Katrín.is
31.
jan

( 2007 )
dáldið eins og fóstbræður.. nema alvöru..


jósef í dag, ég ætlað pantann í brúðkaupið mitt

kl. 13:27 | holla ( 5 )
30.
jan

( 2007 )
johnny weir, uppáhalds skautadansarinn minn (þessi sem dansaði í svanabúning á síðasta ári), tjáði núna sögu krists í frábærum dansi.. en vann ekki og endaði með grátri.. mjög hræðilegt.. en samt frábær hugmynd að vera hommi að tjá sögu krists í skautadansi.. ég elska johnny

kl. 16:51 | holla ( 5 )
ég biðst velvirðingar á orðum mínum "konurnar á barnalandi eru skilgreiningin á konur eru konum verstar.."

ég sé það núna, eftir að hafa lesið þessa tvo spjallþræði um mig [1|2], að það er alls ekki satt hjá mér.. það er bara ég sem er "litil ljóshærð egóista trunta"

en ég tek eftur á móti ekki hitt til baka sem ég sagði, að stelpa sem er augljóslega veik þurfi ekki á því að halda að það séu umræður um hana á barnalandi um hversu ljót og ógeðsleg einhverjum konum þyki hún.. og það eigi frekar að hneykslast á mönnunum sem nýta sér þetta ástand hennar (pointið tapaðist eiginlega í fyrri greininni því allir voru svo reiðir yfir að ég hefði ranglega sagt að barnalandskonur væru skilgreiningin á að konur væru konum verstar)

kl. 13:56 | holla ( 7 )
til að kynnast mér enn nánar

þessi lýsir mér best: "reyndar hefur maður líka heyrt um að hún sé nú með neikvæðari manneskjum í real life"

kl. 11:26 | holla ( 10 )
29.
jan

( 2007 )
langar þig að kynnast mér betur? þá eru konurnar á barnalandi með svarið..

ég er "alltaf að rakka niður BL" (passar, mjög auðvelt að sjá það með að slá barnaland inní leitina hérna hægra megin) ég er greinilega "BL fíkill í afneitun"

ég er "óþolandi, menntasnobbaður egósentrískur lúði"

ég geri "fátt annað en að segja hvað allt og allir séu nú asnalegir og hvað hún sé nú æðisleg" á þessu "bleika bloggi" mínu..

hér er reyndar ítarlegri kynning á mér frá þeim, svona ef hitt var ekki nóg..

en einhverjar barnalandskonur voru samt greinilega sammála mér í því að það væri óþarfi að níða stelpurnar þar sem umræðan um þær var tekin úr umferð.. hinar nýta þá bara tækifærið og tjá sig um hvað ég er mikill lúði í staðinn..

kl. 22:50 | holla ( 16 )
logi geirsson er uppáhalds handboltamaðurinn minn.. gaurinn þrumar í smettið á einhverjum þjóðverja (sem er fyndið) og kallar þá svo væluskjóður (sem er ennþá fyndnara).. vildi að ég hefði séð þetta

svo erann svo góður, alltaf að mixa eitthvað með veikum börnum og skrifar um sjálfstraust og sjálfsímynd og hrós á síðunni sinni.. og rúsínan í pylsuendanum er lagið.. það er snilld, ég er búin að vera með það reglulega á heilanum síðan ég uppgötvaði það fyrst.. fyrst þúst.. 2-3 árum

það kemur daguuuur það kemur daguuuuur
svona syngur maður brosandi með og hristir axlirnar og smellir fingrum í takt

áfram logi

(alexander petterson fær samt hrósið fyrir flottasta boddíið og að vera alltaf með fínt hár)

kl. 14:30 | holla ( 5 )
konurnar á barnalandi eru skilgreiningin á konur eru konum verstar..
í stað þess að níða eymingja stelpurnar.. þá finnst mér frekar þær ættu að pæla í því hverskonar ógeðiskallar nýta sér ástand þessara stelpna.. ein þeirra er klárlega veik og þarf ekki á því að halda að bunki af einhverjum kaftakellingum á barnalandi séu að tala um að hún sé ljót eða feit eða ógeðsleg

smá dæmi

- Þessi manneskja er ógeðsleg í alla staði og ég vorkenni ættingjum hennar
- þessi stelpa er bara virkilega ófríð og hryllilega horuð, og vantar margar skrúfur í hausin á henni
- Það geta þær unskast í ógeðistað mannsins sem rekur strippstaðina þær eru nógu heimskar til að vera þar.
- þær eru ljótar óhreinar og haga sér eins og druslur


