
ég var að horfa á innlit útlit í gær (í alvöru, geðveikt áhugaverður þáttur, það var bæði farið í það hvernig maður getur farið í einhverja vél og prentað út digital myndir og hvernig á að setja svona fúasjitt á fúinn pall..)
alla vega.. það var farið í heimsókn til konu og skoðað barnaherbergið.. það var ekki fínt.. það var reyndar bleikt, það er alltaf plús.. en það var eitthvað ótrúlega ljótt málverk af kleinuhring á veggnum og svo kristalsljósakróna, sem er reyndar líka fínt en í barnaherbergi kommon...
málið var samt að konan sagði "ég vil að dóttir mín verði með dýran smekk"
mhm það er einmitt eitthvað sem maður leggur áherslu á þegar maður elur upp barnið sitt..
kl. 09:07 | holla ( 2 )
28.
maí
( 2006 )
ég fór í vinnupartý í gær.. það var ótrúlega gaman.. hands down skemmtilegasta vinnupartý sem ég hef farið í.. ég er svooo heppin með samstarfsfélaga, ótrúlega skemmtilegt lið þarna.. ætli ég þurfi ekki að byrja daginn á morgun að rifja upp fyrir öllum hvað þeir voru að tala um (djók)
kl. 23:23 | holla ( 0 )
27.
maí
( 2006 )
ég kíkti aðeins út með hansa í gær..

ég fór samt heim þegar ég fattaði að ég stóð og horfði yfir dansgólf á skemmtistað og var að hlæja upphátt að því þegar ég sagði í vinnunni "Ojjj hver er með einhverja ógeðslega osta hérna.." en var svo leiðrétt.. það var einhver á klóstinu..
kl. 12:18 | holla ( 3 )
26.
maí
( 2006 )
viltu kaupa laptop??
ég er að selja lappann minn einfaldlega fyrir þá ástæðu að ég á borðvél heima og lappa í vinnunni...
hann er tveggja ára gamall en er samt í mega góðu standi, hann er vel með farinn því ég fer óþolandi vel með allt sem ég á (spurjið bara hvern sem er..) ótrúlega góð vél sem er búnað þjóna mér vel.. skjárinn er einn sá besti sem ég hef séð í fartölvu og þess vegna er þetta líka frábær vél að eiga fyrir þá sem eiga ekki borðvél..
við erum að tala um hp compaq nx 7010
* nýuppsett og öppdeituð ásamt öllum driverum
* splunku nýr 60 gíga diskur (sem fylgir 2 ára ábyrgð)
* 1,6MHz Intel Pentium M örgjörvi
* 512 MB RAM
* 15.4" TFT WSXGA + widescreen með upplausnina 1680x1050 (16M litir)
* dvd skrifari
* ATI Mobiliy radeon 9200 skjákort
* JBL hátalarar
* þráðlaust netkort og bluetooth
* 3,45x25,4x35,56 cm og 2,9 kíló
* bakpoki fylgir
hann er að fá ótrúlega góða dóma hjá notendum, 8,4 af 10 (vélarnar í þessari línu eru með mismunandi spekka)
mynd af akkúrat þessari vél hér
sambærileg vél kostar 227.900kr hjá opnum kerfum
tilboð óskast á katrin@katrin.is eða í síma 820-6727
plís ekkert rugl
kl. 22:43 | holla ( 2 )
vinur minn hann mangi yndisæði var að útskrifast sem matreiðslumeistari..

man hann gerir góðan mat.. tjekkið bara á grillinu!
annars var ég að ræða við uppáhalds ólann minn (og ég þekki marga!) og besta vin minn sem er ekki ljóshærður í dag um hversu frægðarsól mín hefur dvínað..
þetta byrjaði allt með því að dv dó og ég fæ aldrei luvin þar lengur og svo fékk ég ekki að vera með í landsbankaauglýsingunni og svo nú síðast var mér ekki boðið í kókpartýið..
nema hvað að ég og ragna vorum á röltinu og einhverjir gaurar voru alveg að þekkja okkur.. i still got it
kl. 22:14 | holla ( 5 )
ég á heima hér, það er mega næs

ég er að spá í að pósta bara myndum af mér með öllu bloggi það sem er eftir er.. þetter mín síða og ég má það
kl. 08:41 | holla ( 2 )
25.
maí
( 2006 )
ég hjólaði til gsm

það var mega hressandi
kl. 18:12 | holla ( 0 )
eins og það hafi ekki verið nógu pínlegt að horfa á eina dökkhærða og eina ljóshærða stelpu plús 15 klón af hvorri þeirra rembast við að dansa samhæfða dansa, þá ákvað ungfrú heimur að hrynja beint á fésið..
ég er svo mikil padda að ég er enn að hlæja að þessu.. þá er ég bæði að tala um bikinidansinn með hvíta sjalinu og þessu detti sjit..
kl. 15:36 | holla ( 3 )
23.
maí
( 2006 )
ég vil svo mikið fá svona með 1 gíg í minni.. en er ekki komin til íslands buhu, mig langar í svona núna
kl. 11:37 | holla ( 6 )
mér finnst svo gott að hansi búi hjá mér, ótrúlega vinalegt að hafa besta vin sinn alltaf around, þó hann sé kannski bara inní herbiggi.. eins og það var næs að búa með bestu vinkonu minni í danmörku..
ég kvíði svo fyrir því að hann fari *sniffsniff*
kl. 11:04 | holla ( 1 )
22.
maí
( 2006 )
ég er með sammara yfir að hafa sagt að blautt malbik væri besti útvarpsþáttur ever.. kronik er nottla í sérflokki og hefur verulega mótað mig sem hiphopaðdáanda, takk robbi fyrir allt
kl. 11:03 | holla ( 0 )
það verður seint sagt að mánudagur sé uppáhalds dagurinn minn...
kl. 10:00 | holla ( 2 )
21.
maí
( 2006 )
ég kíkti út með hansa og inam og vinkonu hennar í gær.. það var gaman, ég er ekki búnað fara út síðan ég var í nam nefnilega.. hápunktur kvöldsins var þegar við vorum beðin um skilríki á prikinu (we stiiiill got it!) skil reyndar ekki hvernig allir þessir underaged krakkar komast þarna inn ef við erum beðin um skilríki.. ekki að ég sé að hata á menntaskólastráka á djamminu ha ha ha..
kb var biggiddíboring
update: nema þegar gaurinn var að nudda "lellanum" í öxlina á stelpu eins og hann orðaði það sjálfur svo smekklega, það var fyndið
við kíktum líka á barinn, nýja pleisið.. alveg fínn, sérstaklega málerið nema hvað að þarna var stappað af ótrúlega sveittu djammliði.. svona fólki á mínum aldri og eldra sem er orðið ótrúlega sjúskað af djammi, oj! reyndar var líka sveittasti maður sem ég hef séð, þarna með skykkju.. verulega undarleg týpa..
sirkus var bestur.. þar voru menn að missa niðrum sig buxurnar og hneppa frá skyrtunni og lítandi út eins og gríski kynnirinn í júró (ég er skotin í honum.. i bet his phonenumer is 696969) og eitthvað fólk var næstum að ríða á okkur (oj ég æli við tilhugsunina um hversu ógeðslegt þetta var, fariði bara heim!)
einhver ógeðslegur evrópuhippi (eins og ég hata þá) var að stalka mig.. ég feikaði samt að hans væri kærastinn minn (og reyndi að kyssa hann, hann tók ekki vel í það, skiliggi, ég sem er ómótstæðileg og fáránlega góð að kyssa) og hansinn minn gaf gaurnum illt auga allt kvöldið, greyið á ábyggilega ekki eftir að sofa af nokkru sinni aftur hræðslu... (bara benda ykkur á að ylfa eða hans, komst aldrei að því hvort þeirra það var, kýldi gaur í gólfið sem var að áreita mig, ég á svo góða vini)
einhver stelpa þarna kom líka til mín og tjáði mér hvað henni þætti ég sæt og frábært hvað ég liti vel út og hún mætti alveg segja það við mig þó hún þekkti mig ekki neitt.. hún veit ekki að kærastinn hennar er sammála, nei nú er ég að grilla í ykkur..
hans sagði fyndnasta brandara í heimi sem hljóðaði svona "ég held þú sért að kúka" ylfa er vinsamlegast beðin um að minna sig á að útskíra fyrir sér þennan brandara (þú átt eftir að elsketta ylfa mehe he)..
ég hitti líka HELGU, hún er frábær og fáránlega ghettófab!
kl. 18:31 | holla ( 2 )
20.
maí
( 2006 )
áðan borgaði mamma min stóra bróður mínum sem er 31árs fyrir að bóna bílinn minn..
hljómar frekar twisted, en hönkarnir í ír voru að taka það að sér að bóna bíla fyrir monns þannig ég fór ótrúlega spennt með bílinn og bjóst við að þeir yrðu þarna berir að ofan og blautir og hafði hugsað mér að hanga þarna í einhvern tíma og dást að þeim.. en nei.. þá voru þeir bara í fötum, vonbrigði lífs míns
kl. 18:49 | holla ( 4 )
einhver gella sem heitir harpa og heldur að hún sé carrie (carrie er nb ekki í uppáhaldi hjá mér) skrifar verulega tilgerðalegar greinar í anda sex and the city í fréttablaðið og í dag er hún eitthvað að skrifa um að hún hafi verið að ræða við stjórnmálamann um samskipti kynjanna jaríjarí
nema hvað að þessi stjórnmálamaður hafi sagt að karlmenn vildu konur sem ekki væru búnar að vera með öðrum mönnum sem mér finnst vera einhverskonar fornaldar hugsunarháttur og karlrembumennska.. (nenni nú ekki einu sinni að fara útí furðulegar pælingar hennar þess háttar að konur pæli mega mikið í fyrrverandi kærustur kærasta sinna, það er efni í aðra grein)
mínar stjórnmálaskoðanir sem ég hef nú kannski ekki mikið látið uppi á þessari síðu hingað til hafa hallast meira á sjálfstæðisflokkshliðina og þar sem umræddur stjórnmálamaður er víst ekki sjálfstæðismaður og alls ekki bolli sem er svo sannarlega ekki mongó (ekki að það sé slæmt að vera mongó, ég þekki nokkra slíka og kann vel að meta þá) heldur bara mjög vinalegur og brosti fallega til mín á ingólfstorgi um daginn og mér þykir leiðinlegt að hafa verið að búa til þá kenningu að hann hafi sagt þetta, þá get ég huggað mig við að ég er líklegast ekki að fara að kjósa mann sem næst fer að leggja það til að íslenskar konur gangi í búrkum og spari blómið sitt þar til þær finna sér einhvern mann því þeir vilja jú ekki "mengaðar" (svo ég kvóti í greinina) konur..
kl. 01:13 | holla ( 10 )
19.
maí
( 2006 )
ókei mér er búið að finnast þessi fatboy búð frekar leim (í alvöru tala, hver kaupir sér fermetra af marimekko munstri?) nema hvað að áðan í sirkus rvk var einhver kona með svona 30 frunsur að segja manni að koma og prufa..
..dude! ég þori varla á laugaveginn af ótta við að smitast af frunsu frá þessari konu..
sá líka nýja snooze vídjóið. ég á ekki orð til að lýsa þeim slæmu tilfinningum sem sem þetta par gefur mér.. hlusta þau ekki á lögin sín sjálf? horfðu þau ekki á þetta vídjó? af hverju var stelpan með leðurhommahatt? af hverju er þetta í sjónvarpinu???
kl. 20:36 | holla ( 2 )
ég var að fá fastráðningu, til hamingju ég, ætla að fara og kaupa mér dragt og prik í rassinn og verða alvöru bankakona
ég sit við gluggann sem er nú ekki í frásögur færandi nema fyrir það að ég er helvíti stressuð.. fyrst kom risa býfluga inn og ég fékk nett panik en samt aðallega af því ég hélt hún væri fugl.. svo næsta sem gerðist var að það settist mávur fyrir utan gluggann og horfði reiðilega á mig..
þá fríkaði ég út.. þessi fuglafóbía er að drepa mig, ef það eru fuglar í nágreninu þá veit ég nákvæmlgea hvar þeir eru og hvert þeir stefna.. og ef það er í áttina að mér þá beila ég eitthvert annað.. er búin að komast að því hvað hræðir mig mest
* fuglar
* fara í kaf
* börn
* eignast ljótt barn
kl. 13:04 | holla ( 5 )
uppáhalds verðbréfamiðlarinn minn, hann óli, gaf mér sleikjó.. ég á enga mynd af óla en ég á mynd af sleikjónum sem er alveg nóg því þeir eru ekkert ósvipaðir.. báðir sætir og leika í höndunum á mér

sleikjóinn er samt fínni á litinn..
kl. 11:43 | holla ( 0 )
18.
maí
( 2006 )
hápunktur júró var samt klárlega simmi, hann var svo fyndinn að við hans ætlum að horfa á laugardaginn bara til að heyra hvað hann segir fyndið..
..í fyrra nenntum við því ekki..
kl. 23:29 | holla ( 0 )
æ æ æ aumingja silvía snúllusnúður.. henni leið ekki vel og það skein alveg af henni.. sennilega komin með drepleið á að vera föst í karakter í marga mánuði og láta svo púa á sig svona er ábyggilega ekkert spes, greyið gat ekki andað.. mig grunar að þessi karakter eigi eftir að deyja á næstu dögum
gaman samt að sjá að greiningadeild litháensbanka komst áfram með mjög svo vont fótboltalag, væri til í að sjá fleiri bankastarfsmenn á næsta júró..
kl. 21:51 | holla ( 4 )
mig langar á reykjavíktropik en bara á sunnudeginum því þá er allt sem mig langar að sjá, fyrst og fremst forgotten lores og svo líka auðvitað trabant, ghostigital og dr.spock
púkó að það sé ekki hægt að kaupa miða á bara einn dag..
kl. 09:36 | holla ( 2 )
ef þið hafið einhvern tímann verið að velta því fyrir ykkur af hverju ég fíla basket betur en fóbó og hanbó eða af hverju ég held með ÍR (fyrir utan nottla þá augljósu staðreynt að bróðir minn spilar þar) þá er þetta ástæðan
kl. 09:05 | holla ( 3 )
mBlog
Safnið
2010 september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2009 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2008 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2007 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2006 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2005 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2004 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2003 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2002 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2001 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní