
31.
des
( 2006 )
ég myndi koma með einhvern mega áramótapistlil ef ég nennti því.. held eiginlega að það stærsta sem ég gerði á árinu var að verða 26.. djók.. flytja í íbúðina mína 3, janúar.. ég ellllska íbúðina mína, hún er ó svo falleg og björt og svo er best að vera í sólbaði á svölunum.. líður ótrúlega vel á ránargötu
2007 byrjar samt vel, um miðjan janúar verður helvetia cup haldið á íslandi og við erum með fínasta lið.. reyndar verður spilað í höllinni en það er ábyggilega bara stemning.. ég hlakka amk mjög mikið til..
takk fyrir liðið ár allir og megi næsta ár verða betra en öll hin árin ykkar til samans, kveð hérna með mynd af vini mínum friðgeiri
kl. 15:41 | holla ( 4 )
29.
des
( 2006 )
í umræðunni um konuna sem fæddi barnið eftir að maðurinn hennar lét hana fá microlax
ég: já það fæddist útum rassinn á henni
hann: nei???
í umræðunni um lais flugeldasýninguna
ég: þeir eru að skjóta upp lógóinu
hann: nei???
þetta hefði samt bæði verið töff...
kl. 17:38 | holla ( 0 )
ég skil ekki hvað tíminn er fljótur að líða.. síðasti vinnudagur ársins!
ég er bara með áramótaheitið að mæta fyrr í vinnuna á nýju ári..
kl. 10:40 | holla ( 1 )
28.
des
( 2006 )
þeeeetter góður tími til að mæta í vinnuna.. beint í lunch! haha
annars held ég að ég sé komin á breytingaskeiðið eða með late meatsweats.. af því ég svitnaði svooooo mikið á æfingu í gær og í dag.. ég vona það sé þetta með late meatsweatið frekar.. ég meina ég borðaði alveg heila rjúpubringu á jóladag og eina sneið af hangikjöti annan í jólum ha ha..
eitt sem ég skil samt ekki er að ég er ekki hér.. hver er eiginlega að dæma þetta???
og annað, ég er ýýýýýkt montin af rögnu vinkonu minni sem er tilnefnd sem íþróttamaður ársins
kl. 11:54 | holla ( 8 )
27.
des
( 2006 )
uggh ég var á æfingu sem var doldið erfið og humarinn og hreindýrið og rjúpurnar og grauturinn og ísinn og laufabrauðið og rjómasalatið og graflaxinn og patéið og ostarnir og jólaölið og konfektið og allt brauðið er búið að hristast í einn risastóran hraunhnullung sem er ábyggilega 100kíló í maganum á mér.. oohhjj mig langar aldrei að borða mat aftur.. eða amk ekki kjöt..
æfing aftur kl 9 í fyrramálið..
það er samt doldið gaman að kitla bensa

kl. 22:20 | holla ( 2 )
svei vinnu milli jóla og nýárs
ég var svoooo þreytt í morgun! það er svo erfitt að vera í jólafríi og borða svona agalega mikið kjöt.. ég mæli ekki með staðnum tívolí (þar sem enricos var).. starfsfólkið skiptir sér af umræðum gesta oooog sveppasúpan þar er eins og sveppasósa
kl. 16:39 | holla ( 4 )
til að reynað minnka spammið á blogginu mínu er núna bara hægt að kommenta á síðustu 30 færslur.. bara svona fyrir þá sem hugðust kommenta á eitthvað eldra (haha ræt)
kl. 13:08 | holla ( 0 )
25.
des
( 2006 )
ó jólin eru svo yndisleg..
ég fékk óóóó svo góðan mat í gær (humar, hreindýr og panna cotta) og fékk óóó svo fallegar gjafir.. kæróinn minn kóar með tækjafíkninni minni og gaf mér fallegasta síma sem ég hef séð.. ég meina.. metal bleikur og með ljósi sem skín í gegn? og ég fékk hellings annað fallegt..
var svo í messu áðan (kórinn og orgelið er svo fallegt), er að farað farí kirkjugarðinn núna og fæ smjörgraut, rjúpur og ís i kvöld.. nate brown verður með okkur í mat í kvöld, sem mér finnst ótrúlega fínt.. mér finnst tilhugsunin um að vera ein í útlöndum og vera ekki boðið í jólamat neinstaðar hræðileg (theo dixon var með okkur í hitteðfyrra..)
vonandi finnast honum samt rjúpur betri en mér finnast þær..
kl. 15:44 | holla ( 2 )
22.
des
( 2006 )
god það er að vaxa risabóla útúr kinninni minni.. hún heitir fjóla og langar í dvd spilara í jólagjöf (ég fattaði að um leið og ég seldi xboxið mitt þá seldi ég dvd spilarann minn haha.. ekki það það sé mega vandamál þar sem það er dedboring að skipta alltaf um dvd diska.. kann betur að meta flakkara..)
kl. 23:54 | holla ( 2 )
ég skal alveg vera fyrst til að viðurkenna að ég hef aldrei þurft að gera handtak heima hjá mér og þar af leiðandi er allskonar sem ég veit ekki um húsverk og annað álíka.. sem betur fer er ég að vinna með mér reyndara fólki og get þess vegna alltaf spurt þau að því sem mig vantar að vita.. td hvort það eigi að geyma vakúmpakkað kjöt í ísskápnum og hvort það séu einhver trix við að ryksuga..
ég keypti mér nefnilega ryksugu um daginn (eftir að hafa fengið ráð frá björk auðvitað..) og var að prufa hana í fyrsta skipti áðan og lenti í ryksuguslysi.. ég var að ryksuga kantana í herberginu mínu og hreyfði ranann eitthvað í áttina að standinum sem geymir mestmegnis klúta og belti og ryksugan réðist á fína bleika silkitrefilinn minn og ætlaði að étann upp til agna.. ég rétt náði að grípa í endann á honum og toga hann út á móti ryksugunni.. það hefði verið hræðilegt ef hann hefði sogast inn í skítugan ryksugupokann (og ég hefði þurft að hringja í einhvern vinnufélagann til að vita hvernig ætti að bjarga honum þaðan he he..)
við hans fórum svo og keyptum okkur jólatré áðan.. það var eiginlega svoldið stærra en ég hafði ætlað.. en við keyptum samt minnsta sem var til.. erum búin að setja það upp í stofunni og nýju fínu seríuna sem ég keypti áðan í blómavali.. átti fínt samtal við starfsmann þar
ég: áttu svona seríu nema til að hafa inni?
starfsmaður: ég? heima hjá mér?
og með öllu fína jóladótinu sem ég á (sem er reyndar ekki svo margt.. ég keypti mér 3 í köben og sagði við hans að ef ég keypti 3 á ári þá væri þetta ekki svo lengi að safnast..) og ég átti sem betur fer eitthvað jólatréskraut sem mér hefur verið gefið í gegnum ári svo tréið er ekki alveg dedneikidd..
er búin að pakka inn öllum gjöfum! var ýkt lengi að pakka inn gjöf litla brósa, hún er svo riiiiiisastór (he he veit hann er að lesa þetta)
kl. 22:18 | holla ( 0 )
21.
des
( 2006 )
ég horfði á rize í gær.. það var skemmtilegt! það er samt alltaf fyndið að sjá þýðingar á svona myndum þar sem eru niggz í aðalhlutverki.. þarna var td crips þýtt sem crypts.. og um daginn sagði einn dómari í so you think you can dance "i ain´t got no junk in the trunk" og það var þýtt "ég er ekki með neitt dót" og í menaceIIsociety er sagt "down with a 187?" og það var þýtt "þeir eru niðri á 187. stræti".. man ekki meir lige nu en það er alltaf eitthvað skrýtið..
kl. 13:11 | holla ( 2 )
á morgun er stysti dagur ársins.. ég fagna því.. ég er orðin hálfþreytt á þessu skammdegi.. ég er samt eiginlega orðin þreyttari á þessu roki og þessari rigningu.. eða líka bara á því að fara óvart alltaf of seint að sofa.. skiliggi hvernig ég get alltaf gleymt mér og klukkan alltíeinu orðin 1 eða 2..
ég var að hlusta aftur á bents plötu í gær.. hún er svo vangefið góð! það er skemmtilegt að keyra í jólaumferðinni og rappa með erpi og bent (það er uppáhalds lagið mitt á plötunni þessa dagana)
kl. 10:17 | holla ( 0 )
20.
des
( 2006 )
hrmf! það kostar að tilnefna í íslensku vefverðlaunin???
ég hef einu sinni verið tilnefnd og tapaði þá fyrir birni bjarnasyni sem er nottla skandall (það sem er eiginlega meiri skandall er að núverandi kærastinn minn var í dómnefndinni þá..).. ég ætla að vinna þetta í ár, ég er nefnilega komin með nýtt og betra viðmót og fleiri fídusa...
nú ætla ég að eyða 1000kr í að tilnefna sjálfa mig, eins gott ég vinni.. og eins gott það séu ekki einhverjir plebbar sem selja orablu sokkabuxur og svona í dómnefnd (æ nei það er í fegurðarsamkeppnum, ég ruglaðist..)
hverjir eru í dómnefnd?
kl. 14:39 | holla ( 7 )
reyndar.. einn samstarfsfélagi.. 5 o´clock.. hann er á fýlulistanum mínum.. hann spurði mig hvort nýju fínu nikita buxurnar mínar væru joggingbuxur?????
kl. 14:31 | holla ( 7 )
í gær var akkúrat eitt ár síðan ég flutti heim frá danmörku.. og í dag á ég árs starfsafmæli .. ég mætti með kökur og nammi í vinnuna í tilefni þess.. vinnan mín er ýkt skemmtileg og ég er að vinna með ótrúlega skemmtilegu fólki, ég er ýkt heppin
kl. 13:33 | holla ( 6 )
ég er komin heim.. svona fyrir þá sem voru með áhyggjur.. ég lenti nottla í mega riot veseni..
það var ekkert smá mikið af fólki þarna og ég steig ekki einni tá nálægt H&M, ég fæ alveg sting í magann ennþá bara við tilhugsunina um að fara í H&M helgina fyrir jól.. í raun reyndi ég bara mest að halda mig austan við köbmagergade (þessi var bara fyrir fífu)..
við borðuðum líka fínan mat og ég komst að þeirri niðurstöðu að karlmenn borga almennt fyrir mat.. eða sko.. ég bað alltaf um reikninginn (þar sem ég er talandi á dönsku) en hann var alltaf látinn fá hann.. ég er ekki spes hrifin af því að láta blæða öllu á mig, aðhyllist meira því að borga til skiptis en geri ráð fyrir því eftir þetta að konur séu almennt til í að láta borga alltaf fyrir sig.. skrýtið..
svo lenti ég nottla í nærridauðareynslu..
stöð 2 tók mig í símaviðtal og kallaði mig íslenska konu.. negro please.. ef þeir ætla á annað borð að kalla mig konu þá hefðu þeir amk getað kallað mig virðulega bankakonu..
alla vega.. apahreiðrið okkar ylfu er nottla svona 200m frá ungdomshuset og þegar við ætluðum að fara þangað um hálf 7 á laugardagskvöldið var búið að loka nörrebro frá söerne upp að nörreport station... ég sagði einni löggunni að ég byggi hjá nörrebros runddel.. hvering ég kæmist heim.. hann hló bara og sagði það væri ekki hægt, ég gæti prófað eftir miðnætti..
ég sá kastað eldsprengju og nörrebrogade logaði.. mjög merkjó.. við komumst þó heim rúmlega 10.. það var skrýtið að labba nörrebrogade þá.. búið að brenna allar ruslafötur og brjóta rúður á útvöldum stöðum..

sem sagt aðallega hjá stærri fyrirtækjum.. búið að brjóta í málningarbúð og sulla málningu útum allt.. og svo hjá sportmaster, telia og öllum bönkunum.. 7/11 smá., samt ekki þessu hjá runddelen (örugglega af því þeir versla þar..) og svo bara smá á mcdonalds.. ef ég hefði verið pönkari, þá hefði ég byrjað á því að stúta mcdonalds.. en það er svosum ekki að marka þessa pönkara
það var samt byrjað að laga allar þessar brotnu rúður.. svona rúðuskiptimenn hafa ábyggilega verið ánægðir með bissnissinn sinn.. ég og kæró höfðum samt hljótt um að vera bæði bankamenn, annars hefði okkur ábyggilega verið stútað haha

það voru samt ennþá alveg slatti af fólki þarna (nottla búið að handtaka um 300 manns.. ekki svooo margir ennþá eftir) og það logaði enn bál á jagtvej, fyrir utan ungdomshuset.. brennda ruslafýlan var samt ógeð..

frameftir nóttu voru alveg læti í þeim.. og daginn eftir voru enn 3 pönks uppá þaki með múrsteinana tilbúina til að kasta í löggur ef þær hefðu hætt sér nálægt.. það var samt aðallega fólk bara þarna að glápa og skoða og taka myndir..


(bíddu.. færsla með myndum og engin mynd af mér?? ná ðats a först haha)
ég nottla hef orðið vitni af allskonar mótmælagöngum hjá þeim, búin að minnast á þá hér og hér og gerði þessa mynd einhvern tíman eftir mótmæli.. en aldrei lent í neinu svona mega... en það var nú bara skemmtilegt..
og það var líka gaman úti.. ég meina hvernig getur verið annað en frábært þegar maður á kæró segir þegar mig langar í of dýran filippu k trefil "þú þarft að eiga fínan trefil.." og nuddar á manni táslurnar í flugvélinni.. æ ég gæti talið endalaust upp en þessi færsla er orðin helvíti löng þannig ég ætla að sleppa því
svo er ég líka búin að vera fáránlega dugleg í dag.. átti nefnilega bökunardag í dag.. við ylfa bökuðum þrjár sortir og svo páversjoppuðum við hans, ég er búin að kaupa allar jólagjafir nema eina.. og meirað segja pakka öllum inn nema tveimur! nú get e´g bara verið að einbeita mér að æfingum, vinnunni og að því að fara í klippingu og svona til jóla
kl. 01:18 | holla ( 5 )
14.
des
( 2006 )
farin til köbenarinnar minnar!
saknið mín!
kl. 14:19 | holla ( 14 )
ég fann tvö blogg þar sem fólk var ansi reitt yfir krummaskuðsgreininni sem ég tók þátt í..
scorpion "hefur aldrei verið jafn móðguð og hneyksluð á einni blaðagrein".. hún kallar mig cappocino sötrandi miðbæjarrottu..
félagar hennar eru urrandi reiðir yfir fáfræði og fórdómum í okkur "miðbæjarrottunum" og segja meðal annars:
- Eftir að hafa búið hér í Reykjavík að þá gæti ég ekki verið frá því að borgin sé leiðinlegri heldur en þessir bæir út á landi ... ég er að deyja mig langar svo að flytja héðan úr borginni og aftur upp í sveitina. Mér finnst að maður ætti bara að fara til Reykjavíkur af og til en ekki búa í henni, finnst hún óhrein og ógeðsleg (svo þarf maður líka að fara miklu varlegar hér, læsa bílnum og húsinu...sem að maður þarf ekki upp í sveit...)
- Úfff fegin er ég að þetta fólk er með þessar skoðanir á landsbyggðinni, ekki vill ég að þetta lið flytji útá land.
- en er alveg sammála Þórði í því að maður er þá allavega laus við þetta snobbpakk á meðan
svo er
daði guðjónsson líka ósáttur.. hann segir m.a. "það sem verra er þá eru þetta nánast allt einstaklingar sem byggja afkomu sína á styrkjum úr ríkissjóði (ýmsa sjóði sem íbúar þessara byggða eru neyddir til þess að greiða í)"
er maðurinn að kalla mig atvinnuleysingja eða öryrkja????.. alla vega.. lesendur hans segja m.a.
- Það er eitt að einhverjir "stórborgar"plebbar vilji ekki vita um annað en borgarlífið og gefi skít í landbyggðina, en að ritstjóri eins stærsta fréttamiðils á Íslandi skuli telja þetta prenthæft...???
- Ég gæti sagt ýmislegt slæmt um Reykjavík en ég ætla ekki að leggjast svona lágt eins og þessir fávitar.
- Annars held ég að þetta lýsi ástandinu hjá þessu fólki, það er svo yfir landsbyggðina hafið að það veit ekki í þennan heim né annan.
hér er sem sagt fólkið sem er brjálað yfir því hvað ég sagði um landsbyggðina þeirra búið að að kalla mig
miðbæjarrottu
þetta fólk
snobbpakk
einstakling sem byggir afkomu mína úr styrkjum úr ríkissjóð
stórborgarplebba
og það er búið að kalla borgina mína leiðinlega, skítuga og óhreina og hættulega.. en sumir nottla leggjast ekki svo lágt að segja slíka hluti um reykjavík þó þeim finnist það(lesis: finnst reykjavík asnaleg en vill ekki segja það beint)
punkturinn minn er.. að reykvíkingar eru alveg hræðilegir að setja útá krummaskuðin útá landi.. en íbúar krummaskuðana mega segja hvað sem þeir vilja um reykjavík og fólkið sem býr þar..
kl. 10:03 | holla ( 29 )
mBlog
Safnið
2010 september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2009 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2008 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2007 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2006 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2005 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2004 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2003 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2002 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní,
maí,
apríl,
mars,
febrúar,
janúar2001 desember,
nóvember,
október,
september,
ágúst,
júlí,
júní