Katrín.is
13.
júl

( 2010 )
mér sýnist ég ekki mega hafa skoðun á öðrum síðum á internetinu
kl. 20:10
Nei, veistu, það er bara almennt ekkert vinsælt að hafa skoðanir.
Esther
13. júl kl. 23:38
Því miður held ég að Esther hafi rétt fyrir sér, fólk (lesist alla vega Íslendingar ;-o) vilja bara heyra skoðanir þeirra sem sammála þeim. Sem sennilega að verulegu leyti skýrir hvernig fyrir okkur er komið sem þjóð :-o
ASE
13. júl kl. 23:48
Eh, já ... ég var nú samt alveg sammála þér varðandi pressu-píurnar. Æi, ég veit ekki. Mínar augabrýr eru alltaf óaðfinnanlegar þannig að ég kannski bara þarf ekkert að eyða tíma mínum í að lesa um augabrýr annarra kvenna ...
Nú, eða taka tískuráðum - eða hvers konar ráðum - frá dömum sem afgreiða bjór berbrjósta. Ég er kannski bara svona snobbuð en ég hef ekki hingað til hugsað með mér að berbrjósta afgreiðsludömur hafi eitthvað til að bjóða mér - með bloggum né neinu öðru. :)

En annars vil ég gjarnan fá fleiri blogg frá þér kona. Ég uppgvötaði þig svo seint, skilurðu! ;)
Anna
14. júl kl. 00:36
já maður á alltaf bara að jáa allt sem allir gera og segja og þá eru allir glaðir:)

og takk anna;)
katrín
15. júl kl. 17:07
Ég var að finna þetta blogg og ég treysti því að ég geti gengið að því sem vísu héðan í frá. Ég er kannski ekki alltaf sammála en mér finnst hressandi þegar fólk er hreinskilið.

Fannst augnabrúnapistillinn nokkuð gagnlegur. gott að einhver hugsar um okkur illa brúnuðu konur ;).

Dúllu/tussu bloggið var sætt og Pollýönnulegt. Við þurfum Pollýönnu í öllu þessu krepputali.

Ég er viss um að allar skinkur elska ráð um það hvernig ber að lita á sér hárið. Fyndið, einhvern veginn sé ég alltaf fyrir mér ungfrú skinku sem miss piggy í prúðuleikunum. En já það segir meira til um aldur minn en nokkuð annað ;)

hlakka til að sjá næstu gagnrýni frá þér . b.kv. Anna
Anna Gunna
26. júl kl. 21:28


mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox