
29.
sep
( 2006 )
í dag var síðasti dagurinn minn sem yngst í vinnunni.. ohj þetta er sennilega í síðasta skipti ever þar sem ég verð yngst á vinnustað.. til að toppa þetta alltsaman fór ég og keypti gleraugu eftir vinnu.. þau eru samt hönnuð af tom ford þannig þúst.. þetta sleppur alveg.. fæ þau á föstudaginn..
á morgun er ég að fara í hópeflisferð með vinnunni.. við förum suður og á vélsleða á einhverjum jökli og svo í bústað að grilla og gista og þannig.. nema það mega koma makar með í bústaðinn.. og ég á engan maka þannig það verða allir bara í sleik og ég þriðja hjól.. sem betur fer var gsm boðið með þannig við verðum tvö bara sem einhver vandræðaleg þriðju hjól.. og hann nýi gaurinn í ofan á lag ha ha..
kl. 23:00 | holla ( 1 )
ég er að farað horfá nýjasta one tree hill í kvöld.. ég hlakka ýkt til.. það er svo mega spennandi að gerast og nathan er kannski að deyja.. vonandi ekki því ég er skotin í honum.. held það sé aðallega því hann er með svo fínar hendur og góður í körfubolta.. ég þoli ekki lucas.. hann er alveg eins og ryan, mega gúddígúddí sem heldur að hann geti bjargað heiminum og að allt snúist um sig..

(nathan er hægra megin, lucas mongó er vinstra megin)
kl. 11:19 | holla ( 11 )
28.
sep
( 2006 )
ég hljóp, að eigin ósk, cooper test.. ég hljóp 2600m sem skv þessari töflu þarna er í efri mörkum good.. næst ætla ég að hlaupa 2800.. þá þarf ég líka að fara út að hlaupa meira hmm.. ég er ekki búnað vera eins dugleg að hlaupa og ég ætlaði mér í sumar..
kl. 18:32 | holla ( 5 )
ég var að labba úr delí með pastað mitt í poka og mundi eftir að hafa lært svona þrívíddarforritun í dtu og fékk geðveika hugmynd.. hér eftir munu þrívíddar gleraugu fylgja með öllu sem ég smíða í bankanum..
svo rifjaðist líka upp fyrir mér þegar unnur birna datt.. þetta verður alltaf fyndið .. greyið..
kl. 12:09 | holla ( 3 )
ég veit ég er ýktur nölli.. en mér finnst þetta geðveikt spennandi hugmynd og ég hlakka til, vona bara það verði ekki mikið skýjað..
kl. 16:09 | holla ( 8 )
ég ætlað plögga togga.. þar sem ég kann hvorki að meta rokktónlist - gítartónlist whatever.. né svona loðna menn (djók gummi) þá ætla ég barað benda áhugasömum á að sjá hvað gummi skrifaði um hann..
kl. 13:34 | holla ( 0 )
26.
sep
( 2006 )
ég er með M.Sc. í computer systems engineering frá dtu.. og leyfi frá iðnaðarráðuneytinu til að kalla mig verkfræðing..
veit ekki hvaða óskaplegu máli þetta skiptir skólafélaga mína úr verkfræðideildinni í HÍ en það gerir það greinilega því vinir mínir eru búnir að lenda í því að rökræða við verkfræðinema útí bæ um það hvort ég sé nú í alvörunni verkfræðingur.. og annar vinur minn sem er ekki einu sinni búinn með bjéess sagði "en katrín.. þú ert samt ekkert verkfræðingur.."
núúúú ókei... betra væri að fólk myndi kannski bara hætta að velta sér uppúr þessu og eyða tímanum frekar í að klára prófin sín ha ha ha..
kl. 13:42 | holla ( 19 )
justin var hjá leno í gær, hann er svo ýkt sætur og hot, ég vissiggi hvert við hans ætluðum,.. dansaðu fyrir mig djei tí!
kl. 09:18 | holla ( 12 )
25.
sep
( 2006 )
nýja top model er algjörlega off the hook.. tyra fer hamförum í sjálfhverfunni og stelpurnar eru allar lúnatiks og amk helmingurinn með mega sorglega forsögu.. þúst ein went from homeless to homecoming queen og stefnir hærra.. ahh gott sjónvarpsefni!
kl. 14:55 | holla ( 8 )
þessi dagur verður skráður í sögubækurnar sem dagurinn sem ég varð gömul..
ég fékk recept fyrir fjarsýnisgleraugum:|
fyrst ég er orðin svona gömul verð ég að finna mér einhver svona keramíkkvennagleraugu, svona með glansandi rauðri umgjörð.. eða eins og kona gleraugnasölumannsins í fóstbræðrum var að hanna..
kl. 13:57 | holla ( 3 )
22.
sep
( 2006 )
það er í fyrsta skipti haust í mínu lífi og ég ekki í skóla.. það eru aftur á móti allir í kringum mig í einhverskonar námi og mér finnst ég útundan og ég er abbó.. kannski ég fari bara í eitthvað kúl næsta haust...? (með vinnu)
kl. 15:40 | holla ( 13 )
halli var að biðja fólk að kommenta og ég skil það svoooo vel! það er fáránlega leiðinlegt að vera eitthvað að blogga og fá ekkert fídbakk.. þess vegna er ég ó svo ánægð með þessa sem eru svona duglegir að kommenta hjá mér (þið vitið hver þið eruð) og verð alltaf ýkt ánægð þegar einhver nýr kommentar..
þannig takk ýkt mikið þið sem kommentið og þið hin endilega verið duglegri, þetta verður miklu skemmtilegra þegar bloggið er svona gagnvirkt, ekki satt?
kl. 09:40 | holla ( 21 )
21.
sep
( 2006 )
ég var með mæspeisið mitt lokað fyrir aðra en vini mína.. og segi svo í textanum að ég vilji ekki fá add rívkest nema fá skiló fyrst eða ég þekki fólkið .. sem er heimskulegt þegar það er ekki hægt að skoða prófílinn.. þannig hann er ekki lengur lokaður.. þannig.. sendu mér skiló þar, mér finnst það gaman! persónulega finnst mér mitt mæspeis það fínasta í bransanum...
kl. 17:05 | holla ( 12 )
mig vantar kærasta.. hann þarf að vera fyndinn og sætur, mjög skemmtilegur, gáfaður og helst búinn í námi, hann má helst ekki djamma oftar en 1x í víku án mín og hann þarf að nenna að gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggilegt með mér (annað en að horfa á vídjó og borða pizzu).. hann þarf að vera með fína vinnu og góð lykt af honum, hann þarf að vera temmilega rómantískur og mjög góður og nenna að klappa mér og knúsa og stundum þvo bílinn minn (plís).. best væri að hann væri líka góður í einhverri íþrótt svo ég gæti komið og horft á hann keppa og dáðst að honum og vera þá á æfingum á svipuðum tíma og ég (he he). Hann þarf að segja fallegt við mig á hverjum degi og sýna mér næga athygli.. ef einhver telur sig passa í þennan prófíl og vill vera kærastinn minn býð ég í þriggja rétta dinner 21. október
Forréttur:
Austurlenskur skötuselur og snöggsteikt risahörpuskel í sesam- chilli gljáa með seljurótarmauki á kartöflu rösti
Aðalréttur:
Glóðuð nautapiparsteik með fínt skornu grænmeti “Julienne”
& villisveppagljáa
Eftirréttur:
Créme Brulée
kl. 15:13 | holla ( 22 )
grapewine er það eitt alneikvæðasta blað sem ég hef lesið.. ég fletti stundum í gegnum það en nenni ómögulega að vera að lesa eitthvað blað sem gerir ekkert annað en að finnast allt ótrúlega hallærislegt eða ömurlegt.. það voru til dæmis skrifaðar 3 eða 4 greinar um hvað supernova er glataður þáttur og magni ekkert svalur..
mér finnst leiðinlegt að þetta sé það sem útlendingar lesi því það skín eitthvað svo mikið í gegnum þetta blað svona "oj íslendingar eru svo miklir smáborgarar mimimimi"
jeez komist yfir sjálfa ykkur eða flytjið í alvöru stórborg þar sem allt og allir eru nógu kúl (þúst.. ég var í NY skiluru og það eru allir ýkt kúl þar ALLIR!)
kl. 14:19 | holla ( 12 )
ég er búnað verað hlusta mikið á nýju justin plötuna og ég kann vel að meta hana.. og ég elska justin hann er hot.. en það fer geðveikt í taugarnar á mér að hann hafi verið eitthvað ræða eiturlyfjaneyslu sína.. ég er ekki að meta eiturlyf eða að fólk sé að nota þau
kl. 11:54 | holla ( 2 )
20.
sep
( 2006 )
ohh þetta vesturgötuflipp er pirrandi.. sko.. þettersvona:
vesturgata
ránargata
bárugata
öldugata
túngata
nú eru neðstu hlutar alls nema túngötu einstefna í sömu áttina.. þannig að ef mig langar til að keyra neðsta hlutann af ránargötu til að gá hvort það sé laust stæði (og í alvöru talað, þið sem eigið ekki heima hérna leggið annarstaðar).. og ef það er ekki laust.. þarf ég að keyra fáránlega stóran hring (garðastrætið út að túngötu, þar upp og niður götu sem ég man ekki hvað heitir og aftur í ránargötu nema hina áttina) til að leggja ofar í ránargötu..
það hefði alveg mátt snúa þessari einstefnu hinsegin..
kl. 18:53 | holla ( 8 )
brynjar már: við erum rosalega góð
kristín: já og þú ert fáránlega góður í að herma eftir nate dogg
brynjar már: ég er BETRI en nate dogg OG VIÐ erum betri en black eyed peas, það er alveg á hreinu
kristín: ég meina við erum spiluð ýkt mikið á FM og á popptíví
brynjar már: tónlistarhæfileikar felast í tánum, það er eina mögulega ástæðan fyrir því að þú ert svona hæfileikarík
kristín: já við ættum að stefna á erlendan markað það er ekki spurningin
brynjar már: já við erum svo góð að við eigum aldrei eftir að týnast í þessu flæði af errogbé/rappi sem er í gangi í heiminum
kristín: byrjum bara á því að snúa hluta af minnsirkus síðunni okkar yfir á ensku
brynjar már: já ég er líka með geðveika hugmynd að texta hlustaðu
"tokk tú mí tokk tú mí tell mí jor neim, æ træ tú púll avei bör æm koropp in jor geim"
kristín: AAAAA þetta á eftir að gera okkur fræg, SETJUMETTA Á MINNSIRKUS!
brynjar már: ah óh já við rúlum, VIÐ RÚLUM þennan popp heim og minnsirkus síðan okkar er fáránlega flott
ég (katrín sko) velti samt einu fyrir mér.. af hverju stafa þau snooze sem snooce í þessu lagi?
kl. 13:57 | holla ( 10 )
ohh ég er svo fáránlega heppin með fjölskyldu.. þegar ég sótti bílinn minn áðan var pabbi búinn að þvo hann! guð hvað ég var glöð..
ég var svo kúl á því að kaupa millistykki fyrir macbookina mína til að tengja við skjáinn minn þannig núna get ég lagst uppí rúm og notað frontrow til að stýra vídjóglápinu.. ég elska apple!
kl. 00:43 | holla ( 3 )
19.
sep
( 2006 )
ég er búnað fá eina afmælisgjöf.. eða sko ekki búnað fá, mamma og pabbi voru að segja mér að þau ætla að gefa mér uppþvottavél!!!
á bara eftir að finna hvernig er best að kaupa og installa og svona aaaa það er svo mikil snilld, ég haaaata að vaska upp! mér finnst það langleiðinlegasta húsverkið
kl. 19:26 | holla ( 9 )
ég elska will,
mér fannst mjög gaman að fara á ballad of ricky bobby.. það var allt svo stórt.. bíóhúsið var svo stórt og poppið var svo stórt og kókið og allt fólkið var yfir 2m.. svona er allt í ameríkunni.. og við löbbuðum í vitlausa átt en þúst bara til að sjá hell's kitchen.. í alvuru
ég hlakka til að sjá þessa
kl. 15:48 | holla ( 3 )
mBlog
Safnið
2010 september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2009 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2008 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2007 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2006 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2005 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2004 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2003 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2002 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2001 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní