Katrín.is
8.
júl

( 2010 )
hvað er málið með allar þessar yfirborðskenndu skinkur sem skrifa á pressuna? ég er í sjokki.. þessi pía, sem finnst mikilvægast í heimi að vera með fínar augabrúnir og vera ekki drusluleg í flugi.. þessi bjáni (félagsfræðingur? seriously?) með dúllutussurnar og svo glamúrmódel vonnabíið, sem afgreiddi í flash fm partýi á júllunum og talar um mikilvægi þess að fá sér sílikon og svo síðast en ekki síst drottning allra skinka

er verið að fífla mig??

kl. 22:59
mér finnst líka svo gaman hvað þær eru allar (skinkurnar) með BA í hinu og þessu, aðallega viðskiptafræði og/eða stjórnmálafræði. eru flestar líka í háskóla, svo er glamúrmódelið alveg sér kapitúli útaf fyrir sig.
Óli T
8. júl kl. 23:06
glamúrgellan er nú bara 18.. en drottningin er ekki með neitt háskólapróf..
katrín
8. júl kl. 23:18
fletti í gegnum nokkrar, þetta fann ég

BA í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands
Fjármálaráðgjafi með BA í frönsku
Stundar meistaranám í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði
B.A. í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands
Óli T
8. júl kl. 23:24
ég er ekki viss um að ég myndi vilja fjármálaráðgjöf frá einhverjum með BA í frönsku:)
katrín
8. júl kl. 23:33
"Dúllutussan" er tímamótagrein í íslenskri blaðamennsku
Valli
9. júl kl. 16:14
Guð minn góður hefurðu ekkert betra að gera á daginn en að sitja og tala illa um fólk ?
ég kíkti þarna inn og les alltaf 2 af þessum nöfnum þarna uppi og þau 2 nöfn eru alltaf í vinsælustu mest lesnu pistlunum neðst á síðunni

sú sem þú kallar ''Glamúrmódel wannabe'' sem ég held að sé komin langt yfir það að vera ''wannabe'' veit ekki betur en hún hafi verið að vinna bæði úti og hér á íslandi við þetta ef fólk fær borgað fyrir eitthvað er það þá ekki vinna eins og hvað annað???? svo sú sem þú kallar ''þessi pía'' er ekki í lagi að hún deili hugmyndunum sínum með öðrum?? já þó að þér finnist ekki í lagi að líta vel út á ferðalögum er ég viss um að margar stelpur vilja það..... og þú að setja út á skrif hjá öðrum þetta er fólk sem fær borgað fyrir að skrifa er þetta ekki bara smá afbrýðissemi?? held það séu margir sammála um það að þetta er fín afþreying og ég segi fyrir mig að ég hef sent annari þeirra póst og hrósað fyrir eitt sem hét ''til fyrirmyndar'' mér fannst það frábært hjá henni greinilega ekki bara sæt stelpa heldur líka vit í henni... finnst allar þessar sem þú nefnir skrifa eitthvað sem er gaman að lesa
Elín
11. júl kl. 12:05
er þetta bara ekki afbrýðissemi í hámarki? myndi halda það. þetta er niðurlægjandi fyrir engan annan en sjálfa þig Katrín. flottar stelpur sem eru að gera það gott! ættir að hugsa meira um hvað þú bloggar um þar sem bloggið þitt er langt frá því að kallast vel skrifað
Anna B
11. júl kl. 12:09
ég hef það betra að gera til dæmis á daginn að æfa mína 1337 sql skillz og sjá að sama manneskjan var að setja komment á síðuna mína með 4 mínútna millibili

pínu krúttlegt:)
katrín
11. júl kl. 14:22
hahhaha eru elín og Anna B sama manneskjan, alltaf gaman þegar fólk hefur ekki kjark til að skrifa undir réttu nafni, þó svo það séu eingöngu fornöfn. verst er þó að þær/hún fá ekki sent email með tilkynningu um að þeim hafi verið svarað, þetta er samt pottþétt ein af þessum pressu píum að láta líta út fyrir að vera með fanbase. Katrín ekki láta þessa píu samt stöðva þig í að blogga hérna, vertu sterk
Óli T
11. júl kl. 14:50
hún er samt on to me... ég er heví afbrýðissöm:(
katrín
11. júl kl. 14:53
já en hún verður bara að skilja að svona brýst afbrýðissemin þín út, þú hlýtur að mega skrifa á internetið eins og allir aðrir um það sem þér finnst :)
Óli T
11. júl kl. 14:59
nei bara þeir sem fá borgað mega skrifa á internetið um það sem þá langar til;)

annars þyrfti að borga mér helv mikið til að skrifa á sömu síðu og bubbi morthens!
katrín
11. júl kl. 15:36
Held með Katrínu svo það sé skjalfest.
Magnús Már
12. júl kl. 00:47
auðvitað:)

bryndís gyða kallar mig einmana konu og plebbagellu á internetinu og skilur ekkert í því að fólk skuli geta níðst á fólki bakvið tölvuskjáinn og kallað sig einhverju jafn slæmu og wannabe glamúr módel

(ég get reyndar séð hvernig það er rosalega ljótt sagt við stelpu sem er afgreiðir bjór ber að ofan í partýi fyrir útvarpsstöð, það þykir almennt mjög klassí og alvöru)
katrín
12. júl kl. 16:12
Þú ert frábær Katrín.
Eva
12. júl kl. 17:19
þú veist að það segir meira um þig hvernig að þú talar um fólk heldur en hvað fólk segir um þig ;)
En þú mentaður tölvunarfræðingur frá HÍ og hugbúnaðarverkfræðingur frá DTU skrifin þín geta ekki allveg sagt til um það skal ég segja þér þó. Og af þrítugri konu þá er ekki hægt að segja að þú sért mjög þroskuð því miður því að ég veit ekki betur en að ég sem er 10 árum yngri en þú er 5 árum allaveganna á undan þér í þroska en sumir eru víst bara bráðþroska og sumir seinþroska.

Og eitt í viðbót "skinka" geturu lýst því fyrir mér hvað það er ? :)
Vera Rut
12. júl kl. 17:39
og ég er 5 árum allaveganna á undan þér í þroska en sumir eru víst bara bráðþroska og sumir seinþroska. átti þetta að vera afsakið...
Vera Rut
12. júl kl. 17:41
róleg vera

hér fara grunnskólakrakkar mjög vel að því að lýsa hvað skinka er:
http://www.youtube.com/watch?v=nOFjiPyP_9s
katrín
12. júl kl. 18:36
Hahahahhaa! Jess, Kat, þú ert alveg 2002-back!
Óskar P
12. júl kl. 19:58
heh já, nema ég er 8 árum eldri en fólkið sem er að rífast við mig er það ekki.. ekkert voða gaman að rífast við kids (þó þeir séu "5 árum allaveganna á undan mér í þroska")..
katrín
12. júl kl. 20:00
langar samt að leiðrétta þetta aðeins með skinkurnar, þetta byrjaði þegar að vinkonu hópur úr Garðabænum byrjuðu að blogga, bloggin voru á mjög svipuðum nótum og þín blogg, þær voru 15 ára þegar þær byrjuðu og hættu þegar þær voru 17 ára og þetta nafn kom því að þær vissu ekki nafn til að hafa á síðunni og þetta nafn kom þegar að þær voru að steikja skinku til að setja á ristað brauð.
En þegar ég segji bloggin þín og þeirra séu svipuð þá er ég að tala um illa skrifuð og þær á hátindi gelgjunar.

Ég er samt allveg 10 árum yngri en þú og ég er ekki rífast við þig, heldur er ég að segja þér að mér finnst þetta blogg þitt fáránlegt og að þú ert að lítillækka sjálfa þig með því að vera að úthúða fólki sem að á það ekki skilið, þú þekkir þessar stelpur ekki neitt og ekki ég heldur meira að segja en sleftu því bara að lesa þetta ef að þér finnst þetta svona áhugalaust.
Sagt er líka að fólk sem að baktalar aðra eða úthúðar á eitthvern hátt þá er þetta merki um afbrýðisemi á hinn aðilann.
Vera Rut
12. júl kl. 20:30
ástríður er ekki eins og hinar
bent
12. júl kl. 20:50
vera mér þykir líklegra að notkun orðsins skinka í dag sé dregið af skank, gúglaðu það ef þú skilur það ekki. en þú ert að gera það nákvæmlega sama og þú ert að segja mér að gera ekki, ef þér finnst bloggið mitt svona fáránlegt, ekki vera að lesa það og kommenta á það, bæbæ!

nei hún er pínu öðruvísi bent, hún er ekki að pæla í útlitinu eins og allar hinar, ss ekki eins yfirborðskennd, þó mér finnist þetta sem hún er að segja ótrúlega stupid
katrín
12. júl kl. 20:54
haha skinka kemur frá stelpu hóp bloggi úr garðabænum. Good one.
gunnare
13. júl kl. 00:33
vá þetta er bara farið að minna á ákveðið stríð hérna í bloggheimum fyrir mörgum mörgum árum síðan. sem síðar endaði verst fyrir mig, sem ég hef reyndar aldrei skilið, en allir aðilar vinir í dag
Óli T
13. júl kl. 13:23
er það? við erum ekki vinkonur í dag:) vorum það reyndar aldrei
katrín
13. júl kl. 14:39
það var reyndar wayyyyyyyyyyyyyyyy persónulegra

og hér er enginn búinn að vera blogga fullur á næturnar og eyða út;)
katrín
13. júl kl. 14:40
Inerneeetslaaaguuuur!!!
Jói
13. júl kl. 15:44
Þetta er miklu betra en Internetslagur, þetta er Internet cat fight!
Valli
13. júl kl. 16:35
Þetta er massa hress blogg síða. Vill bara taka framm að ég elska party skinkur og mér finnst bara Katrín bara smá abbó.
kristjanb
13. júl kl. 16:43
eina ástæðan fyrir því að ég las þetta eina tiltekna blogg þitt hérna er að það var verið að tala um þetta blogg og hvað hugsanlega þessar stelpur gætu hafa gert þér og afhverju í óskupunum þú værir svona bitur...

en ég allaveganna stend í þeirri meiningu að þetta hafi komið út frá þessum vinahóp sem byrjuðu að blogga 2005 og skírðu sig þessu nafni því að þetta byrjar eftir þeirra síðu og sumt af hlutunm passaði ágætlega við þennan tiltekna vinahóp...

en ég er allveganna hætt að pæla í þér, hef meira við líf mitt að gera en að lesa leiðinlegt blogg frá konu sem er svona afskaplega bitur því að aðrar konur, stelpur og átján ára gamall unglingur hafa gáfulegri hluti að segja en hún, eiga meira lesið blogg og eru fallegar í þokkabót ;)
Vera Rut
13. júl kl. 18:58
hæj kristján:)
katrín
13. júl kl. 20:04
btw vera ég er í sjokki yfir að þér finnist bloggið mitt leiðinlegt, ég bitur,vitlaus og ljót.. aldrei hefur neinn sagt neitt eins særandi við mig, hvað get ég gert til að halda þér áfram á síðunni minni?
katrín
13. júl kl. 20:07
Life is good again.
Fleiri blogg á katrin.is facebook er bara bóla...
Þetta er svo Verulega skemmtilegt
Hjalti
13. júl kl. 21:27
já helduru að facebook eigi eftir að springa eins og myspace?:)
katrín
13. júl kl. 22:38
Úff, hvað það verður eins og 'nuclear annihilation' þegar FB fer veg MySpace. 500 milljón (er þaggi) manns þurrkaðir út á einu bretti. FaceBook Suicidein rúla ekkert smá, b.t.w.
Óskar P
14. júl kl. 00:06
"þetta nafn kom þegar að þær voru að steikja skinku til að setja á ristað brauð"

Classic!
Magnús Már
14. júl kl. 00:48
ég held að kommentafjöldinn hérna katrín sýni bara að þú þarft að halda áfram að blogga hérna :)
Óli T
14. júl kl. 00:56
Einmitt, borgað fyrir að blogga á pressunni - since when?
M
14. júl kl. 13:31
Hvaða stælar eru þetta?
Tískublogg eru hið nýja google.
tískublogg
9. ágú kl. 16:23
þessar stelpur eru ekki með tískublogg..
katrín
9. ágú kl. 19:43
en katrín, hvað finnst þér um skáta og hugvísindafólk?
fífa
11. ágú kl. 15:00
Djöfull kann ég að meta þig Katrín! Þú ert klárlega að tala sannleikan.
Ég styð við bakið á þér...

Kveðja, 5 ó
Bergsteinn
21. ágú kl. 19:26
5 ó best:)
katrín
22. ágú kl. 22:05


mBlog

Nýjar myndir

RSS Áskrift
MySpace
Powered by K2
Get Firefox