æ.. mér bara blöskraði

hér er um supergirl keppnina, sem þessar stelpur voru að taka þátt í

helvítis feðraveldismýtan og gagnkynhneigða forræðið

kl. 12:48 | holla ( 28 )
28.
jan

( 2007 )
ég gerði góða tilbreytingu í íþróttaglápi, þeas frá handboltaleiknum sem ég svaf yfir í gær yfir í undanúrslitin í bikarnum í körfunni..

mínir menn, glæsilegastir allra (bróðir minn samt klassa glæsilegri en hinir, það er bara svoleiðis), unnu grindavík í framlengingu.. ég er orðin vel sjóuð í ofsafengnum fagnaðarlátum eftir evrópumeistaratitilinn síðustu helgi og hoppaði þess vegna klappandi og æpandi" ÍR" í áhorfendapöllunum í grindavík.. úffffff þetta tók á taugarnar og sálina í þriðja leikhluta (sá hluti á eftir að ofsækja mig í martröðum) en allt hitt var svooo skemmtilegt

dem hvað ég hlakka til að fara í höllina! mitt lið hefur ekki enn tapað leik í höllinni þannig ég hef mikla trú á þessu.. (ír vann bikarúrslitin 2001 og við unnum alla 6 leikina í síðustu viku)

ég ellllllska ír strákana, var búin að gleyma hvað það er gaman að mæta á leik

kl. 22:24 | holla ( 3 )
auuuuðvitað fór eiki hauks áfram.. gaurinn er leddjend! ég kaus hann! áfram eiki
kl. 00:32 | holla ( 5 )
26.
jan

( 2007 )
kærastinn minn og eiginmaðurinn eru inní eldhúsi að sýsla eitthvað ægilega fínt inní eldhúsi og ég ligg bara uppí sófa á meðan (ég er ekki bara svona löt, ég er líka lasin sko..).. haldiði að ég sé vel gift?

bílinn minn er líka nýbónaður og þrifinn allstaðar (líka inní).. mm ég á eiginlega óaðfinnanlegan kærasta (að frádregnum vondu bröndurunum).. ég ætti eiginlega ekki að verað segja frá þessu hérna, þá á einhver gæra eftir að reynað stela honum..

ég vaknaði í nótt lasin, eþs að deyja úr hita og langaði helst að fara í klakafótabað (hversu veikur þarf maður að vera til að vilja það) og fór smá að gráta yfir að vera búnað skemma afmælið hans hans orra, við ætluðum nefnilega á sjávarkjallarann í kvöld..

en við förum bara seinna í staðinn.. :)

kl. 20:32 | holla ( 5 )
gunnar steinn er með einhverja mega skyggnigáfu þessa dagana.. í gær var ég að hlaupa niður stigann í vinnunni og hann hugsaði "vonandi dettur hún ekki" og hálfri sekúndu seinna var ég næstum hrunin á grillið..

hann spáði líka rétt um hagnað LÍ (sem var alveg longsjott miðað við spárnar) oooog giskaði rétt á breytingu gengisins í %...

þetta fer að verða grunsamlegt..

kl. 14:40 | holla ( 5 )
elsku besti sæti klári yndislegi sambýlismaðurinn minn, hans orri, á afmæli í dag!
hann er svo mikið sætabrauð að mér fannst ekki annað viðeigandi en að setja hérna með mynd af okkur í sól og góðu veðri frá síðasta sumri


og ein af honum og syni hans

kl. 14:24 | holla ( 5 )
25.
jan

( 2007 )
ég horfði á kastljós áðan því mig langaði svo að sjá umræðurnar um klofning framboðs öryrkja og eldriborgara.. mér finnst súrt að sjá að um leið og framboð að mínu skapi er í umræðunni, þá verður einhver sundrung meðal þeirra en ég vona þau leysi úr sínum málum..

vandræðalegast í kastljósinu var þegar maðurinn sem flytur inn "detox" fótanuddtæki með rafskauti drullaði uppá bak fyrir framan lækninn.. "uhh þetter sko gamalt rafskaut.. mikið notað.."

fyndnast við þá senu alla samt var þegar gaurinn var að tengja tækið, það minnti mig svo geðveikt á vídjóið með guðmundi í byrginu.. pían hlýtur að vera orðin nokkuð fær rafvirki eftir að hafa lært að tengja allt þetta sjitt..

kl. 21:40 | holla ( 2 )
ohh kræst.. óli geir er mesta sorp sem keflavík hefur alið af sér (og allir vita hvaða álit ég hef á keflavík).. gaurinn er ennþá bitur yfir að hafa verið sviptur titlinum.. hver í alvörunni vill vera herra ísland.. og er að farað halda versta partý sem hefur verið haldið á íslandi.. ég veðja hundrað milljónum að þetta sé partýið þar sem froðuvélin verður notuð í fyrsta skipti.. en annað sem verður þarna
- undirfatasýning frá adam og evu
- beerbong keppni
- eldgleypar
- bongo show

og rúsínan í pylsuendanum
"hver veit nema það verði blautbolakeppni"

hvaða lólæf aular hafa í alvörunni gaman af blautbolakeppni? og af hverju eru stelpunar svona í kringum hann á myndinni??? ég myndi ekki koma nálægt þessum gaur þó það væri til þess eins að hafa hægðir á hann

ég á ekki til krónu

kl. 11:42 | holla ( 12 )
ú það er talað um okkur á iceland express blogginu
ég kann að meta þetta! ég elska iceland express

kl. 10:26 | holla ( 2 )
24.
jan

( 2007 )
ef kærastinn minn viðraði þá hugmynd við mig að fara í brúðkaupsferð á handboltaleik þá myndi ég hætta við að giftast honum..

annars er ég ánægð með velgengni handboltalandsliðsins.. í tilefni þess ætla ég meirað segja að horfa kannski á leikinn á morgun.. verð að viðurkenna að ég er ekki búnað horfa á neinn leik..

ég er búnað vera lasin heima í allan dag og eyddi deginum í að glápa á house, sem er svoooo vond hugmynd þegar maður er lasinn.. búin að greina sjálfa mig með allskyns sjúkdóma

kl. 23:09 | holla ( 2 )
ohhh.. froðuvél til að hafa á skemmtistöðum.. enn ein ástæða til að fara ekki á djammið.. og fyrsta froðudjammið verður í keflavík.. kemur mér ekki á óvart
kl. 20:11 | holla ( 5 )
það eru ekki margir sem geta státað sig af því að vera á heilsíðu í fréttablaðinu tvo daga í röð (pdf - bls. 9).. iceland express rúls! (smell fyrir stærri)

bannað að hlæja að því hvað bikarinn er lítill!

kl. 09:35 | holla ( 12 )
23.
jan

( 2007 )
í dag veiti ég mikilmennskubrjálæðisverðlauninn

1) tom cruise, fyrir hlutverk sitt sem kristur vísindakirkjunnar
2) guðmundur í byrginu, fyrir læknandi sæði
3) ástþór, fyrir enn eitt forsetaframboðið

*klappklappklapp*
í verðlaun eru risastór kóróna, rauð skykkja með svona hvítu loðnu á endunum, hásæti og riiiiiiisastór sproti



ef þið hafið aðrar tilnefningar þá er tekið við þeim í holla

kl. 17:14 | holla ( 5 )
það er nú meira sem kaupþing eyðir í auglýsingarnar sínar.. fyrst john cleese og svo katrín.is (fréttablaðið.. pdf - bls. 11)

kl. 09:12 | holla ( 9 )
22.
jan

( 2007 )
æ dón geridd.. auðkennislykillinn fyrir netbankana var sendur heim í dag.. framan á umslaginu er mynd af nylon og texti undir "við vitum ekki hver þú ert... fyrr en þú notar auðkennislykilinn"

ég skil ekki af hverju ég ætti að vilja að nylon vissi hver ég væri..

og hver setur nylon framan á umslag sem er ekki sent til neinna barna?

kl. 12:54 | holla ( 17 )
21.
jan

( 2007 )
það vantar reyndar ísland á medalíuna en svalt samt

kl. 19:22 | holla ( 14 )
20.
jan

( 2007 )
hah við tókum líka undanúrslitin á móti sviss.. 3-2

við erum komin uppí evrópumót a-þjóða og keppum í úrslitum á morgun kl 10 á móti írlandi!

kl. 21:32 | holla ( 6 )

mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox