s1 hefur verið með..
ég eignaðist líka nýjan vin sem heitir mundi og var svo fáránlega hress og glaður, i dig him en hápunkturinn var klárlega þegar beggi reif sig úr skyrtunni!
(minnir mig á það besta við jón páls myndina, fyrstu jólin með konunni sinni boruðu þau bara tvö heima því honum fannst langbest að borða ber að ofan, sjit það er fyndið)
kl. 12:54 | holla ( 3 )
24.
feb
( 2007 )
hans eldaði svo ótrúlega góða mexíkóska kjúklingasúpu í gær.. hann er algjör snillingur.. svo horfðum við á jón pál.. ðe múví.. það er mjög gaman að henni þrátt fyrir að hún sé doldið skrítin.. hvað varðar tímaröð og tónlistarval aðallega.. jón var fáránlega sjarmerandi gaur, elska stælana sem hann var alltaf með.. ekkva að setja evrópumet og öskra "þetter ekkert mál, fyrir jón pál" meðan hann var ennþá að halda á lóðunum.. og allskonar þannig..
svo reyndum við að horfa á kaldaljós.. mjög merkileg fyrir þær sakir að woody harrelson leikur í henni.. en það gerist eeeeeekkkiiiiiii neeeeiiiiiitt.. hold da op hvað myndin er langdregin!
í dag kuffti ég mér túlipana því það var svo fallegt veðrið.. en þegar ég kom með þá heim þá pössuðu þeir ekki í blómavasann.. hvað gat ég þá gert annað en að fara út og kaupa mér alvar aalto? ó svo fallegur, nú á ég fína gula túlipana í fínum vasa.. þessi aalto áhugi minn á eftir að enda í því að ég kaupi mér norrænahúsið að búa í!
kl. 17:15 | holla ( 3 )
23.
feb
( 2007 )
það var gaur úr bílaumboðinu að hringja í mig og segja "hæ ertu búnað skipta um tímareim? það þarf sko að skipta um tímareim þegar bílar eru þriggja ára.."
og það þyrfti bara að gera það helst núna strax, annars myndi hún slitna og þá yrði þetta 4x dýrara (og þá er hann að meina 4x 90 þús)
einmitt það sem mig langaði að heyra svona enn með tárin í augunum yfir bremsuklossunum í gær
kl. 16:29 | holla ( 16 )
halli segir allt sem mig langar að segja um klám og konseftið "hamingjusömu hóruna" og allt í þá áttina
ég kvóta því ég er svo sammála:
Kannski er málið að ég tengi engan veginn við þetta; líkurnar á því að ég stundi kynlíf fyrir framan myndavél og tökulið eru vart mælanlegar (og fáir sem vildu taka þátt í því "ævintýri"). Og þó...ekki nema ég þyrfti virkilega virkilega á peningunum að halda, að ég væri kominn í eitthvað vesen og…
halli er svo klár!
kl. 11:36 | holla ( 2 )
ég sótti tvær myndir í gær í innrömmun hjá listamönnum.is, ég ætla alltaf að láta ramma inn þar! þeir gerðu þetta ýkt flott fyrir mig og voru fáránlega fljótir að þessu og eiturhressir.. lovem!
svo fór ég og sótti bílinn minn.. það var verið að skipta um bremsuklossa í honum af því hann bremsaði skakkt eða eitthvað jadíjadí.. ég fór næstum að gráta þegar ég sá reikninginn og gaurinn sem afgreiddi mig var svo ótrúlega vinalegur og var alveg sorrí yfir þessu öllu saman.. ég fíla hann.. ég hata samt bremsuklossa
sissi bauð mér svo á domo þar sem var food and fun kokkur.. það voru tveir forréttir, aðalréttur og eftirréttur.. annar forrétturinn var með humri og var svo óspes að ég hefði ekki klárað ef ég hefði ekki verið svona svöng.. þá var nú frábært að fá minnsta aðalrétt sem ég hef séð á ævinni.. (halldóra, það var ekki einu sinni gúrkublóm, bara ogguskonsulítið kjöt og 3 sveppir).. og svo var skyr í eftirrétt.. fyrir mér er skyr morgunmatur..
ég skal gúddera svona litla rétti ef maturinn er þá ótrúlega góður.. en hann var það ekki.. við komum við í ísbúð á leiðinni heim..
svo heima keyptum við okkur flug til bangkok.. ætlum svo að ákveða betur hvað við ætlum að gera í thailandi þegar bókin kemur

kl. 10:37 | holla ( 15 )
YLFA SJÁÐU!!!!
ég var sko hrekkt svona sjálf, var að pass it on til einu manneskjunnar sem ég veit að er hressari með svona en ég
kl. 09:04 | holla ( 5 )
ég er með krónískan ótta við að læsa lykilinn að lásnum mínum inní skápnum í laugum meðan ég fer í sturtu.. það væri hræðilegast í heimi að standa þarna bara í handklæði með allt annað læst inní skáp.. ég passa mig alltaf að vera alveg viss um að vera með lykilinn þegar ég loka lásnum
brrrr
ég ætti að fá mér talnalás..
kl. 10:54 | holla ( 6 )
21.
feb
( 2007 )
ehm.. mér finnst fáránlegt að jafnstór vefur og mbl sé ekki að dulkóða lykilorðin hjá moggabloggurunum..
þegar ég komst að því að hugi duklkóðaði ekki lykilorðin var ég hneyksluð en mér finnst miiiiklu steiktara að moggabloggið geri það ekki
þetta tuð var í boði moggabloggsins.. kannski ég setji það á mitt moggablogg
kl. 15:02 | holla ( 3 )
mér finnst þetta bara of fyndin mynd.. aldrei séð neinn svona glaðan.. það er skemmtilegast í heimi að vinna!! glaðasti bróðirinn

hlakka til þegar ír verður íslandsmeistari í vor
kl. 10:20 | holla ( 0 )
mBlog
Safnið
2010 september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2009 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2008 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2007 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2006 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2005 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2004 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2003 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2002 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2001 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní