
31.
ágú
( 2006 )
ég þekki líka gaur sem er í hljómsveit sem túraði með hljómsveitinni hennar storm og er búnað fara í sleik við hana..
kl. 15:48 | holla ( 4 )
aaaa ég drakk kaffi, ég verð almennt frekar stressuð og afar manísk af kaffi.. en svo týndi ég kóða og fékk mesta panik kast sem ég hef fengið lengi.. þurfti að skrifa allt aftur.. og núna er ég samt ennþá að fríka út af stressi útaf þessu þó ég sé búin að laga.. fokk kaffi og fokk visual studio..
kl. 15:46 | holla ( 6 )
af hverju lítur dave nevarro út eins og lesbía? dude er betur plokkaður en ásgeir kolbeins.. og gilby clark? hver stælar á honum hárið MAMMANS??..
kl. 10:39 | holla ( 7 )
dilana áður en hún reykti hundraðþúsund milljón sígarettur, fékk sér fleiri göt í smettið og tattú... sko þúst vinur minn sýndi mér þetta;)
(vona að gömlu áms vídjóin hans magna komist aldrei á youtube he he)
kl. 10:14 | holla ( 12 )
bara minna ykkur á að ég á afmæli eftir 2 vikur og einn dag.. ég myndi koma með tillögur um afmælisgjöf ef mig langaði í eitthvað.. ég vildi að ég vissi hvað mig langaði í, þá gæti ég líka vitað hvað ég ætti að kaupa mér í NY..
ég held að vandamálið sé bara að ég á allt.. nema uppþvottavél.. mig langar í uppþvottavél
kl. 10:05 | holla ( 4 )
30.
ágú
( 2006 )
held samt þessir latínó "fordómar" mínir séu líka komnir af því að mér finnst óheyyyyyrilega leiðinlegt að tala við útlendinga..
"allt er svo fallegt á íslandi, hefuru unnið í fisk? þekkiru björk? hvernig segiru halló á íslensku? jú segðu ekkva á íslensku!! prufaðu að segja jaríjarí á mínu máli HAHAHAHA"
kl. 23:49 | holla ( 6 )
eitruð vínber...
..hans sakar mig um að vera með latínó fordóma.. ég get ekkert að því gert að mér finnast bara gömlu góðu íslensku strákarnir sætastir.. sérstaklega ef þeir eru fyndnir.. sjáiði bara trent

ég er líka bara abbó því hann fékk að hitta kelis.. mig langar að hitta kelis.. og manninn hennar..
latínógaurar eru alltaf semísveittir og glápa á brjóst (í alvöru, hafiði farið inná moose með klíviddsj?)...
sem minnir mig á.. við verðum að fara á moose þegar við förum til köben djók
kl. 23:20 | holla ( 0 )
guð.. ég sem var búin að leyfa hansa að ganga í allt málningardótið mitt nema augnblýant (það er svo emo þegar strákar eru með blýant, nigga please) en svo mætir magni okkar bara með mjög svo látlausan blýant.. held ég þurfi að endurskoða þetta... kannski ég leyfi honum bara að nota gullblýantin til að byrja með,..
kl. 23:03 | holla ( 0 )
hvar kaupir magni eiginlega fötin sín???? mig langar að vita það bara svo ég geti keypt alveg eins föt á hann hansa minn í jólagjöf.. og afmælisgjöf.. og haustgjöf og sumargjöf og páskagjöf og mánudagsgjöf
kl. 22:35 | holla ( 0 )
elskulegur og ástkær vinur minn hann tinni bað mig að plögga þessu .. ég er nú yfirleitt ekki mikið í plögginu en af því mér þykir svo vænt um tinnbert músason þá geri ég þetta fyrir hann...
það sem er skemmtilegt þarna (að mínu mati ) er lokbrá of kors, XXX Rottweiler hundar, Dóra Dna, Bent, Johnny Sexual, Jan Mayen..
svo eru líka Brain Police, Búdrýgindi, Coral, Æla, Morðingjarnir, Original Melody, Noise, Koja, Telepathetics, I Adapt og fleiri.
kl. 16:03 | holla ( 0 )
ókei get ekki sagt ég sé að meta rokkið en ég fokking elska magna
datt aðeins inná þáttinn á netinu og dilana að gráta er það eitt fyndnasta sem ég hef heyrt!
af hverju er lúkas með skúnk í hárinu?.. ég held næstmest með lúkasi
kl. 10:31 | holla ( 2 )
mér finnst fólk almennt ekki nota orðið klósettkafari til að níða aðra nóg..
kl. 18:42 | holla ( 2 )
davíð (með bakköppi frá einari baldvini) servar fólk í bænum að hætti you got served.. (sem er ein af heilögu þrenningunni, you got served, drumline og bring it on)
ain't nuthin but a bling bling
kl. 09:33 | holla ( 23 )
28.
ágú
( 2006 )
hversu mörg ár eru síðan tantraþættirnir voru sýndir?
ég mætti einum af gaurunum útá götu áðan og fór að hlæja.. þetta gleymist aldrei
kl. 17:14 | holla ( 6 )
þessi var allltaf uppáhalds wu-tang meðlimurinn.. sennilega af því hann er á ready to die..

ég er ánægð með nýju plötuna
kl. 14:22 | holla ( 5 )
úfffff hvað mig langaði ekki á fætur í morgun.. ekki að mér leiðist lífið heldur var rúmið mitt bara óóó svo næs og virkilega sjarmerandi svona snemma á mánudagsmorgni
zzzz
kl. 11:16 | holla ( 6 )
27.
ágú
( 2006 )
ég gleymdi.. ég hitti tomma frænda og vin hans (fokk ég man ekki hvað hann heitir, fáránlega leim..) og ég var búnað lofa að minnast á þá á blogginu.. tommi sagði svo fyndið "ohh ég elska þetta kúlulaga snið"... mmjááá held ég verði að segja að tommi sé fyndnasti frændi minn á eftir degi, dagur er nottla fyndnastur þó hann kunni ekki að segja mjög margt.. ég hef aðallega heyrt "aþþó.. koddu"
kl. 18:26 | holla ( 8 )
það var gaman í gær..
var sko vinnupartý.. hjá sviðinu mínu.. hjá hafravatni.. ég fer aldrei útá land þannig ég týndist.. fór á reynisvatn.. en fann útúr þessu fyrir rest.. ég get ekki sagt ég eigi marga vini í vinnunni þar sem minn hópur er staðsettur annarstaðar en flestir.. ég var td spurð hvort ég væri kærasta þriggja stráka (þetta var nb makalaust partý) og einu sinni hvort ég væri sumarstarfsmaður..
eftirfarandi samræður átti ég við konu sem ég hef aldrei séð áður
hún: "þið verðið að vakna hálftíma fyrr á miðvikudaginn og kjósa magna!"
ég: "hehe ef ég vakna hálftíma fyrr en venjulega þá er klukkan klárlega samt ekki minna en sjö.."
hún: *bendir á mig með vísifingri og hækkar málrómin um 700db*"ÞÚ ERT BARA LÚSER"
ég: "ehh sko ég var ekkert að eh meina sko ehh.. að ég myndi ekki vilja ehh kjósann bara þúst að ég ehh.."
hún: "ÉG NENNI EKKI AÐ TALA VIÐ ÞIG" *hnuss og leit undan*
og svo settún upp einhverjar mega grettur þegar ég nálgaðist.. (óska ég henni þynnku og fyllerísmórals, nei gríííín)..
sem betur fer á stóri bróðir minn marga vini og ég má alveg hanga með þeim skiluru þannig það var alveg gaman, sérstaklega þegar snæbjörn sagði mér reglurnar.. við ættum að gefa út bók saman.. hans kafli yrði samt stærri en minn en ókei
fór svo pikkaði upp stóra bróður minn í partý (af því hann er svooooo bestur og skemmtilegastur) og þá kom upp fyndnasta atvik sem ég veit um.. ég var reyndar búnað lofa að segja engum þetta en þúst.. ég er búnað segja öllum sem ég þekki...
ónefndur maður (sem er mega góður á því samt, i dig him og ég má ekki stríða honum, eazy bannar) var ekki að fatta hvernig ætti að opna afturhurðina á bílnum, þannig bróðir minn skrúfaði niður rúðina og gaurinn ekkva "hvernig opnar maður eiginlega???" og bróðir minn sagði "þú klappar tvisvar" og gaurinn svona eitthvað efins en rétti svo bróður mínum allt sem hann hélt á og klappaði tvisvar.. mega næs múv.. (ég var í golfi áðan og hugsaði um þetta og fór að hlæja ein upphátt)
fór með þeim á vegamót.. danni og maggi voru smooth.. sjii hvað þeir voru smooth.. og það var gaman..
ókei... sko lokaniðurstaðagærkvöldsins er sú að (a-b-og-c vissi ég fyrir)
a) ég er smooth
b) bróðir minn er smooth
c) frúin hans er smooth
d) vinnufélagar hans eru fáránlega smooth
kl. 00:36 | holla ( 0 )
á maður í alvöru að hafa samúð?
"Það er fyrst og fremst sonur minn sem ég á heima á Íslandi og fjölskyldan mín og vinir"
hvernig væri að hann hefði bara hugsað útí þetta áður en hann reyndi að smygla 2 kílóum af kókaíni.. ég fyllist svo miklum óbjóð þegar minnst er á kókaín í mín eyru OJ! kókhausar finnast mér sorglegustu hausarnir
kl. 10:47 | holla ( 7 )
af því mér finnst svo gaman að skoða fína stráka þá finnst mér glæpur gegn mannkyni að liggja ein á þessum myndum sem ég á af kobba vini mínum sundhetju..

reyndar ætla ég að liggja á bestu bitunum sjálf af því ég tými ekki að deila fínni myndunum með öllum he he (dude er með fínasta líkama sem ég hef séð)
og ég nenni ekki að fá komment á þessa færslu þannig það er ekki hægt að holla (ég áeta blogg, ég má banna komment þar sem mér sýnist)
kl. 10:20 | holla ( 0 )
þegar ég hélt að frægðarsól mín væri algjörlega sest (og kulnuð, ég væri orðin has been) þá kom fréttablaðið mér til bjargar.. HÚrra fyrir fréttablaðinu..
ég sagði samt klárlega að unbelievable væri all time uppáhalds lagið mitt, fréttablaðið fær samt kredit fyrir að ritskoða mig minna en DÉvaff gerði almennt
kl. 08:47 | holla ( 0 )
mBlog
Safnið
2010 september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2009 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2008 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2007 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2006 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2005 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2004 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2003 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2002 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2001 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní